Fréttablaðið - 10.04.2005, Side 6
6 10. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Víkingahátíðir á Akureyri og í Hafnarfirði:
Bæjarstjórinn á Akur-
eyri fær víkingatign
SKEMMTUN Einstaklingar á Akur-
eyri hafa hug á að halda fjölþjóð-
lega víkingahátíð í bænum í júní,
svo fremi að fjármögnun gangi
eftir. Kostnaðurinn er um fimm
milljónir króna og hefur bæjarráð
Akureyrar ákveðið að styrkja
hátíðina með 400 þúsund króna
framlagi. Stefnt er á að 50 til 60
víkingar, innlendir og erlendir,
komi til Akureyrar og efni til bar-
daga að fornum hætti, auk þess
sem þeir munu sýna járn- og silf-
ursmíði.
Hugmyndin er að Víkinga-
hátíðin á Akureyri verði haldin
helgina eftir að Hafnfirðingar
blása til sinnar árlegu víkinga-
hátíðar. Jóhannes Viðar Bjarna-
son, framkvæmdastjóri Fjöru-
kráarinnar í Hafnarfirði, segist
vona að Akureyringar nái að
tryggja fjármögnun svo hægt
verði að halda hátíðina á Akur-
eyri. „Gangi það eftir munu há-
tíðarnar styrkja hvor aðra í
framtíðinni og fjármögnun
beggja verður auðveldari. Á Sól-
stöðuhátíð Víkinga í Hafnarfirði
í sumar ætla ég að gera bæjar-
stjórann á Akureyri að heiðurs-
víkingi, enda eru Akureyringar
og Hafnfirðingar í góðu vinabæj-
arsambandi,“ segir Jóhannes. - kk
Þrjátíu foreldrar ræddu stöðuna í grunnskólum borgarinnar:
Þokkalega sáttir
SKÓLAMÁL Þeir þrjátíu foreldrar
grunnskólabarna, sem mættu á
fund SAMFOKS og formanns
menntaráðs eru þokkalega sáttir
við aðgerðir grunnskóla og borg-
aryfirvalda sem bæta eiga grunn-
skólabörnum sjö vikna verkfall
grunnskólakennara, segir Berg-
þóra Valsdóttir, framkvæmda-
stjóri SAMFOKS. Það þýði ekki að
þeir séu ánægðir en óánægja sé
heldur ekki mikil.
„Foreldrarnir gerðu sér allir
grein fyrir því að það væri ekki
auðvelt að keyra stífa áætlun til
að bæta börnunum þá kennslu
sem þau urðu af. Bæði þurfti að
taka tillit til vilja kennara og
þeirra fjármuna sem settir voru í
verkefnið,“ segir Bergþóra: „Það
er alveg ljóst að það er ekki hægt
að bæta að fullu þann skaða sem
verkfallið olli en tilraunir hafa
verið gerðar til að gera hið besta
úr þessu.“
Stefán Jón Hafstein, formaður
menntaráðs, segir foreldra á
fundinum hafa verið jákvæða á
hvernig til hafi tekist í grunnskól-
um borgarinnar. Foreldrar vilji
flestir gleyma verkfallinu. Þeir
horfi fram á veginn. - gag
Iceland International Film Festival
www.icelandfilmfestival.is
7. - 30. apríl 2005
Veislan
er hafin
Reykjavík-Keflavík-Akureyri-Selfoss
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
SÓL
Mallorca
8.000 kr. aukaafsláttur á mann.
38.578 kr. *
15. júní, 29. júní, 6. júlí og 17. ágúst
á Marina Plaza eða Cala Millor Park.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með 1 svefnherb.
á Cala Millor Park í 7 nætur 29. júní
Takmarkað
framboð
bókaðu stra
x
*Innifalið: Flug gisting í 7 nætur, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis
bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann.
Bókaðu á netinu, það borgar sig.
