Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 52
40 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
Bækur hafa frá upphafi þótt við-
eigandi fermingargjafir og bók
reyndar einn af fylgihlutum
fermingarskartsins, sem er
sálmabók í hendi. Ekkert lát er á
vinsældum bóka til fermingar-
gjafa og þykja þær enn verðugt
veganesti þegar barnæskunni
sleppir. „Í raun er athyglisvert
hve bækur ná að halda sínu, mið-
að við æ stórtækari fermingar-
gjafir,“ segir Þorgerður E. Sig-
urðardóttir bókmenntafræðingur
og vörustjóri íslenskra bóka hjá
Pennanum. „Þorri þeirra sem
velja bækur til gjafa eru þeir sem
þekkja fermingarbarnið minnst,
því nánustu aðstandendur eyða
orðið mun stærri upphæðum í
fermingargjafir.“
Auglýsingar í fermingarpakkana
Þorgerður segir bókargjöf í senn
vera viðráðanlega og veglega
gjöf, en algengt andvirði bóka í
fermingarpakka er fjögur til tíu
þúsund krónur.
„Dýrari bækur fara líka og
ýmis ritsöfn eins og Íslendinga-
sögurnar. Orðabækur eru sívin-
sælar og sennilega söluhæstar ef
þær væru teknar saman, en úr-
valið er svo mikið að einstaka
orðabók nær ekki inn á metsölu-
lista. Af söluhæstu bókum til
fermingargjafa nú eru Vísinda-
bókin, Íslandssaga A til Ö, Sögu-
atlas, Íslenskur stjörnuatlas og
Orð í tíma töluð, sem geymir
fleyg orð og setningar. Þá seljast
afmælisdagabækur alltaf í kring-
um fermingar,“ segir Þorgerður
og nefnir einnig erlendar útgáfur
orða- og fræðibóka.
„Erlendar bækur eru í æ meira
mæli að stimpla sig inn hjá Ís-
lendingum, bæði til gjafa og eigin
nota. Þekkt orðabókamerki eins
og Oxford þykja ekki síður virðu-
leg í fermingarpakkana.“
Séu sölulistar orðabóka skoð-
aðir selst ensk-íslensk mest og
þar á eftir íslensk orðabók og
dönsk-íslensk. Tölvuorðabækur,
sem seldust grimmt til ferming-
argjafa í fyrra seljast eitthvað
minna nú.
„Útgáfurnar hafa ekki auglýst
tölvuorðabækur jafn mikið og í
fyrra, og slíkt helst stíft í hend-
ur,“ segir Þorgerður. „Þær bækur
sem eru auglýstar ná beint til
kaupenda meðan aðrar gleymast.
Auglýsingar Eddu á afslætti á Ís-
lendingasögum, Söguatlasi, Ís-
lenskri orðabók og Ritsafni
Snorra Sturlusonar hafa skilað
mikilli sölu og sýna að þær bækur
tróna efstar á listum fyrir vikið.
Auglýsingar skila sér því tví-
mælalaust í pakka fermingar-
barna.“
Nytsamlegar bókagjafir á uppleið
Ritsafn Snorra Sturlusonar er
efst á metsölulista skáldverka
þessa vikuna. Á eftir koma Ís-
lendingasögurnar.
„Íslensk ungmenni hafa meiri
áhuga á Íslendingasögum en áður,
kannski sökum þess að þau hafa
lesið Hringadróttinssögu og lang-
ar að lesa fleiri langar, epískar
sögur. Mér finnst sú þróun í góð-
um farvegi. Margar af þeim bók-
um sem lenda í fermingarpökkum
geymast til ára þegar þroski og
aldur er orðinn meiri. Þar nefni
ég sígildar bókmenntir og höfuð-
skáld, eins og Sjálfstætt fólk og
Heimsljós Halldórs Laxness,
Stórbók Þórbergs Þórðarsonar og
Ljóðasafn Tómasar Guðmunds-
sonar, sem virðist höfða sterkt til
fólks á öllum tímum. Steinn Stein-
arr hefur jafnan farið af stað yfir
fermingartímann, en ekki núna.
Þá seljast Passíusálmar og Spá-
maðurinn alltaf vel.“
thordis@frettabladid.is
ÞORGERÐUR E. SIGURÐARDÓTTIR, BÓKMENNTAFRÆÐINGUR Segir Íslendinga
aðeins farna að kaupa bækur til fermingargjafa sem nýtast meira aldursskeiði fermingar-
barnsins, þótt sígildar bókmenntir og ekki síst orðabækur hafi enn þá vinninginn.
Bók er vegleg og góð gjöf
„Það er auðvitað glæpur
að stela og afskaplega
mikil ókurteisi. En eins
og með flesta ókurteisi
er hún afsakanleg við
sérstakar aðstæður.“
- Spekin og gullkornin fyrirfinnast nánast á
hverri síðu bókarinnar Stóri glugginn sem
er þriðja bókin Úr Bálki hrakfalla eftir
Lemony Snicket.
baekur@frettabladid.is
>
Jim
C
ar
re
y
Vinsældir spennusögunnar Da Vinci lykillinn eftir Dan Brown hafa farið fyrir
brjóstið á þeim sem ráða ríkjum í Páfagarði og þar á bæ hafa menn nú snúið
vörn í sókn. Ítalska kardínálanum Tarcisio Bertone hefur verið falið að hrekja
meintar lygar og staðreyndarvillur í verki Browns. Bertone er þungavigtarmaður
og talinn hugsanlegur eftirmaður Jóhannesar Páls páfa þannig að það má öllum
vera ljóst að Da Vinci lykillinn er litinn alvarlegum augum í Páfagarði. Bertone
segir margt í bókinni minna sig á ómerkileg 19. aldar skrif til höfuðs kaþólsku
kirkjunni. Erkibiskupinn óttast það að útbreiðsla bókarinnar verði til
þess að fjöldi lesenda fari að taka skröksögurnar í henni alvarlega.
