Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 26
Þetta er búið að blunda í mérmjög lengi, að semja óperu,“segir Hróðmar Ingi Sigur- björnsson sem nú er langt kominn með að láta þann draum sinn ræt- ast. Hann hefur undanfarin ár verið að semja tónlist við nýja óperu sem hlotið hefur nafnið Söngvar hjartans, og fékk í lið með sér tvo góða vini sína, þá Hallgrím Helga Helgason rithöf- und til þess að semja handritið og Hilmar Oddsson kvikmyndaleik- stjóra til þess að leggja drög að sviðsetningu og sjónrænni út- færslu verksins. „Hróðmar kom til mín einn dag- inn og spurði hvort ég ætti ekki efni í óperu,“ segir Hallgrímur sem strax hreifst af verkefninu. „Hróðmar hefur samið mikið fyrir sjónvarp, bíómyndir og leikhús svo mér fannst þetta mjög eðlilegt og spennandi skref hjá honum.“ Áhugi á fótbolta skilyrði Vinnan hefur til þessa að mestu legið á herðum þeirra Hróðmars Inga og Hallgríms, tónskáldsins og textahöfundarins. Hilmar hefur setið með þeim vinnufundi og skotið að þeim hugmyndum en að öðru leyti beðið síns tíma, sem væntanlega kemur þegar nær dregur því að nýja óperan verði sett á svið. Enn er reyndar óvíst hvort af því verði og ekki er heldur vitað hvort Hilmar muni sjá um leik- stjórnina þegar þar að kemur. „Íslenska óperan hefur sýnt okkur velvilja. Við höfum fengið frá henni styrki án skuldbindinga um að sýna verkið. Það verður bara ákveðið þegar okkar verk liggur fyrir,“ segir Hróðmar. Fjórði maðurinn bættist síðan í hópinn á síðasta ári. Hann er Finnur Arnar Arnarson, leik- myndahönnuður og myndlistar- maður. „Hann hefur brennandi áhuga á fótbolta sem er algert skilyrði fyrir því að komast í þennan hóp,“ segir Hilmar kíminn. „Við þurfum nefnilega líka að geta verið svolít- ið ógáfaðir saman.“ Uppgjör á hálendinu Óperan gerist öll uppi á hálendi Íslands undir haust. Þangað er komin lítil fjölskylda að sunnan, hjónin Ólafur og Ingunn, bæði um fimmtugt, ásamt uppkominni dótt- ur þeirra sem heitir Björg. Marg- vísleg tilfinningaátök brjótast upp á milli þeirra, enda á Ingunn skammt eftir ólifað en hjónaband þeirra Ólafs hefur ekki verið gæfuríkt síðustu árin. Hópur kostulegra áhugaleikara er á ferð um sömu slóðir og bland- ast inn í uppgjör fjölskyldunnar, auk þess sem kór virkjunarmanna hefur upp raust sína þegar færi gefst og setur þá gjarnan hlutina í stærra samhengi mannlegrar til- veru. Á köflum er reyndar ekki alveg ljóst á hvaða tilverustigi þessir leikarar eru staddir. „Mig langaði að tefla í verkinu saman trega og gamni á kannski svolítið djarfan hátt, þar sem mér fannst það henta tónlist Hróðmars vel,“ segir Hallgrímur. „En um leið langaði mig að semja verk sem vísaði í okkar veruleika í dag. Ég hef t.d. gaman af óperum eins og Nixon in China eftir John Adams sem fjallar kannski um svolítið ó-óperulegt efni, – ef það er þá til.“ Þeir leggja jafnframt áherslu á að sýningin verði spennandi og áhorfendum sé sífellt komið á óvart. „Svona verk verður líka að vera spennuleikrit í bland,“ segir Hallgrímur. Setja markið hátt Hróðmar er nútímatónskáld en segir tónlist sína hafa mildast töluvert undanfarin ár. Hann þurfi því ekkert að setja sig í neinar stellingar til þess að gera tónlistina aðgengilega fyrir al- menning. „Þetta er mikil leikhústónlist hjá Hróðmari,“ segir Hallgrímur. „Útgangspunkturinn hjá okkur er samt fyrst og fremst leikhús,“ segir Hróðmar. „Til þess að ópera virki þarf hún að vera leiksýning og þess vegna viljum við búa til flott leikhús. Það er lykillinn að þessu öllu saman.