Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2005, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 10.04.2005, Qupperneq 48
Enska úrvalsdeildin BLACKBURN–SOUTHAMPTON 3–0 1–0 Morten Gamst Pedersen (11.), 2–0 Andreas Jakobsson, sjálfsm. (48.), 3–0 Steven Reid (55.). BOLTON–FULHAM 3–1 1–0 Jay-Jay Okocha, víti (13.), 2–0 Kevin Nolan (33.), 2–1 Luos Boa Morte (47.), 3–1 Stelios Giannakopoulus (54.). CHELSEA–BIRMINGHAM 1–1 0–1 Walter Pandiani (65.), 1–1 Didier Drogba (82.). MAN. CITY–LIVERPOOL 1–0 1–0 Kiki Musampa (89.). MIDDLESBROUGH–ARSENAL 0–1 0–1 Robert Pires (73.) PORTSMOUTH–CHARLTON 4–2 1–0 Aiyegbeni Yakubu (3.), 2–0 Steve Stone (20.), 2–1 Jonathan Fortune (22.), 2–2 Danny Murphy (45.), 3–2 Diomanzy Kamara (83.), 4–2 Lomana Tresor LuaLua (90.). NORWICH–MAN. UTD 2–0 1–0 Dean Ashton (55.), 2–0 Leon McKenzie (66.). STAÐAN CHELSEA 32 25 6 1 62–12 81 ARSENAL 32 21 7 4 73–33 70 MAN. UTD 32 19 10 3 48–19 67 EVERTON 31 15 6 10 35–33 51 LIVERPOOL 32 15 5 12 44–32 50 BOLTON 32 14 7 11 41–36 49 MIDDLESB. 32 12 9 11 45–43 45 CHARLTON 32 12 8 12 39–48 44 TOTTENH. 31 12 7 12 38–35 43 A. VILLA 31 11 8 12 37–39 41 MAN. CITY 32 10 10 12 38–36 40 NEWCAST. 30 9 11 10 41–48 38 BIRMINGH. 32 9 10 13 32–38 37 BLACKB. 32 8 12 12 28–37 36 PORTSM. 32 9 7 16 37–51 34 FULHAM 31 9 6 16 37–51 33 SOUTH. 32 5 12 15 34–51 27 WBA 31 5 12 14 30–51 27 C. PALACE 31 6 8 17 33–50 26 NORWICH 32 4 11 17 32–63 23 Heiðar Helguson skoraði mark fyrir Watford sem tapaði fyrir Leeds, 2–1. Brynjar Björn Gunnars- son fór af velli á 79. mínútu. Gylfi Einarsson sat allan tímann á varamanna- bekknum hjá Leeds í sama leik. Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Plymouth vegna meiðsla. Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði allan leikinn fyrir Leicester sem gerði jafntefli, 1–1, gegn Brighton. Ívar Ingimarsson fór af velli á 56. mínútu hjá Reading sem vann Sunderland, 2–1. LEIKIR GÆRDAGSINS MARTRÖÐ HJÁ UNITED Tim Howard, markvröður Manchester United kemur ekki neinum vörnum við skoti frá Dean Ashton sem sést ekki á myndinni. Ashton skoraði fyrra mark Norwich sem vann mjög óvæntan sigur á United, 2–0. 20 10. apríl 2005 SUNNUDAGUR > Við hrósum ... ... sundkappanum Jakobi Jóhanni Sveinssyni en hann bar sigur úr býtum í 100 metra bringusundi á Amsterdam- mótinu sem hófst í gær. Anja Ríkey Jakobsdóttir hafnaði í þriðja sæti í 100 metra baksundi. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... Magnúsi Gunnarssyni, stórskyttu Keflavíkurliðsins, sem hysjaði upp um sig buxurnar í fjórða leiknum gegn Snæfelli í gær eftir arfaslakan leik í Keflavík á undan þar sem hann skoraði ekkert stig. Magnús fór hamförum í gær og skoraði 29 stig, þar af sex þriggja stiga körfur. Aðal frétt dagsins Baldur eftirsóttur Baldur Sigurðsson, sem er kominn í raðir Völsungs á nýjan leik eftir stutta viðdvöl hjá Þór, mun, ef að líkum lætur, ekki staldra lengi við á Húsavík. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa FH, KR og Keflavík öll áhuga á því að fá Baldur í sínar raðir en hann hefur ekki enn gert upp hug sinn. 60 SEKÚNDUR Körfubolti er... lífið. Morgunmatur? Kaffi. Er glasið hálffullt eða hálftómt? Það er í uppþvottavélinni. Átrúnaðargoð? Charles Barkley og Tómas Holton. Þristur eða troðsla? Þristur. Alvöru karlmenn... spila póker. Bestur í heimi? Eddie Vedder. LeBron James verður.... sá besti allra tíma. Hvað tekurðu í bekk? 100 plús þegar ég prófaði síðast fyrir nokkrum árum. Snæfell er... besta liðið á landinu. Keflavík er... körfuboltastórveldi. Þórunn Antonía er... skemmti- kraftur. Torfi bróðir er ... áhugaverður. Siggi Ingimundar eða Bárður Ey- þórsson? Honey Nut Cheerios og venjulegt Cheerios er jafn gott. Dómgæslan í úrslitaeinvíginu hefur verið ... á öðru plani en leikur liðanna. Stuðningsmenn Keflavíkur eru ... flottir töffarar. MEÐ HLYNI BÆRINGS Ólöf María Jónsdóttir á Tenerife-mótinu í gær: Lék þriðja hringinn á pari GOLF Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, lék þriðja hringinn á Tenerife- mótinu á evrópsku kvennamóta- röðinni í golfi á pari vallarins, 72 höggum. Hún hefur því leikið hringina þrjá