Fleiri eða færri? Finndu verð
á þinni ferð og kynntu þér
frábær tilboð til Krítar,
Costa del Sol eða Portúgals
á www.urvalutsyn.is
Verð frá:
Ætlarðu að fylgjast með brúð-
kaupi Karls Bretaprins og
Kamillu?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er Hemmi Gunn að standa sig
í nýja sjónvarpsþættinum?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
76,72%
23,28%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
BERGÞÓRA VALSDÓTTIR
Berþóra Valsdóttir segir þrjátíu þúsund for-
eldra standa að grunnskólabörnum. Skoð-
anir þeirra séu mjög misjafnar. Sumir telji
að börn þeirra hafi átt að fá kennslu í frí-
um og á laugardögum. Aðrir vilji ekki
sleppa frítíma fjölskyldunnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
EINI VÍKINGURINN Á AKUREYRI
Á Jónsmessunni í sumar fjölgar víkingum á Akureyri en þá verður Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri gerður að heiðursvíkingi í Hafnarfirði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
Skrúfað fyrir
fjölmiðlaviðtöl
Kardinálar kaþólsku kirkjunnar sem saman eru komnir í Páfagarði hafa
ákveðið að tjá sig ekki opinberlega fyrr en nýr páfi hefur verið kjörinn.
PÁFAGARÐUR, AP Kardinálaráð kaþ-
ólsku kirkjunnar ákvað í gær að
meðlimir þess skyldu hætta þegar
í stað að veita nokkur fjölmiðla-
viðtöl eða tjá sig opinberlega.
Gildir bannið uns kardinálarnir
hafa komist að niðurstöðu um það
hver úr þeirra röðum muni setjast
næstur á páfastól, að Jóhannesi
Páli II gengnum.
Kardinálarnir 130, sem saman
eru komnir í Páfagarði, samþykktu
einróma að skrúfa fyrir öll frekari
fjölmiðlaviðtöl uns kjörfundur
hefst að baki luktum dyrum
Sixtínsku kapellunnar hinn 18. apr-
íl, það er á mánudaginn eftir viku.
Að sögn Joaquins Navarro-
Valls, talsmanns Páfagarðs, er
ákvörðunin „aðgerð í nafni skyn-
seminnar“. Hann kynnti ákvörð-
unina í gær sem beiðni til fjöl-
miðlamanna að láta vera að biðja
kardinálana um viðtöl.
Í ítölskum fjölmiðlum voru í
gær líkur leiddar að því að Joseph
Ratzinger, oddviti kardinálaráðs-
ins, sem hélt líkræðu Jóhannesar
Páls og hefur verið nefndur sem
hugsanlegur arftaki hans, hefði átt
frumkvæði að fjölmiðlabanninu.
Að kardinálarnir skuli ekki
veita nein viðtöl næstu daga mun
þó ábyggilega ekki slá neitt á
vangaveltur í fjölmiðlum um það
hvernig kardinálarnir meta hvern
annan og hver þeirra sé líklegast-
ur til að hljóta stuðning hinna til
páfadóms. Strangt til tekið er
hver einasti fullorðinn kaþólskur
karlmaður til þess bær að vera
kjörinn páfi, en aldalöng hefð er
fyrir því að kardinálarnir velji
einn úr sínum hópi.
Heimsathyglin beinist ekki síst
að meintri togstreitu milli íhalds-
samra og frjálslyndari hreyfinga
innan kirkjunnar og að því hvort
kardináli frá Rómönsku Ameríku
eða Afríku eigi möguleika á því nú
að vera útnefndur páfi.
Navarro-Valls sagði að 115
kardinálar myndu sitja kjörfund-
inn. Tveir kardinálar sem rétt hafa
til þátttöku hafa boðað forföll, en
það eru Jaime L. Sin frá Filipps-
eyjum og Alfonso Antonia Suarez
Rivera frá Mexíkó. Rétt til þátttöku
í kjöri páfa hafa allir kardinálar
sem ekki hafa náð 80 ára aldri.
- aa
KARDINÁLAR
Nokkrir kardinálanna 115 sem kjósa munu nýjan páfa.
M
YN
D
/A
P