Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 26. mars 2005 29
20
05
fia› er vor í lofti í Flugstö› Leifs Eiríkssonar.
Dagana frá 15. til 28. mars ver›a verslanir á
svæ›inu me› spennandi tilbo› á ‡msum vörum.
Allir farflegar, sem mæta í innritun fyrir kl. 6
a› morgni, fá páskagjöf og njóta sértilbo›a í
verslunum flugstö›varinnar.
– sérstakur gla›ningur fyrir árrisula
tilbo›sdagarí Leifsstö›
fieim sem mæta á einkabílum fyrir kl. 6 b‡›st a› geyma bílinn
frítt í tvo sólarhringa á bílastæ›i Securitas.
fieir sem taka rútu Kynnisfer›a kl. 5.00 fá 15% afslátt.
Páskagjöfin er afhent í innritunarsal
og í afgrei›slu Securitas á bílastæ›um.
Athugi› a› innritun hefst kl. 5.00.
AF HVERJU LÝSA SJÁLF-
LÝSANDI ARMBÖND OG
ANNAÐ ÞESS HÁTTAR?
Svar: Sjálflýsandi armbönd og
„annað þess háttar“ byggja á efna-
hvörfum sem leiða til útgeislunar
frá orkuríkum sameindum eða
frumeindum. Slíkt nefnist hvarf-
ljómun (e. chemilumine-scence).
Útvermin efnahvörf
Svonefnd útvermin (e. exo-
thermic) efnahvörf valda orku-
myndun jafnt sem nýmyndun
efna. Dæmi um slík efnahvörf er
til dæmis bruni þar sem orkan
losnar öðru fremur á formi
varmaorku sem við skynjum sem
hita. Til er fjöldi útverminna efna-
hvarfa, þar sem orkan losnar hins
vegar á formi ljósorku. Undanfari
ljósorkulosunar í efnahvörfum er
myndun efniseinda (sameinda eða
frumeinda) á orkuríku formi.
Slíkar eindir eru skammlífar og
tapa orku sinni skjótt á formi
ljósorku. Þetta nefnist hvarf-
ljómun. Ýmis efnahvörf sem eiga
sér stað við bruna eru einmitt
dæmi um slíkt. Ljósorkan sem þá
losnar birtist okkur sem logi.
Hvarfljómun
Sjálflýsandi armbönd og náskyld-
ir hlutir, svo sem glóstautar (e.
glow sticks) eða lýsandi hálsmen,
byggja á hvarfljómun. Ljómunin
er gjarnan mynduð með þeim
hætti að vökvalausnum með
hvarfefnum er blandað saman
inni í plasthulsum. Til dæmis
samanstendur glóstautur af
vökvafylltum glersívalningi innan
í vökvafylltri plasthulsu (sjá
mynd). Þegar plasthulsan er
beygð brotnar glersívalningurinn
og lausnirnar tvær blandast.
Efnin í lausnunum tveimur
hvarfast þvínæst og hvarfljómun-
in verður sýnileg. Litur hvarf-
ljómunarinnar er háður efnasam-
setningu lausnanna.
Umframorka í formi ljósorku
Þegar efni í lausnunum tveimur
(til dæmis A og B) hvarfast,
myndast orkuríkar eindir (sam-
eindir eða frumeindir, til dæmis
C*). Þessar orkuríku eindir lifa
einungis í örskamma stund og
tapa umframorku sinni í formi
ljósorku sem mannsaugað
skynjar sem lit. Þetta má tákna al-
mennt með eftirfarandi hætti:
A + B –> C* + D
C*- –> C + ljós
Peroxíð og lífræn litarefni
Meðal efna sem algengt er að nota
í slíkri hvarfljómun eru peroxíð
(efnatákn: H2O2) og ýmis lífræn
litarefni. Viðkomandi efnahvörf
losa úr læðingi orku úr efnatengj-
um peroxíðs og valda orkuörvun
litarefnasameindanna sem ljóma
eftir það. Litur ljómunarinnar
ræðst þá af samsetningu litar-
efnasameindanna.
