Fréttablaðið - 26.03.2005, Síða 40
28 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
Á horfendur vissu varlahverju þeir áttu von áþegar þeir mættu í Royal
Albert Hall á fimmtudaginn var.
Tónlistarhúsið er eitt það
virtasta í heimi og rúmar um
fimm þúsund manns. Húsið er
vissulega stórt og glæsilegt en
spurning var hvort Stuðmanna-
fjörið sem einkennt hefur sveit-
ina næði að skila sér til þeirra
sem mættir voru, eða eins og
Egill Ólafsson orðaði það: „Þetta
er eins og á góðu balli í Miðgarði
nema það sitja allir stilltir og
prúðir.“
Stuðsýning
Tónleikar Stuðmanna eru oft á
tíðum líkari sýningum en hefð-
bundnum tónleikum. Það sann-
aðist heldur betur í höll Alberts
á fimmtudag. Þorsteinn Steph-
ensen tónleikahaldari byrjaði á
því að bjóða áhorfendur vel-
komna og kynnti því næst sjálfa
drottningu Englands til leiks við
mikið lófaklapp og hlátrasköll
tónleikagesta. Drottningin veif-
aði til fjöldans í fullum skrúða
áður en hún settist niður í hinni
konunglegu stúku. Hún hafði
hægt um sig vel framan af en
hún átti eftir að setja mark sitt á
tónleikana svo um munaði áður
en yfir lauk.
Eftir kynningu hennar hátign-
ar lék Jakob Frímann hljóm-
sveitarstjóri á staðarorgelið og
undirbjó þannig innkomu fjall-
konunnar sem Brynja X. Vífils-
dóttir túlkaði með ágætum.
Um þrjú þúsund manns voru
saman komnir í salnum og taldist
kynninum til að helmingurinn
væri heimamenn en hinn helm-
ingurinn Íslendingar. Til að sann-
reyna það byrjaði hann á sígild-
um partíleik þar sem hann lét
heimamenn og gesti kalla nafn
lands síns eins hátt og þeir
mögulega gátu. Það var ekki sök-
um að spyrja, gestirnir höfðu
betur og nafn Íslands gall mun
hærra við. Að partíleiknum lokn-
um var komið að stóru stundinni
– Stuðmenn stigu á svið.
Hægt af stað
Þótt Stuðmenn beri nafn með
rentu fóru þeir frekar rólega af
stað. Ný lög voru í forgangi
svona rétt til að hita mannskap-
inn upp en þeim óx ásmegin eftir
því sem á leið. Þegar eldri og
kannski þekktari lög fóru að
hljóma voru áhorfendur ekki
lengi að taka við sér – stóðu á
fætur og dilluðu sér í takt við
tónana. Stuðmenn léku af krafti
og fóru gestir vel heitir í hlé.
Eitt aðaleinkenni Stuðmanna
hefur um árabil verið nýir og oft
á tíðum ansi skrautlegir búning-
ar sem setja skemmtilegan svip
á sveitina. Stuðmenn skörtuðu
tvenns konar búningum í Royal
Albert Hall. Fyrst voru þeir
klæddir í kóngabláa hermanna-
búninga en í stað buxna voru
þeir í samlitum pilsum og á bak-
inu blöstu við auglýsingar frá
hinu konunglega lyftidufti. Eftir
hlé var Ísland í aðalhlutverki og
Stuðmenn komnir í Henson-galla
í fánalitunum.
Drottningardans
Stuðmenn byrjuðu eins eftir hlé
og fyrir. Þeir fóru hægt af stað
en gáfu svo í og það var ekki sök-
um að spyrja. Ungir sem aldnir
hristust úr sætum sínum og
dönsuðu og sungu með.
Ragnhildur Gísladóttir og
Egill Ólafsson fóru á kostum í
söng og sama var að segja af
sjálfri sveitinni sem fékk stuðn-
ing blásturssveitar og tveggja
gógó-pía sem skutu upp kollinum
af og til. Þegar fór að líða að lok-
um tónleikanna bættist Stuð-
mönnum óvæntur liðsauki.
Drottningin sjálf og Ringo Starr,
sem hafði að vísu skotið upp koll-
inum á miðjum tónleikum,
mættu á sviðið til að þakka fyrir
sig. Hljómsveitin tók þeim með
virtum en hélt fjörinu áfram.
Drottningin og Ringo brugðust
vel við og dönsuðu með þeim eitt
lag. Það þarf þó vart að taka
fram að um tvífara hennar há-
tignar og Bítilsins var að ræða
en þau settu svo sannarlega
skemmtilegan svip á sýninguna.
Með síðustu lögum kvöldsins
var Sísí fríkar út og fleiri stuð-
lög. Áhorfendur voru löngu
staðnir upp úr sætum sínum og
dönsuðu og sungu hástöfum með.
Eftir hvert uppklappið af fætur
var komið að Sigurjóni digra sem
kvaddi kvöldið með stæl.
Stuðmenn sýndu það og sönn-
uðu að það skiptir ekki máli hvar
partíið er, Miðgarður eða Royal
Albert Hall, alls staðar er hægt
að slá upp ekta íslensku sveita-
balli. ■
Ekta íslensk fönn
Um þrjú þúsund manns voru saman komnir í Royal Albert Hall í Lundúnum á
fimmtudag til að hlýða á tónleika Stuðmanna. Kristján Hjálmarsson komst að
því að Stuðmenn kunna sitt fag bæði heima og að heiman.
KONUNGLEGT STUÐ Elísabet Englandsdrottning á fast sæti í Royal Albert Hall en lét þó ekki sjá sig á Stuðmannatónleikunum. Stuðmenn létu það þó ekkert á sig fá og mættu með staðgengil hennar hátignar.
ERU EKKI ALLIR Í STUÐI? Það breytir engu hvort Stuðmenn drepa niður fæti á Kópa-
skeri, í Reykjavík eða London. Stuðið er alltaf það sama og það var enginn svikinn í Royal
Albert Hall á skírdag.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN OG JÓHANNES JÓNSSON Í BÓNUS Skemmtu sér konung-
lega í Royal Albert Hall.