Fréttablaðið - 26.03.2005, Side 62
50 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Einn og hálfur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
O
L
26
34
2
0
2/
20
05
Rapphljómsveitin Quarashi ætlar
að leggja upp í ferðalag um pásk-
ana og spila á tveimur tónleikum í
sjálfum Sjallanum þann 27. mars.
Sölvi Blöndal, trommari og aðal-
sprauta sveitarinnar, segist ekki
hafa neina hugmynd um það
hvernig honum lítist á að fara
norður. „Við höfum ekki spilað á
tónleikum úti á landi í fimm eða
sex ár,“ segir hann. Fyrir mið-
nætti spilar hljómsveitin fyrir
sextán ára og yngri en eftir mið-
nætti fyrir eldri kynslóðina. „Við
viljum spila fyrir alla, mismunum
ekki fólki eftir kyni og aldri.“
Sölvi gefur þó lítið fyrir að þetta
sé sveitaball. „Þau eru dauð,“
segir hann ákveðinn.
Ekki nóg með að sveitin ætli að
blása í herlúðra norðan heiða
heldur er hún búin að koma sér
vel fyrir í sjöunda sæti HMV-
listans í Japan. Nýjasta afurð
Quarashi, Guerilla Disco, kom út í
byrjun þessa mánaðar þar í landi.
„Verð ég þá ríkur?“ spyr Sölvi og
fréttirnar koma honum þægilega
á óvart. „Ég er reyndar miklu
ánægðari með þessa útgáfu sem
við gáfum út í Japan en hérna
heima.“ Hann segist þó ekkert
vita hvenær þessum góða árangri
verði fylgt eftir. Hann og Ómar
séu önnum kafnir í námi. „Það
verður bara einn dagur tekinn í
einu.“
Síðustu árin hafa verið um-
hleypingasöm í lífi hljómsveitar-
innar og tveir meðlimir hafa sagt
skilið við sveitina, nú síðast Steini
fyrir skömmu. Sölvi segir þetta
einfaldlega hluta af þeirri þróun
sem hann hafi haft í huga, nýtt
blóð og ferskir vindar. Það eru 6
ár síðan Steini var seinast með í
Quarashi lagi og ekki nema eðli-
legt að hann þreifi fyrir sér á öðr-
um vettvangi. „Það hefur verið ný
uppstilling í hvert skipti á hverri
einustu Quarashi plötu og þannig
vil ég hafa það. Mér finnst Ómar
og Tiny líka vera bestu textasmið-
irnir hér á landi og þó víðar væri
leitað,“ segir Sölvi og tekur fram
að skilnaðurinn hafi farið fram í
mesta bróðerni. „Það var enginn
grátur og gnístran tanna.“
Sjálfur segist Sölvi vera að
leita sér að pönkbandi til þess að
spila með. „Ég er orðinn alltof
mjúkur trommari og vantar útrás,
blóð og svita. Ég væri alveg til í að
spila í pönkbandi þar sem ég ræð
engu,“ segir hann og hlær góð-
látlega, á hlaupum út úr Bókhlöð-
unni eftir að hafa setið sveittur
yfir námsbókunum.
freyrgigja@frettabladid.is
Quarashi: Sækir í sig veðrið í Japan og herjar um leið á Akureyri
Sveitaböllin eru dauð
QUARASHI SPILAR Í SJALLANUM UM PÁSKANA Við höfum ekki spilað úti á landi í
fimm eða sex ár.
Stór og klunnaleg armbönd eru svakalega heit núna.Helst eiga þau að vera mörg saman og jafnvel í
mörgum litum. Tré-armböndin eru þó heitust og gott er
ef þau eru eilítið safaríleg. Svona armbönd passa gríðar-
lega vel með munstruðum flíkum og eru tilvalin til þess
að krydda upp í látlausum fatnaði.
Litlir jakkar. Takið stefnuna í krakka-deildina. Jakkarnir eiga allavega að líta út eins og þeir
séu ætlaðir fyrir krakka. Stuttar ermar og stuttir búkar.
Taka skal fram að ætlunin er hvorki að
sýna beran malla eða bak og því nauðsyn-
legt að klæðast einhverjum smart bol
innan undir.
Rósamunstur. Stórt munstur, smágertmunstur, litríkt eða í jarðlitum. Það
skiptir engu máli. Svo lengi sem það er
blómamunstur þá virkar það. Þetta er stór-
kostleg tíska fyrir vorið og sumarið og að sjálfsögðu er engin
kona með viti sem fílar ekki blómamunstur.
