Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.03.2005, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 26.03.2005, Qupperneq 46
34 26. mars 2005 LAUGARDAGUR SIGURINN Á EM TOPPURINN Á FERLINUM Handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson hefur dvalið í Noregi undanfarin tuttugu ár. Selfyssingurinn, sem ætlaði sér aldrei að ílengj- ast í Noregi, er nú aðstoð- arþjálfari hjá norska kvennalandsliðinu, einu besta landsliði heims undanfarin tuttugu ár. Hann hefur aldrei þjálfað á Ís- landi og er sennilega ekki þekkt- asti handboltaþjálfari á landinu en hann er gífurlega virtur í Nor- egi og hefur meðal annars skrifað undir nýjan fjögurra ára samning um að vera áfram aðstoðarþjálf- ari hjá kvennalandsliðinu. Frétta- blaðið ræddi við Þóri á dögunum um þjálfaraferilinn, handboltann í Noregi og stöðu íslensks kvenna- handbolta. Fyrsta verkið var þó að kynna lesendur fyrir manninum. Hver er þessi Þórir Hergeirs- son? „Þórir Hergeirsson er Selfyss- ingur sem hélt utan til Noregs árið 1986 til að læra íþróttafræði við Íþróttaháskólann í Osló. Hann ætlaði bara að vera þar í tvö ár en svo bætti hann við einu ári. Eftir það fékk hann þjálfarastöðu hjá karlaliði Elverum sem var þá í þriðju deildinni og komst með upp í fyrstu deild á fimm árum. Eftir það réð hann sig til starfa hjá norska handknattleikssamband- inu árið 1994 og hefur verið þar síðan, fyrst sem þjálfari yngri landsliða kvenna og síðan sem að- stoðarþjálfari kvennalandsliðsins frá 2001,“ sagði Þórir sem var ein aðalsprautan í handknattleiknum á Selfossi áður en hann fór út tutt- ugu og tveggja ára gamall. Þokkalegur leikmaður en betri þjálfari „Við vorum nokkrir sem vorum allt í öllu hjá félaginu og ég hafði gengið í öll verk þegar ég fór út, spilað, þjálfað og verið í stjórninni. Ég hætti fljótlega að spila eftir að ég kom út og ein- beitti mér að þjálfun en það er ekki laust við að ég sjái eftir því í dag að hafa hætt svona snemma,“ sagði Þórir. Hann telur sig hafa verið þokkalegan leikmann – ekki mikið meira en það – og aðspurð- ur segist hann vera töluvert betri þjálfari. Þórir hefur verið viðloðandi norsku kvennalandsliðin undan- farin ár og hann sagði tímann hafa liðið hratt. „Þetta er búið að líða hratt, ég hef verið viðloðandi A-liðið allar götur síðan 1995 því þjálfarar allra landsliðanna vinna þétt saman. Marit Breivik tók við A-liðinu árið 1994 og hefur stýrt því síðan. Ég hef aðstoðað hana undanfarin fjögur ár og það hefur verið frábær tími,“ sagði Þórir, enda í öfundsverðu hlutverki sem þjálfari besta kvennalandsliðs í Evrópu. Norsku stúlkurnar tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn í hand- knattleik í Ungverjalandi í desem- ber og Þórir sagði það tvímæla- laust stærstu stundina á þjálfara- ferlinum. „Við höfðum tapað tveimur úrslitaleikjum á undan, gegn Rússum á HM 2001 og gegn Dönum árið 2002. Núna small hins vegar allt og þetta var alveg frá- bær tilfinning.“ Tilbúinn til að taka við norska liðinu Eins og fram hefur komið skrifaði Þórir undir nýjan fjög- urra ára samning við norska sam- bandið og hann sagði það hæpið að hann væri á leiðinni heim í bráð. „Ég er kominn með norska konu og við erum búin að koma okkur vel fyrir hér. Mín bíða spennandi verkefni hér, starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og á meðan svo er þá er engin ástæða til að breyta til,“ sagði Þórir, sem neitaði því ekki að draumurinn væri að taka við sem aðalþjálfari norska kvennalandsliðsins. „Ég tel mig vera tilbúinn til þess að taka við þessu liði og myndi ekki skorast undan ef til mín væri leitað. Ég hef þjálfað flestar stelpurnar í lið- inu í yngra landsliðinu og þekki þær því mjög vel en ég er ánægð- ur eins og er og ætla ekki að sækj- ast eftir breytingum.“ Mikil framför Þórir sagði að íslenskur kvennahandbolti væri í mikilli framför um þessar mundir og það væri gleðilegt hversu mikil áhersla væri lögð á tækni og leik- skipulag á meðal yngri leik- manna. Íslenskur kvennahand- bolti stendur þeim norska tölu- vert að baki og Þórir sagði hefðina skipta miklu máli í því sambandi. „Norska kvennalandsliðið hefur verið á meðal fjögurra bestu þjóða heims undanfarin tuttugu ár. Liðið kom upp á hár- réttum tíma þar sem öll liðin í Austur-Evrópu voru í niður- sveiflu. Það var eytt miklum pen- ing í liðið og það hefur skilað sér. Íslenska kvennalandsliðið getur komist langt en til þess að svo verði þá þurfa íslensku stelpurnar að bæta líkamlegan styrk og það sem er jafnvel enn mikilvægara, þær þurfa að spila leiki gegn bestu þjóðum og félagsliðum heims. Þannig bæta leikmenn sig en það kostar hins vegar peninga og ég veit ekki hversu mikið fjár- hagslegt bolmagn HSÍ hefur. Það er rándýrt að vera með landslið í fremstu röð.“ Hrifinn af Önnu Úrsúlu Aðspurður um íslenska leik- menn sagðist Þórir vera mjög hrifinn af Önnu Úrsúlu Guð- mundsdóttur, línumanni Gróttu/KR. „Hún er ung, stór og sterk og hefur alla burði til að verða frábær leikmaður. Ég tel að hún gæti spilað í norsku eða dönsku deildinni en vandamálið fyrir hana er að það er nóg til af línumönnum hér í Noregi og því leita lið frekar út fyrir landstein- ana að skyttum. Ég er hins vegar viss um að hún mun fara út á næstunni því það er nauðsynlegt fyrir hana. Hún verður að spila á móti þeim bestu til að taka fram- förum og það á auðvitað við um alla leikmenn íslenska landsliðs- ins,“ sagði Þórir. oskar@frettabladid.is SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > ÞÓRIR HERGEIRSSON Ég er kominn með norska konu og við erum búin að koma okkur vel fyrir hér, starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og á meðan svo er þá er engin ástæða til að breyta því. ,, ÞÓRIR HERGEIRSSON Handboltaþjálfarinn sem haldið hefur til í Noregi undanfarin tuttugu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANNA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.