Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 48
26. mars 2005 LAUGARDAGUR
Það hefur verið gam-
an að fylgjast með
ferli stórleikarans
John Travolta undan-
farin ár. Sérlega
ánægjulegt var það
þegar hann reis upp úr
öskustónni með frá-
bærum leik sínum í
hinni mögnuðu Pulp Fict-
ion eftir Quentin Tarantino fyrir
rúmum tíu árum. Ferill hans hafði
verið í mikilli lægð og ekki burðug
hlutverk sem bárust honum. Tar-
antino gaf honum þá draumahlut-
verkið sem opnaði í framhaldinu
fyrir honum allar dyr í Hollywood.
Travolta leikur nánast alltaf
ákveðnar persónur sem láta ekki
ganga yfir sig. Hann er góður leik-
ari og maður trúir nánast öllu sem
hann er að reyna að koma til skila.
Nýlega las ég kynningarbækling
fyrir nýjustu mynd hans, Be Cool,
þar sem hlaðið var á hann lofi
fyrir allt sem hann hefur komið
nærri. Það er þó ekki sannleikan-
um samkvæmt því Travolta, eins
og flestir aðrir leikarar, hefur gert
allnokkur glappaskot á ferli sínum.
Helst ber að nefna Battlefield
Earth sem var ofarlega á flestum
listum yfir verstu myndir allra
tíma. Var hún það vond að eftir að-
eins 20 mínútur var ég farinn að
hrjóta.
Travolta reif sig þó upp eftir
það og virðist vera að gera ágætis
hluti þessa dagana. Hann á alltént
nógan pening og á meðal annars
tvær þotur sem hann parkerar
fyrir utan glæsivillu sína. Hjóna-
band hans stendur einnig traustum
fótum í dag og þakkar Travolta það
hjónabandsráðgjöf tvisvar sinnum
á ári undanfarin 12 ár. Nýlega
sagðist hann líka hafa gengið í há-
loftaklúbbinn og stundað kynlíf
með eiginkonu sinn í annarri af
þotum sínum. Já, þetta er magnað-
ur náungi og vonandi heldur hann
vinsældum sínum um ókomin ár.
Þrátt fyrir að lifa glæsilegu lífi
er hann aftur á móti ekki fullkom-
inn eins og hlutverkaval hans og
tíðar ferðir til hjónabandsráð-
gjafa segja til um. Það er heldur
enginn fullkominn eins og allir
vita, ekki einu sinni Hollywood-
stjörnurnar.
STUÐ MILLI STRÍÐA
FREYR BJARNASON SKRIFAR UM FERIL HOLLYWOOD-STJÖRNUNNAR JOHN TRAVOLTA
Enginn er fullkominn
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
GNOÐARVOGI 44
Gleðilega
páska!
Opið í dag
10-13
Stangarhyl 3 · 110 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri Sími: 461 1099
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Salou
Fjölskylduparadísin suður af Barcelona
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, um 100 km sunnan við
Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Bærinn skartar stórkostlegum ströndum, fjölbreyttri aðstöðu og einstöku veðurfari.
Ströndin er breið og aðgrunn með fínum gylltum sandi og því tilvalin fyrir barna-
fjölskyldur. Menning, verslanir og litríkt næturlíf taka síðan við þegar sólböðum
líkur. Salou er sérstaklega skemmtilegur sumarleyfisstaður fyrir fjölskyldur.
10.000 kr.
afsláttur ef þú bókar strax.
Tryggðu þér lægsta verðið.
Frábært verð
Kr. 45.595
M.v. Hjón með 2 börn á California íbúðahóteli.
20. maí, 5 dagar.
Netverð með 10.000 kr. afslætti.
Kr. 52.995
M.v. Hjón með 2 börn á California íbúðahóteli.
20. maí, 12 dagar.
Netverð með 10.000 kr. afslætti. • Stærsti skemmtigarður Spánar
• Afþreying og skemmtun
• Úrval veitingastaða
• Stórkostleg strönd
• Frábært að versla
Nú bóka
r þú bein
t á
www.ter
ranova.is
NÝTT
Stórar íb
úðir fyrir
barnafjöl
skyldur
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
15
73
1
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
Já, þau eru
sæt þegar
þau eru lítil.
Þú skalt passa
þig á þeim tímum!
Í dag var ég
sekúndubroti
frá því að
murka lífið úr
gamalli konu!
Keyri
strætó....
kannast
við tilfinn-
inguna.