Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.03.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 26.03.2005, Qupperneq 30
Vistakstur verndar umhverfið og budduna Grétar H. Guðmundsson kennir svokallaðan vistakstur sem mengar minna og sparar eldsneyti. Með vistakstri er eldsneyti sparað, minna mengað og umferðaröryggi aukið. Grétar H. Guðmundsson er einn fárra ökukennara hér á landi sem kennir vistakstur. „Vistakstur snýst fyrst og fremst um breytt hugarfar og aksturslag,“ segir Grétar H. Guðmundsson kennari í vistakstri. Hann segir þessa hugmyndafræði komna frá Finnum sem hafa mikið spáð í þessi mál og komu hingað til lands að kenna ökukennurum. „Ég hef helst tekið hópa frá fyrirtækjum og kennt þeim að aka vistvænt og eru þau flest fyrirtækin að spara um 10% til 15% í eldsneyti eftir námskeiðið, sem getur skipt gríðarlegu miklu máli í útgjöldum,“ segir Grétar. „Auk þess kallar aksturslagið á aukið umferðarör- yggi,“ segir Grétar og neitar því að vistakstur sé á kostnað tíma því oft sparast jafnvel tími við vistakst- ur. „Flestir komast leiðar sinnar aðeins hraðar með vistakstri án þess þó að það sé verið að fara yfir há- markshraða,“ segir Grétar og bætir við að þetta snúist ekki bara um að keyra hægar og kitla pinnann minna. „En eins og nafnið bendir til snýst þetta fyrst og fremst um umhverfið þar sem reynt er að takmarka mengun með meðvituðu aksturslagi,“ segir Grétar. Kennslan er bæði bókleg og verkleg, og tók Grétar blaðamann í smá kennsluakstur.Fyrst var ekinn einn hringur án nokkurra leiðbeininga frá kennara , svo aftur með leiðbeiningum frá kennara. Kennari les í tölur í sérstakri kennslutölvu sem mælir aksturslag bílstjóra og í þetta sinn minnkaði bensíneyðslan um heil 22% í seinni hringnum, þegar bílnum var ekið vistvænt, en jafnlangan tíma tók að aka hringinn í bæði skiptin. kristineva@frettabladid.is 26. mars 2005 LAUGARDAGUR Aukin ökuréttindi Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika ! Kennt er á leigu-, vöru- og hópferðabifreið, einnig vörubifreið með eftirvagni. Skólinn býður uppá nútíma kennsluaðstöðu og reynda kennara. Innritun alla miðvikudaga, áfangakerfi. Einnig eru í boði námskeið í vistakstri fyrir einstaklinga og hópa. Sími 567-0300 Þarabakka 3 109 Reykjavík Netfang mjodd@bilprof.is www.bilprof.is Hágæða Polyurethane húðun í öllum litum                   Bílunum fylgir toppur, framrúða og segl. Einnig bjóðum við mikið úrval aukahluta. Þeir sem hafa í huga að eignast góðan golfbíl vinsamlegast hafið samband. Akralind 2 201 Kópavogur Sími 565 2000 • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM VISTAKSTUR Komið hefur í ljós að meðalhraði hækkar með hagkvæmari akstri eins og vistakstri. Aftanákeyrslur eru 30% allra umferðaróhappa í þéttbýli. Ef ekinn er vistakstur eru litlar líkur á aftanákeyrslum. Skaðlegu efnin í útblæstri eru eitraðar lofttegundir sem valda heilsufarsvandamálum. Með vistakstri dregur úr útblæstri. Hagkvæmasta leiðin til að hægja ferðina er að gíra niður og láta hreyfilinn draga úr ferð bílsins, ef vélin er með beina inn- spýtingu fellur eyðslan þegar í stað niður í núll. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V AL LI Hjólið þykir of hljóðlátt Mótorhjól sem drifið er af vetni mengar ekki og gefur ekki frá sér neitt hljóð. Fyrsta vetnisdrifna mótorhjólið verið smíðað og var það frumsýnt í London á dögunum. Eina vanda- málið við hjólið sem mengar ekk- ert, er að það er of hljóðlátt og lík- legt er að komið verði fyrir tæki sem gefur frá sér hefðbundin mót- orjólahljóð. En þeir sem berjast gegn hávaða fagna því að á markaðinn komi mótorhjól sem gefur ekki frá sér hin hefðbundnu hávaðasömu vélar- hljóð, en framleiðendurnir segja að hljóð frá hjólinu sé til þess að aðrir vegfarendur verði varir við það. En auðvelt er að slökkva að tækinu sem býr til „mótorhljóðið“. Hjólið mun ná 80 km hraða á klukkustund og getur gengið stans- laust í fjóra tíma áður en endur- hlaða þarf rafhlöðuna. Hjólið mun kosta um 500 þúsund krónur og vatnskenndi útblásturinn er svo hreinn að hægt er að drekka hann. Fyrsta vetnisdrifna mótorhjólið hefur verið kynnt í Bretlandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.