Bertoni hafnar því einnig alfarið að kaþólska kirkjan sé kvenfjand-
samleg eins og gefið er í skyn í bók Browns. Útgefandi Browns í
Bandaríkjunum hefur brugðist við bægslaganginum í kardínálanum
með yfirlýsingu þar sem bent er á að þær hugmyndir sem lagðar
eru til grundvallar spennandi söguþræði bókarinnar hafi verið á
kreiki öldum saman og Brown hafi einungis gert sig sekan um að
vinna úr þeim í skáldverki. Útgefandinn sagðist jafnframt virða
kardínálann og Páfagarð fyrir viðleitni sína til að leiðrétta möguleg-
ar staðreyndavillur í bókinni. Da Vinci lykillinn hefur þegar komið út
innbundin og í kilju á íslensku og selst eins og heitar lummur og í
maí er væntanleg sérstök myndskreytt útgáfa bókarinnar.
> Bók vikunnar ...
HULDUSLÓÐ eftir Lizu Marklund
Sænski spennu-
sagnahöfundurinn
Liza Marklund hefur
getið sér gott orð
fyrir magnaðar saka-
málasögur sínar um
blaðakonuna Anniku
Bengtsson. Huldu-
slóð er fyrsta bók
Lizu og Annika
kemur þar ekki við
sögu enda um sannsögulegt verk að
ræða. Liza segir hér frá sænskri
konu sem er ofsótt af barnsföður
sínum. Frægasta velferðarkerfi í
heimi bregst henni og hún getur
enga björg sér veitt. Hulduslóð er
því sannkölluð spennusaga þó við-
fangsefnið sé raunverulegt og
grafalvarlegt. Þetta er átakanleg
bók um heimilisofbeldi sem á erindi
við okkur öll og er svo spennandi að
hún er lesin í einum rykk.
Full búð af
glæsilegum
sumarfatnaði
á stráka og stelpur,
allt frá 68 -164.
Glæsilegur sumarfatnaður
á börnin!
Opnunartími:
Þriðjudaga til fimmtudaga 16:00 – 18:00
Laugardaga 12:00 – 16:00
Erum einnig með eldri
fatnað á mjög góðum afslætti
- aðeins 3 verð í gangi.
Aðeins 599 kr.
Stærra og flott
ara blað - Sam
a verð 599 kr.
5 690691 2000
08
12. tbl. 67. árg.,
23. mars 2005.
f~™à•á~tÇ
Goran Micic
einkaþjálfari
Biðlistar á
námskeiðin
Krúttlegt
páska-
skraut
Holl ráð
fyrir
stefnu-
mótin
Hjónin Ruth
Reginalds og
Fannar Gauti
Dagbjartsson
Stendur
með
sinni
konu!
Vikan á léttu nótunum
Öðruvísi
páskamatur
Allt sem þú
vissir ekki ...
Rannveig
Rist
Ertu feimin?
Það er hægt að
vinna bug á því
Sumarklippingin
Flottar línur!Litrík og flott
00 Vikan12.
tbl.'05-1
11.3.2005
15:52 Page
1
Náðu í eintak á næsta sölustað
ný og fersk í hv
erri viku
BÆKUR: ERU ENN GJALDGENGAR FERMINGARGJAFIR
Bókaútgáfan Bjartur hefur stofnað nýtt útgáfu-
fyrirtæki sem heitir Traktor og hefur jafnframt
ráðið Eirík Örn Nordahl sem útgáfustjóra þess.
Í tilkynningu frá Bjarti segir meðal annars:
„Traktor er ný útgáfa af foreldri Bjarts sem beitt
verður fyrir ferskustu bókmenntalega óknytti og
skelmisbrögð íslenskra sem erlendra höfunda,
með sérstakri áherslu á nýliða í stéttinni, þar
sem plægðir verða akrar hins ókunna og
skemmtilega, hins hlægilega svartsýna og
kauðslega fima.“
Höfuðstöðvar Traktors verða á Ísafirði en Eiríkur
Örn telur það við hæfi þar sem það megi sjá
„á umferðarskiltum víðs vegar um Reykjavíkur-
borg að þar er traktoraumferð illa séð nær öll-
um stundum. Á Ísafirði eru traktorar hins vegar
aufúsugestir á malbikinu, allan liðlangan sólar-
hringinn,“ segir Eiríkur og bætir því við að það
liggi beint við að traktorsstjórinn sé Ísfirðingur.
Traktor ryður
nýliðum braut
EIRÍK ÖRN NORDAHL Mun
stýra útgáfufyrirtækinu Traktor frá
Ísafirði enda kemur vart annað til
greina þar sem traktorar eru illa
séðir í umferðinni á höfuðborgar-
svæðinu.
Páfinn hjólar í Dan Brown