Ágúst Kvaran, prófessor í
efnafræði við HÍ.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
HVARFLJÓMUN Sjálflýsandi armbönd og náskyldir hlutir, svo sem glóstautar (e. glow
sticks) eða lýsandi hálsmen, byggja á hvarfljómun.
Sjálflýsandi armbönd
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Meðal
spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis: Hverjir voru helstu
guðir Súmera, hvað er eiginlega vitlausa beinið, er löglegt að framleiða djarfar fullorð-
insmyndir á Íslandi, hvernig er best að byggja upp gott sjálfstraust, hvað var spánska
veikin, hvað er Genfarsáttmálinn og er bannað að borða sitt eigið hold? Hægt er að lesa
svörin við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum með því að setja efnisorð inn í
leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
HVAÐAN ER ORÐATILTÆKIÐ
„Í GRÍÐ OG ERG“ KOMIÐ?
Svar: Kvenkynsorðið gríð merkir
„ákafi, áfergja“ og er skylt orðinu
gríður sem var í fornu skáldamáli
notað sem tröllkonuheiti, meðal
annars í kenningum. Með gríðar
stóði, gríðar grástóði og gríðar
fákum er til dæmis átt við úlfa í
kveðskap.
Tröllkonan Gríður
Gríður hét einnig tröllkona sú
sem Þór átti soninn Viðar með
samkvæmt Snorra-Eddu. Gríðar-
er algengur herðandi forliður um
eitthvað mikið, til dæmis í gríðar-
stór, gríðarmikill, gríðarlegur.
Orðið gríð er notað eitt og sér
Gríð eitt sér þekkist vel. Til
dæmis er talað um að vinna í gríð,
yrkja í gríð, drekka í gríð og svo
framvegis og er merkingin „af
kappi, í ákafa“. Orðasambandið í
gríð og erg virðist ekki gamalt í
málinu. Elstu dæmi Orðabókar
Háskólans eru frá því snemma á
20. öld. Heldur eldri eru í gríð og
ergju, í gríð og ergi, í gríð og
kergju og í erg og gríð. Kvenkyns-
orðið ergi merkir „geðvonska;
ákafi“ og ergja „gremja; ákafi,
ágirnd“ í nútímamáli en í fornu
máli merkti ergi einnig „losti,
bleyði, samkynhneigð (karla).“
Orðið erg kemur ekki fyrir sjálf-
stætt
Gríð og ergi eða ergja merkja
nánast hið sama en slíkt er ekki
óalgengt í orðasamböndum og er
notað til áherslu. Orðið erg kemur
ekki fyrir sjálfstætt og er aðeins
þekkt úr orðasambandinu. Í gríð
og kergju er sennilega þannig til
orðið að ergi eða ergja hefur ekki
verið mönnum tamt og er þá
gripið til orðs sem talið er geta
skýrt sambandið. Kergja merkir
ëþrjóska, tregða.
Guðrún Kvaran, prófessor og
forstöðumaður Orðabókar
Háskólans
Í gríð og erg
ÞEGAR MIKIÐ LIGGUR VIÐ
NEYÐARAÐSTOÐ
Slysa-og bráðamóttaka á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi í Fossvogi er opin all-
an sólarhringinn alla páskahelgina og
sinnir neyðartilfellum. Síminn þar er 543
2000.
HEILSUGÆSLA
Læknavakt heilsugæslunnar á höfuð-
borgarsvæðinu er með móttöku á
Smáratorgi kl. 9-23.30 yfir páskahelgina
og vitjanaþjónustan er opin allan sólar-
hringinn. Síminn er 1770.
Neyðarlínan svarar fyrir slökkvilið,
sjúkrabifreiðir og lögreglu um allt land í
síma 112.
1717 er sími Vinalínunnar og Rauða
krossins. Þar er svarað allan sólarhring-
inn um páskana sem aðra daga í síma
1717.
Stígamót: Lokað yfir páskana.
SÁÁ, Afgreiðslan á Vogi og göngu-
deildir: Lokað yfir páskahelgina.
