Fréttablaðið - 26.03.2005, Side 39

Fréttablaðið - 26.03.2005, Side 39
27 FUNDIRATVINNA Ingunnarskóli tók til starfa haustið 2001. Í skólanum verða væntanlega um 500 nemendur haustið 2005 og um 68 starfsmenn. Nemendum hefur fjölgað jafnt og þétt og er áætlað að 150 nemendur bætist í hóp- inn næsta haust, þar af um 60 í Sæmundarsel sem staðsett er við Reynisvatn. Í Ingunnarskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, samvinnu nemenda, samkennslu tveggja árganga og samvinnu kennara. Faglegur metnaður ríkir hjá starfs- fólki og áhugaverð þróunarverkefni eru í vinnslu m.a. í listgreinum, þemavinnu, mótun námsmats, útikennslu o.fl. Í skólanum er einnig unnið að því að koma á og góðum aga með því að styrkja jákvæða hegðun. Á komandi skólaári verður unnið að því að gera skólann að lifandi miðstöð í hverfinu m.a. í samvinnu við ÍTR og foreldra. Í haust flytur skólinn í nýtt húsnæði við Maríu- baug en fljótlega hefst undirbúningur að skólabyggingu fyrir Sæmundarsel við Reynisvatn. Auglýst er eftir kennurum og starfsfólki fyrir næsta skólaár sem er tilbúið að taka þátt í metnaðarfullu starfi og samvinnu. Mjög góður starfsandi er í skólanum og stöðugleiki í starfsmannahaldi. Við tökum vel á móti nýju fólki. Kennarar: Lausar eru stöður í 1.-6. bekk og 9.-10. bekk. Mikill áhugi er á að efla náttúrufræðikennslu svo og aðra raungreinakennslu. Listgreinakennarar eru einnig hvattir til að sækja um þar sem áhersla er lögð á samþættingu listgreina við þemavinnu. Skólaliðar: Lausar eru stöður í Ingunnarskóla og Sæmundarseli. Þroskaþjálfar: Lausar eru stöður í Ingunnarskóla og Sæmundarseli. Frekari upplýsingar um skólann er að finna á vefsíðu hans www.ingunnarskoli.is. Ingunnarskóli í Grafarholti skólaárið 2005-2006 Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík, sími: 535 5000, fmr@reykjavik.is Upplýsingar um störfin veitir skólastjóri, Guðlaug Sturlaugsdóttir í síma 585 0400 en umsækjendur eru einnig hvattir til að senda tölvupóst á netfangið ingunnarskoli@ingunnarskoli.is. Umsóknir sendist í Ingunnarskóla, Maríubaugi 1, 113 Reykjavík. Umsóknar- frestur er til 22. apríl nk. Laun samkvæmt kjarasamn- ingum við viðkomandi stéttarfélög. Rimaskóli er einn stærsti grunnskóli borgarinnar og eru nemendur tæplega 800 í 1.-10. bekk. Við skólann starfa um 90 manns. Frá hausti 2005 vantar kennara til starfa við eftirfarandi störf: Almenn kennsla á yngsta stigi og miðstigi. Sérkennsla í námsveri. Enskukennsla í 7. - 10. bekk. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans www.rimaskoli.is. Rimaskóli skólaárið 2005-2006 Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík, sími: 535 5000, fmr@reykjavik.is Upplýsingar um störfin veitir skólastjóri Helgi Árnason í símum 567 6464 og 664 8320. Umsóknir sendist í Rimaskóla, Rósarima 11, 112 Reykjavík. Umsóknar- frestur er til 22. apríl nk. Laun samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Fasteignasalan DP FASTEIGNIR auglýsir eftir vönum sölumanni fasteigna til starfa strax. DP FASTEIGNIR byggja á traustum grunni þekkingar og reynslu DP LÖGMANNA. Æskilegt er að umsækjandi hafi mikla reynslu af sölumennsku. Umsóknir með upplýsingum um menntun, meðmælum og starfsreynslu skal senda auglýsingadeild Fréttablaðsins á netfangið box@frett.is merkt – „Sölumaður fasteigna“ eigi síðar en fyrir þann 4. apríl 2005. Öllum umsóknum verður svarað. DP FASTEIGNIR – Við skoðum, skráum og seljum! Um er að ræða fullt starf með möguleika á yfirvinnu. Á staðnum er mötuneyti og afbragðsgóð aðstaða fyrir starfsfólk. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 1. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir afgreiðslustjóri í síma 569-2322 milli kl. 10:00-12:00. Umsóknareyðublöð liggja frammi á aðalskiptiborði í anddyri hússins að Bitruhálsi 1 en einnig er hægt að senda umsókn á starfsmannahald@ms.is Óskum eftir starfsfólki í afgreiðslu og vörutiltekt. STARFSSVIÐ • Tiltekt og móttaka á vörum. • Skráning og yfirferð. • Uppröðun og frágangur. HÆFNISKRÖFUR • Frumkvæði og sjálfstæði. • Stundvísi og reglusemi. • Lipurð í samskiptum. • Dugnaður og röskleiki. Aðalfundur FIT Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina verður haldinn laugardaginn 2. apríl n.k. kl.10-13 í Akoges-salnum Sóltúni 3 í Reykjavík. Dagskrá: Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða lagabreytingar og breyting á reglugerð félagssjóðs í samræmi við töllögur stjórnar félagsins. Kosnir verða fulltrúar á ársfundi ASÍ og Sameinaða lífeyrissjóðsins. Félagar fjölmennið. Stjórn Félags iðn- og tæknigreina Munið kynningarfundina um nýgerðan kjarasamning fyrir ríkisstarfsmenn. Sjá nánar á heimasíðu FÍN www.bhm.is/fin Stjórn Félags íslenskra náttúrufræðinga Náttúrufræðingar ATHUGIÐ Læknafélag Reykjavíkur Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudagskvöldið 31. mars nk. frá kl. 20-22 í hús- næði læknafélaganna, Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Fundarefni. 1. Samskipti lækna 2. Venjuleg aðalfundarstörf Stjórnin Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði. Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (B.S. prófi) og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári. Styrkupphæð er kr. 500.000,-. Umsóknir skal merkja „námsstyrkur“ og senda til Landssambands íslenskra útvegs- manna, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Umsóknum fylgi upplýsingar um námsferil og námsárangur og stutt greinargerð um fyrirhugað nám. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2005. Nánari upplýsingar veitir dr. Kristján Þórarins- son hjá Landssambandi íslenskra útvegs- manna í síma 591 0300. Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum STYRKIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.