á 218 höggum, tveimur höggum yfir pari. Ólöf María spilaði tólf holur á pari vallarins, þrjár á fugli og þrjár á einu höggi yfir pari. Hún var lengi á einu höggi undir pari en fékk skolla á fimmtándu holu og endaði því á pari. Hún er í 32. til 40. sæti fyrir lokahringinn. Ludivine Kreutz frá Frakklandi er efst en hún hefur leikið holurnar 54 á níu höggum undir pari. Ólöf María sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hún væri mjög sátt við spilamennsku sína síðustu tvo dagana. „Ég var búin að bíða síðan í nóvember eftir þessu móti og það hafði sín áhrif á leik minn fyrsta daginn. Síðan hef ég spilað vel og stefnan er að halda áfram á sömu braut,“ sagði Ólöf María, sem stefndi að því fyrir mótið að verða á meðal þrjá- tíu efstu á mótinu. „Það þýðir ekkert fyrir mig að hugsa um að spila á ákveðnum höggafjölda. Það eina sem gildir er að reyna að fá fram stöðugleik- ann. Ef ég spila lokahringinn eins og ég hef spilað síðustu tvo verð ég hæstánægð.“ oskar@frettabladid.is ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR Spilaði þriðja hringinn á pari og var ánægð. VÍKURFRÉTTIR/VALUR Kennslustund á Carrow Road Leikmenn Manchester United voru teknir í bakaríið af nýliðum Norwich, sem unnu einn óvæntasta sigur síðustu ára í ensku úrvalsdeildinni. FÓBOLTI Sjö leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Óvæntustu úrslit dagsins litu dagsins ljós á Carrow Road þar sem nýliðar Norwich tóku Manchester United í kennslu- stund, 2-0. Didier Drogba bjargaði stigi fyrir Chelsea gegn Birming- ham og Arsenal minnkaði forystu Eiðs Smára Guðjohnsen og félaga hans á toppi deildarinnar niður í ellefu stig með mikilvægum sigri á Middlesbrough á útivelli. Norwich, sem situr í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar, vann einn óvæntasta sigur síðari ára í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið bar sigurorð af Manchester United, 2-0. Dean Ashton og Leon McKenzie skoruðu mörk Norwich, sem eygir nú von um að bjarga sæti sínu í deildinni. Liðið er fjór- um stigum frá fjórða neðsta sæt- inu en Nigel Worthington, stjóri liðsins, er samt bjartsýnn. „Ég trúi að við getum bjargað okkur. Það eru enn nokkrir leikir eftir og ef við spilum áfram eins og við gerð- um í dag hef ég engar áhyggjur,“ sagði Worthington. Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri United, var fjúkandi illur eftir leikinn og neitaði að tala við alla, meira að segja sjónvarpsstöð félagsins. Jose Mourinho, knattspyrnu- stjóri Chelsea, lét bæði Eið Smára Guðjohnsen og Didier Drogba byrja á bekknum gegn Birming- ham en þeir komu báðir inn á í hálfleik. Eftir að Walter Pandiani hafði komið Birmingham óvænt yfir náði Didier Drogba að jafna metin níu mínútum fyrir leikslok og sá til þess að Chelsea-liðið lék sinn 23. leik í röð í úrvalsdeildinni án taps. Mourinho var sáttur eftir leikinn og sagði lífið vera frá- bært. „Við erum frábærir – gætum ekki verið betri. Við erum komnir með bikar, erum með ell- efu stiga forystu í deildinni og unnum fyrri leikinn í átta liða úr- slitum Meistaradeildarinnar. Ég er hamingjusamur,“ sagði Mour- inho. Franski knattspyrnustjórinn Alain Perrin fagnaði sigri í sínum fyrsta leik með Portsmouth en lærisveinar hans báru sigurorð af Charlton, 4-2. Perrin, sem þekkti ekkert til Charlton fyrir leikinn, tók áhættu sem borgaði sig undir lokin þegar hann spilaði með fjóra framherja. „Við verðum að spila með framherja ef við viljum vinna leiki, sérstaklega á heima- velli,“ sagði Perrin, sem er nú þegar orðinn hetja á meðal stuðn- ingsmanna Portsmouth. Liverpool náði ekki að fylgja eftir fræknum sigri á Juventus í Meistaradeildinni á þriðjudaginn og beið lægri hlut fyrir Manchester City, 1–0. Bolton vann hins vegar góðan sigur á Fulham og er nú aðeins einu stigi á eftir Liverpool. Þessi tvö lið virðast ætla að berjast um fjórða sætið í úrvalsdeildinni, sæti sem gefur þátttökurétt í forkeppni meistara- deildarinnar, ásamt Everton sem getur náð fjögurra stiga forystu á Liverpool með því að leggja Crystal Palace að velli í dag. oskar@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.