Kvennaathvarf: Opið allan sólarhring-
inn á páskahátíð. Síminn er 561 1205
TANNLÆKNAÞJÓNUSTA
Tannlæknar eru með neyðarvakt í dag
og yfir páskana á milli kl. 11-13 eins og
hér segir:
Laugardagur Bjarni Sigurðsson Faxafeni
11, Reykjavík sími 588-8866
Páskadagur Birgir Ólafsson Melhaga
20-22, Reykjavík sími 557-7791
Annar í páskum Hlynur Þór Auðunsson
Hamraborg 5, Kópavogi sími 564-2660
APÓTEKIN
Lyfja í Lágmúla og á Smáratorgi. Opið
milli 8 og 24 alla páskahelgina.
STÓRMARKAÐIR
10-11:
Laugardagur: Opið kl. 9-24
Páskadagur: Lokað en opnað um mið-
nætti í Lágmúla, Staðarbergi, Hafnarfirði
og Akureyri.
Annar í páskum: Opið kl. 9-24 nema í
ofantöldum verslunum þar sem opið er
allan sólarhringinn.
11-11:
Laugardagur: Opið milli kl. 9 og 11
nema hvað verslanir í Gilsbúð í Garða-
bæ og Brekkuhúsum í Grafarvogi opna
kl. 8.
Páskadagur: Lokað en opnað á Skúla-
götu um miðnætti.
Annar í páskum: Opið milli kl. 9 og 11
nema hvað verslanir í Gilsbúð í Garða-
bæ og Brekkuhúsum í Grafarvogi opna
kl. 8 og á Skúlagötu er opið allan sólar-
hringinn.
BÓNUS:
Laugardagur: Opið kl. 10 til 18.
Páskadagur: Lokað.
Annar í páskum: Opið í sunnudagsbúð-
um frá kl.12 til 18, þ.e. í Reykjanesbæ,
Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði,
Borgarnesi, Mosfellsbæ, Grafarvogi,
Holtagörðum, Kringlunni, Smáratorgi,
Hraunbæ, Hafnarfirði, Hveragerði, Sel-
tjarnarnesi, Stykkishólmi og Smiðjuvegi.
EUROPRIS:
Laugardagur: Opið milli 11 og 18
Páskadagur: Lokað.
Annar í páskum: Opið milli 11 og 18.
FJARÐARKAUP:
Laugardagur: Opið milli kl. 10 og 17.
Páskadagur og annar í páskum Lokað.
HAGKAUP:
Laugardagur: Opið milli kl. 10 og 18.
Páskadagur: Lokað
Annar í páskum: Opið milli kl. 12 og 18
nema lokað í Kringlunni.
KRÓNAN:
Laugardagur: Opið milli kl. 11 og 19.
Páskadagur og annar í páskum: Lok-
að.
NETTÓ:
Laugardagur: Opið milli kl. 10 og 18
nema í Kópavogi er opið til kl. 20.
Páskadagur: Lokað
Annar í páskum: Opið milli kl. 10 og 18
nema í Kópavogi er opið til kl. 20.
SAMGÖNGUR
Strætó bs.
Laugardagur: Ekið samkvæmt laugar-
dagsáætlun.
Páskadagur:Akstur hefst um kl. 13.00
og ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Annar páskadagur: Akstur eins og á
sunnudögum.
Flugfélag Íslands:
Laugardagur: Flogið samkvæmt áætlun
vítt og breitt um land.
Páskadagur: Ekkert flug.
Annar í páskum: Flogið samkvæmt
áætlun.
Herjólfur:
Laugardagur: Ein ferð hvora leið milli
Þorlákshafnar og Vestmannaeyja.
Páskadagur: Engar ferðir.
Annar í páskum: Tvær ferðir hvora leið
milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja.
Sérleyfishafar á BSÍ:
Laugardagur: Ekið samkvæmt tímatöflu
og aukaferð til Akureyrar
Páskadagur: Ein ferð milli Akraness/
Borgarness og Reykjavíkur og ein ferð
milli Reykjavíkur og Selfoss.
Annar í páskum: Ekið samkvæmt helg-
aráætlun.
Afgreiðslutímar um páskana