“ „Ég held að við séum líka allir svolítið veikir fyrir því að skilja alltaf eitthvað eftir handa áhorf- endum, að loka ekki hverjum ein- asta glugga,“ segir Hilmar. „Það má ekki móðga áhorfendur sem vitsmunaverur.“ Ferðalag á vit hálendisins má vafalaust túlka sem ferðalag inn á öræfi hugans, enda sækja þeir fé- lagar sér fyrirmyndir að nokkru leyti í verk á borð við Töfraflaut- una eftir Mozart og Draum á Jóns- messunótt eftir Shakespeare þar sem ýmis undarleg öfl eru á reiki. Sömuleiðis hafa þeir sótt inn- blástur í áströlsku bíómyndina Picnic at Hanging Rock sem Peter Weir gerði árið 1975. Til þess að ná fram þeim ævin- týrablæ og víðáttum sem sögu- svið óperunnar býður upp á, þá er ljóst að þrengslin í Gamla bíói duga skammt fyrir þá viðamiklu sýningu, sem þeir félagar hafa í huga. „Við setjum markið mjög hátt,“ segir Hróðmar. „Við ætlum að búa til það verk sem okkur langar að búa til. Við erum komnir með ein átta hlutverk og kór og ætlum að hafa stóra hljómsveit, svo verður það bara að ráðast hvort einhver vill flytja þetta.“ Deilurnar um óperuhúsið Miklar umræður hafa verið um húsnæðismál Íslensku óperunnar í fjölmiðlum síðustu vikurnar, í kjölfar þess að Jónas Sen birti grein í Lesbók Morgunblaðsins þar sem hann gagnrýnir Íslensku óperuna fyrir að sníða sér ekki stakk eftir vexti í verkefnavali. Stórar klassískar óperur verði til dæmis ekki svipur hjá sjón þegar þær eru komnar á svið í þessu litla húsi við Ingólfsstrætið. Margir eiga einnig erfitt með að skilja af hverju úthýsa eigi Íslensku óperunni úr nýja tónlist- arhúsinu, samkvæmt þeim hug- myndum sem til þessa hafa verið uppi á borðinu. „Ópera á samt að mörgu leyti miklu meira skylt við leikhús heldur en tónleikastarfsemi,“ segir Hilmar. „Við getum orðað það þannig að ef allt færi á besta veg og hlutirnir gerðir eins og á að gera þá, en ekki tekið tillit til stærðar samfélagsins og að- stæðna að öðru leyti, þá eiga þess- ar tvær listgreinar fátt sameigin- legt vegna þess að þarfirnar eru svo ólíkar. En umræðan er rétt- lætanleg vegna þess að íslenskt samfélag ræður illa við þetta einfaldlega út af smæð.“ Upp á síðkastið hefur æ oftar komið til tals að hafa minni sal í húsinu fyrir óperustarfsemi, og þeir félagar gera sér vonir um að sú niðurstaða verði ofan á. Tosca átti samt erindi Þeir félagar eru þó sammála um að stórar óperur eigi fullt erindi til flutnings hér á landi, jafnvel þótt húsnæðið sé ekki eins og best verður á kosið. „Til dæmis er ómetanlegt fyrir íslenskt tónlistarlíf að fá verk eins og Toscu flutt hér á landi. Þetta er frábær ópera og frábær músík og það er nauðsynlegt að ís- lenskir tónlistarmenn geti tekist á við þetta.“ Hróðmar segist vissulega sakna þess að sjá ekki fleiri nú- tímaóperur settar upp hér á landi, ekki síst nýjar íslenskar óperur. „En þótt ég sé nútímatónskáld þá skil ég það samt vel að þeim sem ráða þessu er vandi á hönd- um.“ Hróðmar bendir þó á að á Norðurlöndunum sé löng hefð fyrir því að nýjar innlendar ó- perur séu frumsýndar á hverju ári. Hilmar nefnir einnig til sög- unnar Íslenska dansflokkinn, þar sem mikil og frumleg nýsköpun hefur átt sér stað á síðustu árum. „Hjá Íslenska dansflokknum er núna kominn grundvöllur að því að vera með sex til átta sýningar á ári. Það fer náttúrlega ekki öll þjóðin á þetta, en fólk veit að þarna getur það gengið að ein- hverju mjög skapandi, frumlegu og áhugaverðu, og ég held að þetta gæti alveg átt við um óperur líka.