Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 29
3LAUGARDAGUR 26. mars 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Hvað getur þinn bíll skammstafað mikið?
Mál bílamálanna í líðandi viku er án efa leitin sem gerð var að
þremur ungmennum sem lentu í hremmingum á leið sinni suður
Kjöl. Margir hafa orðið til að benda á mistök ferðahópsins eins og
auðvelt er þegar aðrir eiga í hlut. Benda menn þá helst á hversu
illa fólkið var búið fjarskiptatækjum. Ein CB, GSM, enginn NMT
og ekki VHF heldur, hvað þá SSB. En þau voru samt með GPS.
Þetta er alveg slatti af skammstöfunum!
Til að snúa þessu yfir á mannamál skulum við kíkja á hvað
þessar skammstafanir þýða: CB-(Citizen Band)talstöðvar eru
mjög skammdrægar, 3-10 km í sjónlínu, og gagnast nær eingöngu
til samskipta innan ferða- eða vinnuhópa.
VHF (Very High Frequency) talstöðvar eru hins vegar lang-
drægari, allt að 100-150 km í sjónlínu. Auk þess eru endurvarpar
um allt land á vegum til dæmis Ferðaklúbbsins 4x4 sem auka enn
á drægnina. Mjög margir jeppamenn eru með svona stöðvar í bíl-
um sínum og því ekki ólíklegt að beiðni um hjálp heyrist.
NMT (Nordisk Mobile Telephone) er gamla góða farsímakerfið
sem því miður á ekki mörg ár eftir ólifað. Drægni þess er um 100-
150 km í sjónlínu og sendar eru staðsettir hér og þar um hálendið.
Til samanburðar dregur GSM (Global System for Mobile comm-
unications) sími yfirleitt minna en 30 km og enga slíka senda er að
finna á hálendinu.
Nokkrir eru svo enn að nota gömlu Gufunesstöðvarnar, eða SSB
(Single Side Band modulation). Drægni þeirra fer aðallega eftir
loftnetslengd en þær hafa verið notaðar til að tala milli landshluta
og jafnvel út fyrir landið. Eigendur bíla með allra stærstu loft-
netin eru því ekki nauðsynlega geðveikir, heldur kannski bara
forsjálir.
GPS (Global Positioning System) er svo staðsetningartæki sem
margir halda að sé nægur búnaður til að fara á fjöll. Það þarf þó
að kunna á tækið til að það gagnist. Eins er algjör skylda að hafa
áttavita og kort meðferðis, og kunna að nota hvort tveggja, því sá
búnaður verður aldrei rafhlöðulaus.
Jeppafólk grínast sín á milli um það hver sé með hæsta „dóta-
stuðulinn“. Enda minnir bíll með öllum tækjunum sem talin eru
upp hér að ofan orðið töluvert á geimskutlu að innan. En er það
ekki betra en að vera... utan þjónustusvæðis?
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Hyundai styrkir
fótbolta
Hyundai heldur áfram að
styrkja íþróttaiðkun.
Hyundai Motor Co. hefur gert nýjan
samstarfssamning við FIFA, Alþjóða
knattspyrnusambandið eins og kemur
fram á heimasíðu B&L, bl.is.
Samningurinn gildir frá árinu 2007 til
ársloka 2014 og verður Hyundai því
áfram einn af sex meginstyrktaraðilum
sambandsins. Það felur í sér að
Hyundai mun áfram sjá mótsstjórnum
heimsmeistaramótsins í knattspyrnu
fyrir bílum sem flytja meðal annars
keppnisliðin og dómara á milli staða.
Hyundai hefur einnig styrkt Evrópu-
keppnina í knattspyrnu.
Porsche 911 Carrera.
Nýr lúxusbíll frá
Porsche
Porsche heldur áfram að
framleiða stærri bíla.
Bílaframleiðandinn Porsche hyggst
kynna nýjan bíl í lok ársins. Um er að
ræða fimm dyra útfærslu á Porsche 911
sem verður í flokki stærri lúxusbíla.
Þessi nýja útfærsla verður líklega kynnt
í september á þessu ári en fer þó ekki í
sölu fyrr en árið 2009. Nýi bíllinn verður
byggður á nýjum undirvagni og hugsan-
legt að Porsche leiti aftur í samstarf við
Volkswagen. Bíllinn verður líklega um
4,9 metra langur og verður boðinn með
fjölbreytilegu safni véla.