Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 26. mars 2005
Íslendingar töpuðu naumlega fyrir Króötum í viðureign ungmennalandsliðanna:
Sorglegt tap staðreynd
FÓTBOLTI ,,Ég er afar ánægður og
stoltur með strákana. Þeir léku
frábærlega vel en því miður náð-
um við ekki að innbyrða stig sem
við áttum sannarlega skilið,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21
árs landsliðs Íslands, við Frétta-
blaðið í Zagreb í gær eftir að Ís-
lendingar töpuðu fyrir Króatíu,
2-1, í undankeppni HM.
Króatar höfðu unnið alla þrjá
leiki sína í riðlakeppninni en Ís-
lendingar tvo og tapað tveimur. Ís-
lenska liðið spilaði feikilega vel
skipulagðan varnarleik sem
Króatar lentu í vandræðum með.
Völlurinn var erfiður yfirferðar,
breyttist í hálfgert drullusvað, en
Eyjólfur sagði að það hefði frekar
komið niður á sínum mönnum,
sem flestir hafa verið að æfa á
gervigrasi í vetur.
Sigmundur Kristjánsson skor-
aði fyrir Ísland á 41. mín. beint úr
aukaspyrnu utan af kanti. Tyrk-
neskur dómari leiksins dæmdi
markið af þar sem um óbeina
aukaspyrnu var að ræða og sagði
að enginn hefði snert boltann á
leiðinni í markið. Ólafur Ingi
Skúlason fyrirliði sagði við Frétta-
blaðið að dómurinn hefði verið
fáránlegur, ekki ætti að dæma
óbeina aukaspyrnu fyrir venjulegt
leikbrot úti á velli auk þess sem
Sölvi Geir Ottesen snerti boltann á
leiðinni í markið. Eyjólfur tók
undir þetta og sagðist engan
veginn átta sig á því hvað dómar-
inn var að fara.
En tveimur mínútum síðar kom
Ingvi Rafn Guðmundsson Íslend-
ingum yfir, hann slapp einn í gegn
eftir snilldarsendingu Hannesar
Þ. Sigurðssonar og lagði boltann
snyrtilega í nærhornið. En í upp-
bótartíma í fyrri hálfleik náðu
Króatar að jafna metin eftir horn-
spyrnu frá bakverðinum Neven
Vukman. ,,Það var gríðarlegt áfall
að fá þetta mark á sig. Hugsanlega
var þetta vendipunktur í leikn-
um,“ sagði Ólafur Ingi.
Hannes hóf síðari hálfleikinn á
því að þruma boltanum í utanverða
stöngina af stuttu færi. Þá skallaði
Tryggvi Bjarnason yfir markið úr
dauðafæri. En um miðjan hálfleik-
inn gerðu Króatar breytingar á lið-
inu sínu og breyttu úr 4-4-2 í 3-5-2.
Þetta gerði gæfumuninn því eftir
fyrirgjöf af hægri vængnum skor-
aði varamaðurinn Mladen Bartu-
lovic sigurmarkið 10 mínútum fyr-
ir leikslok. Hannes brenndi af
góðu færi á lokamínútu leiksins og
Króatar fögnuðu sigri og eru með
fullt hús stiga, eða 12.
Besti maður Króata, Eduardo
Da Silva, sem er Brasilíumaður og
fékk króatískt vegabréf fyrir fjór-
um árum, lék ekki með ungmenna-
liði Króatíu. Hann er einnig í A-
landsliðshópnum og talið að hann
verði jafnvel í byrjunarliðinu í
dag. Sölvi Geir Otteson, Tryggvi
Bjarnason, Davíð Þór Viðarsson og
Hannes Þ. Sigurðsson voru bestu
menn íslenska liðsins. Ingvi Rafn
átti góða spretti en vandamál ís-
lenska liðsins var að of mikið lak í
gegnum bakverðina. Engu að síður
geta strákarnir borið höfuðið hátt
þrátt fyrir tapið.
thorsteinn.gunnarsson@365.is
BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS:
Eyjólfur notaði leikkerfið 4-4-1-1:
Bjarni Þórður Halldórsson; Steinþór
Gíslason, Tryggvi Bjarnason, Sölvi Geir
Ottesen, Gunnar Þór Gunnarsson; Ingvi
Rafn Guðmundsson, Davíð Þór
Viðarsson (Pálmi Rafn Pálmason),
Ólafur Ingi Skúlason (Hjálmar
Þórarinsson), Emil Hallfreðsson;
Sigmundur Kristjánsson (Viktor B.
Arnarsson); Hannes Þ. Sigurðsson.
GRÍÐARLEG VONBRIGÐI Vonbrigðin leyndu sér ekki á Eyjólfi Sverrissyni og lærisvein-
um hans í u-21 árs landsliði Íslands er þeir gengu af velli eftir tapið gegn Króatíu í gær.
Fréttablaðið/Böddi