Fréttablaðið - 10.04.2005, Side 26

Fréttablaðið - 10.04.2005, Side 26
8 ATVINNA A. Agnes Gunnarsdóttir hefur eytt talsverðum hluta af lífi sínu á Viðskiptaháskólanum á Bifröst og líkar vel. Nú starfar hún þar sem verkefn- isstjóri símenntunar og við kynningar og almannatengsl ásamt því að vera í meistara- námi við skólann. „Ég starfa jafnt við verkefnis- stjórnun og kynningar og al- mannatengsl. Það er rosalega gaman og það er alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi. Ég er mikið í samskiptum við eldri nemendur, nýja nemendur og áhugasama nemendur þannig að ég er í raun alltaf að tala við fólk og það finnst mér frábært,“ segir Agnes. „Verkefnisstjórastarfið felst í því að ég sé um öll námskeið á Bifröst sem og að þróa og móta ný námskeið. Mörg námskeiðin hafa auðvitað verið mótuð áður en ég kom til starfa en ég held áfram að þróa þau. Þegar ég er að móta námskeið lít ég aðallega á hvað skólinn stendur fyrir. Í 87 ár höfum við menntað fólk til stjórn- unarstarfa og höfum við reynt að þróa stjórnunarnám fyrir sjó- menn, bankamenn og konur í rekstri svo dæmi séu tekin. Ég reyni að fylgja stefnu skólans og fara ekki út fyrir hana,“ segir Agnes sem er þá væntanleg um- kringd framtíðar ráðamönnum þjóðarinnar. „Jú, jú ég er um- kringd framtíðarstjórnendum all- an daginn. Sjálfur forsætisráð- herra vor útskrifaðist úr gamla skólanum þannig að þetta er mikill fyrirmannaskóli,“ segir Agnes og hlær dátt. Ekki má gleyma því að Agnes starfar líka við kynningar og al- mannatengsl og er það ekki síður mikilvægur þáttur af starfi skól- ans. „Ég fer í flesta framhalds- skóla landsins og kynni skólann. Síðan tek ég á móti alls kyns félögum, hópum og eldri nemend- um og tek þá í kynningartúr um skólann. Ég vil taka persónulega á móti fólki og sýna því staðinn. Síðan svara ég flestum fyrir- spurnum sem koma frá fólki sem er áhugasamt um námið hér á Bif- röst,“ segir Agnes, sem líkar vel á Bifröst. „Það hjálpast allir að hér og það eru forréttindi að fá að vinna þessa vinnu. Ráðamenn leyfa mér virkilega að reyna á mig og láta mig fá meiri ábyrgð þannig að ég kynnist eiginlega öll- um hliðum skólans.“ Líf Agnesar hefur svo sannar- lega tekið stakkaskiptum eftir að hún steig fyrst fæti inn í skólahús- næðið á Bifröst. „Ég kom hér inn sem einstaklingur árið 1999 og nú á ég mann og barn eftir dvölina hér. Þessi skóli er algjörlega búinn að breyta lífi mínu. Ég útskrifaðist sem viðskiptafræðingur árið 2002 og fékk þá starf sem kynningar- og almannatengslafulltrúi með skóla. Þá var skólinn að stækka og um 120 nemendur skráðir. Nú eru hins vegar um 500 eða 600 í námi með fjarnámi og símenntun þannig að það þurfti að fjölga starfsmönnum. Árið 2003 fór í meistaranám með kynningar- og almannatengsla- starfinu og síðasta haust bauðst mér tækifæri til að vera verkefnis- stjóri og þáði það. Þetta er rosalega gott tækifæri og ég sé ekki eftir því að hafa þegið það.“ lilja@frettabladid.is Bifröst breytti lífi mínu Margir hafa fallið fyrir því fallega umhverfi sem umlykur Viðskiptaháskólann á Bifröst en skólinn er einnig mjög virtur. Leikskólastjórar – Leikskólakennarar Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra við leikskólann Heklukot á Hellu. Heklukot er nú tveggja deilda leikskóli með aðstöðu fyrir rúmlega 40 börn. Fyrirliggjandi er, að ráðist verður í þróun og uppbygg- ingu leikskólans á næstunni. Stækka þarf leikskólann vegna aukins fjölda barna á leikskólaaldri. Þetta er kjörið tækifæri fyrir framsækinn leikskólakennara til þess að takast á við spennandi verkefni við þróun og mótun leikskólastarfsins. Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Launa- nefndar sveitarfélaga og Félags leikskólakennara. Boð- in er aðstoð við útvegun húsnæðis. Í reglum sveitarfé- lagsins um hlunnindi starfsmanna, er heimild fyrir þátt- töku stofnana þess í húsnæðiskostnaði starfsmanna. Við röðun umsækjenda verður tekið mið af menntun, reynslu viðkomandi af stjórnun í leikskóla og umsagna og meðmæla frá núverandi og fyrri vinnuveitendum. Einnig eru lausar stöður leikskólakennara. Sama gildir um laun, kjör og aðstoð vegna húsnæðis og áður er greint. Hella er í 93 km. fjarlægð frá Reykjavík og býður þægindi þéttbýlisins um leið og byggðin er í nánu sambandi við dreifbýlið. Á Hellu er öll almenn þjónusta í 700 íbúa barnvænni byggð. Grunnskóli, leikskóli og sund- og önnur íþróttaaðstaða er í kjarna í miðju byggðarinnar sem þægilegt er að sækja. Hella er þéttbýliskjarni í sveitarfélaginu Rangárþingi ytra þar sem búa 1450 íbúar. Nánari upplýsingar veita sveitarstjórinn, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, á skrifstofu Rangárþings ytra, Laufskálum 2 á Hellu og í s. 487-5834 og formaður fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, Engilbert Olgeirsson, í s. 899-6514. Umsóknum þarf að skila fyrir 15. apríl 2005 til skrifstofu Rangárþings ytra. Rangárþing ytra. Leikskólinn Heklukot á Hellu auglýsir: Sjúkraliðar. Sjúkraliðar óskast til starfa. Starfshlutfall samkomulag. Starfsfólk í aðhlynningu. Starfsfólk óskast við umönnun aldraðra, í fulla vinnu svo og í hlutastörf. Sumarafleysingar. Starfsfólk vantar í afleysingar í sumar. Vinna við hjúkrun og umönnun aldraðra er dýrmæt og góð reynsla. Skjól er hjúkrunarheimili aldraðra þar sem hjúkrun er veitt í hlýlegu umhverfi. Góð starfsaðstaða. Reyklaus vinnustaður. Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Vilhjálmsdóttir hjúkrunarforstjóri (alla@skjol.is) virka daga í síma 522-5600 SKJÓL Hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík Sími 533 1020 Skeifunni 11d Áman Áman óskar eftir fólki með sölumannshæfileika til starfa. Reynsla af sölustörfum og eða reynsla af víngerð æskileg en ekki skilyrði. Leitað er að vinnusömum og heiðarlegum einstaklingum, sem geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegur aldur 30 ára og eldri. Umsókn sendist á doddi@aman.is merkt „Sölumaður“. Agnesi líkar rosalega vel á Bifröst og sér ekki eftir að hafa komið þangað. Menn og M‡s er ört vaxandi hugbúna›arfyrirtæki sem flróar, selur og fljónustar afbur›alausnir á svi›i DNS og netumsjónar til margra af stærstu fyrirtækjum í heimi. Vegna stóraukinnar eftirspurnar leitum vi› a› framúrskarandi einstaklingi til a› ganga til li›s vi› árangursríka rá›gjafadeild okkar. Rá›gjöf Starfi› felst m.a. í fer›alögum erlendis flar sem unni› er fyrir stærstu fyrirtæki í heimi vi› uppsetningar á vörum Manna og Músa og rá›gjöf í tengslum vi› rekstur stórra tölvuneta. Námskei›ahaldi erlendis á svi›i DNS (BIND, Microsoft DNS) og Active Directory. Rá›gjafaverkefni á svi›i DNS og DHCP og netuppsetninga. Um er a› ræ›a einstakt tækifæri fyrir réttan a›ila. Menntunar og hæfniskröfur: • A.m.k. 3 ára háskólamenntun • Mjög gott vald á ensku, skriflegri og munnlegri • fiekking á netkerfum, s.s. DNS, DHCP • fiekking á Microsoft AD æskileg • fiekking á Unix æskileg • Ögu›, sjálfstæ› og skipulög› vinnubrög›. • fijónustulund og færni í mannlegum samskiptum www.menandmice.com Allar frekari uppl‡singar veitir Nathalía D. Halldórsdóttir (nathalia@img.is). Umsóknarfrestur er til og me› 17. apríl. Umsækjendur eru be›nir um a› sækja um starfi› á heimasí›u Mannafls og láta flá ítarlega starfsferilskrá fylgja me› sem vi›hengi. www.mannafl.is M IX A • f ít • 5 0 5 8 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.