“ ■ 26 26. mars 2005 LAUGARDAGUR Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson tónskáld hefur undanfarin ár verið með óperu í smíðum sem hann hefur unnið í félagi við Hallgrím Helga Helgason rithöfund og Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóra. Guðsteinn Bjarnason ræddi við þá um óperugerð- ina, húsnæðismál Íslensku óperunnar og nýsköpun í tónlist hér á landi. Ópera verður til FRÉTTABLA Ð IÐ /S TE FÁ N Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson tón- skáld hóf tónlistarferil sinn í hljóm- sveitinni Melchior á unglingsárum en hélt í tónsmíðanám aðeins átján ára í nýstofnaðri tónfræðadeild Tón- listarskólans í Reykjavík hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni og Atla Heimi Sveinssyni. Á síðasta ári var hljóm- plata hans Hjörturinn tilnefnd til ís- lensku tónlistarverðlaunanna. Hann hefur samið töluvert fyrir kvikmyndir og leikhús, nú síðast tónlistina sem er flutt í leiksýningunni Grjótharðir í Þjóðleikhúsinu. Hilmar Oddsson kvikmyndaleik- stjóri hefur gert kvikmyndirnar Eins og skepnan deyr 1986, Tár úr steini 1996, Sporlaust 1998 og Kaldaljós 2004, auk þess sem hann hefur gert sjónvarpsmyndir og leikstýrt í leik- húsi. Hann var einnig í hljómsveit- inni Melchior á unglingsárum. Hallgrímur Helgi Helgason rithöf- undur hefur skrifað töluvert fyrir leikhús, bæði frumsamin leikrit og þýðingar. Hann hefur einnig unnið handrit fyrir kvikmyndir og sjón- varpsþætti. Hann samdi einnig texta fyrir hljómsveitina Melchior á sínum tíma. HRÓÐMAR, HALLGRÍMUR OG HILMAR Óperan Söngvar hjartans gerist á hálendi Íslands. Enn er óráðið hvort eða hvar af flutningi verður, en óperugerðarmennirnir vonast til þess að sjá hana á sviði næsta vetur. BREYTTUR HEIMUR AÐ DÆMA HINA LÁTNU Réttlátur dómur Guðs BYGGT Á BÓKINNI HUGMYNDIR SEM BREYTTU HEIMINUM SEM KOM ÚT HJÁ EDDU FYRIR SKÖMMU. Hugmyndir manna um dauðann og það, hvað gerist að honum loknum eru tengdar von þeirra um eilíft líf. Margir kannast við hin guðdómlega gleðileik Dantes, þar sem skáldið fór frá helju til himna og kynntist þar „réttlátum“ dómi guðs. Slíkt er þó ekkert bundið við kristnina eina, heldur er hugmyndina um dóm guðs hægt að finna langt aftur í aldir. Ekki eru þó allir jafn sannfærðir um þenn- an dóm guðs. Efnishyggjumenn halda því fram að guðlegt réttlæti, dómur guðanna yfir hinum látnu, sé ekkert annað en tæki valdhafanna til þess að kúga þegna sína. Ótti og von eykur, að þeirra áliti, félagslega ábyrgð fólks- ins, sem annars kynni að láta til skarar skríða gegn veikum valdhöfum. Til forna var í flestum tilvikum litið svo á að framhaldslífið, sem tæki við eftir dauðann, væri framlenging á jarð- nesku lífi. Því voru líkin grafin með hlutum sem voru hinum látna hjart- fólgnir. En svo virðist verða breyting á, því ekki var lengur um framhaldslíf að ræða heldur annan heim þar sem ójafnvægi hins þekkta heims var fært til betri vegar. Í gröfum frá fornegypsk- um tíma má glöggt sjá þessa breyt- ingu, því milli gamla ríkisins og mið- ríkisins breytist hugmynd fyrirfólks um dauðann. Á tímum gamla ríkisins voru grafirnar biðstofur að öðru ríki, en á tímum miðríkisins voru þær yfir- heyrsluherbergi fyrir næsta líf. En hvernig átti að dæma hvort menn væru hæfir til næsta lífs, hvort þeir hefðu verðskuldað það? Á veggja- myndum á gröfum í Egyptalandi til forna var ekki óalgengt að sjá guði vigta sálir hinna dauðu. Hjartað var þá ásetningur hins látna en fjöður, sem var tákn fyrir réttlæti, var látin á hina vogarskálina. Hinn látni afneitaði löng- um syndalista sem var látinn vega upp á móti góðverkunum. Ef hinn látni stóðst prófið fékk hann nýtt líf með Ósíris, stjórnanda heimsins, en ef hann féll var honum útrýmt. GUÐDÓMLEGUR GLEÐILEIKUR DANTES Kirkjan á 15.öld hafði þróað mjög flóknar kenningar um framhalds- lífið sem Dante notaði í bók sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.