Ugg stígvélin. Þessi skófatnaður er ekta bóla semgrasserar í nokkra mánuði og springur svo með lát-
um. Einu sinni var þetta flott og Sienna Miller var voða
sæt í Ugg stígvélunum sínum í fyrra. En hún og allar
aðrar tískugellurnar eru búnar að henda sínum loðstíg-
vélum í ruslið og það ættum við hin líka að gera. Þetta
er hryllingur núna og ekkert annað.
Munntóbak. Þetta er álíka hallærislegt og aðreykja og bæði heilsuspillandi og viðbjóðslegt.
Bólgin vör er ekkert sjarmerandi og heldur ekki
krabbamein í munni. Flestum konum finnst líka karl-
menn sem eru með í vörinni frekar fráhrindandi og
subbulegir.
Útivistarfatnaður er ágætur til brúks þegar stund-uð er útivist, fjallganga, hjólreiðar og þess háttar.
En utan þess er hann alls ekkert ágætur og síður en
svo smart. Geymið skærlitu vindjakkana, buxurnar og
húfurnar upp í skáp dagsdaglega og alls ekki taka
það fram fyrr en útivistarplön eru í augsýn.
INNI ÚTI
... fær Georg Kr. Lárusson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, fyrir
að ganga til daglegra starfa
klæddur einkennisbúningi í stíl
við undirmenn sína í varðskipa-
flotanum.
HRÓSIÐ
Íslenska lagið „If I Had Your
Love“ mun gera góða hluti í
Kænugarði eftir tæpa tvo mánuði
ef eitthvað er að marka spár veð-
bankans Big Poll. Þar er Íslandi
spáð fyrsta sæti í forkeppninni.
Tíu lög komast áfram í aðalkeppn-
ina og meðal þeirra sem veðbank-
inn spáir að sitja muni eftir eru
frændur vorir Danir en lagi þeirra
er ekki spáð mikilli velgengni og
hafnar einungis í 21. sæti. Norð-
menn komast áfram ef marka má
spár veðbankans en Finnar kom-
ast ekki í lokakeppnina en þeim er
spáð sætinu sem áður var í einka-
eigu Íslands, 16. sæti.
Páll Óskar Hjálmtýsson,
Eurovision-sérfræðingur og fyrr-
verandi fulltrúi Íslands í keppn-
inni, taldi að ekki mætti taka
slíkar spár of alvarlega. „Þetta er
bara hluti af þessari spennu og
stuðinu.“ Hann sagði þetta þó
vera góða vísbendingu um ágæti
lagsins.
Páll var sjálfur búinn að heyra
lögin frá hinum Norðurlöndunum
og segir danska lagið alveg glatað.
„Norska lagið er hins vegar algjör
snilld, svona Bon Jovi slagari og
ég spái þeim mjög ofarlega, bæði
í forkeppninni og aðalkeppninni.“
Páll segist líka vera bjartsýnn
fyrir hönd Selmu. „Hún er ein-
faldlega svo mikill sviðskraftur
og lagið er grípandi. Það er ein-
faldlega það sem þarf til í þessari
keppni.“ Hann gaf lítið út á að
lagið væri stolið. „ Þegar þú hefur
þrjár mínútur til þess að heilla
þrjú hundruð milljónir þar sem
meirihluti áhorfenda er að sjá
lagið í fyrsta skipti er allt í lagi að
vísað er til annars lags.“ ■
„IF I HAD YOUR LOVE“ GERIR ÞAÐ GOTT Íslenska Eurovision-lagið er greinilega búið að skjóta sér inn í hjörtu veðbankans Big Poll
sem spáir því fyrsta sæti.
Ísland í fyrsta sæti
Lárétt: 1 vala,5ill,6ei,7tt,8örg,9
lygn,10au,12æja,13ups,15að,16
spil,18náir.
Lóðrétt: 1vitlausi,2alt,3ll,4tignaði,6
ergja, 8öyæ,11upp,14sin,17lá.
1. sæti: Ísland
2. sæti: Holland
3. sæti: Sviss
4. sæti: Ungverjaland
5. sæti: Ísrael
Lárétt: 1 steinn, 5 reið, 6 ekki, 7 tveir
eins, 8 ergileg, 9 ládauð, 10 tvíhljóði, 12
kveinka sér, 13 þakskegg (eldra orð), 15
til, 16 leikur, 18 komist.
Lóðrétt: 1 rangi, 2 raddtegund, 3 tveir
eins, 4 dýrkaði, 6 skaprauna, 8 aftarlega,
en ekki í röð, 11 stefna, 14 bandvefur, 17
hvíldist.
LAUSN
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »