Fréttablaðið - 10.04.2005, Blaðsíða 53
SUNNUDAGUR 10. apríl 2005 25
LEIKIR GÆRDAGSINS
Intersportdeildin í körfu
SNÆFELL–KEFLAVÍK 88–98
Stig Snæfells: Mike Ames 21, Hlynur Bæringsson
18 (9 frák.), Calvin Clemmons 12 (13 frák.),
Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12 (6 stoðs.), Helgi
Reynir Guðmundsson 9, Sigurður Þorvaldsson 8,
Magni Hafsteinsson 8.
Stig Keflavíkur: Magnús Þór Gunnarsson 29,
Anthony Glover 23 (9 frák.), Nick Bradford 22 (13
frák., 10 stoðs.), Jón Nordal Hafsteinsson 18,
Sverrrir Þór Sverrisson 6 (8 frák., 4 stoðs.).
Keflvíkingar sigruðu 3-1 í einvíginu og eru
Íslandsmeistarar, þriðja árið í röð.
Þýska 1. deildin
B. LEVERKUSEN–B. DORTMUND 0–1
0–1 Sebastian Kehl (88.).
B. MÜNCHEN–GLADBACH 2–1
0–1 Ivo Ulich (65.), 1–1 Mehmet Scholl (66.),
2–1 Michael Ballack (84.).
BOCHUM–HANNOVER 1–0
1–0 Steve Cherundolo, sjálfsm. (56.).
HSV–WERDER BREMEN 1–2
0–1 Miroslav Klose (9.), 1–1 Mehdi Mahdavikia
(58.)1–2 Ivan Klasnic (70.).
HERTHA BERLIN–FREIBURG 3–1
1–0 Marcelo Marcelinho (6.), 2–0 Marcelo
Marcelinho (21.), 2–1 Samuel Koejoe (71.), 3–1
Niko Kovac (90.).
MAINZ–WOLFSBURG 0–2
0–1 Thomas Brdaric (64.), 0–2 Stefan Schnoor
(78.).
STUTTGART–SCHALKE 3–0
1–0 Kevin Kuranyi (16.), 2–0 Kevin Kuranyi (48.),
3–0 Kevin Kuranyi (65.).
Spænska 1. deildin
NUMANCIA–A. MADRID 1–0
1–0 Miguel.
Ítalska A–deildin
AC MILAN–BRESCIA 1–1
1–0 Manuel Rui Costa (15.), 1–1 Pierre Wome
(87.).
BOLOGNA–INTERNAZINALE 0–1
0–1 Julio Cruz (4.).
FIORENTINA–JUVENTUS 3–3
1–0 Giampolo Pazzini (14.), 1–1 Alessandro Del
Piero (21.), 2–1 Giorgio Chiellini (36.), 2–2
Zlatan Ibrahimovic (59.), 3–2 Dario Dainelli (75.),
3–3 Zlatan Ibrahimovic (82.).
Keflavík meistari þriðja árið í röð
Keflavík og Snæfell áttust við í fjórðu viðureign lokaúrslita Intersportdeildarinnar í körfuknattleik í
Stykkishólmi í gær. Snæfell þurfti að leggja gestina að velli til að knýja fram oddaleik. Það gekk ekki eftir
og Keflavík fagnaði sínum þriðja Íslandsmeistaratitli í röð.
KÖRFUBOLTI Keflavík tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik þriðja árið í röð er liðið
lagði Snæfell í fjórðu viðureign
lokaúrslitanna í Stykkishólmi í
gær. Lokatölur urðu 99-88 en Snæ-
fell komst aðeins einu sinni yfir í
leiknum.
Einvígið fór því 3-1 Keflavík í
vil rétt eins og á síðasta ári þegar
liðin mættust í úrslitunum. Snæ-
fellingar þurfa því að bíta í það
súra epli að tapa annað árið í röð
fyrir hinu firnasterka liði Kefl-
víkinga. Magnús Þór Gunnarsson,
sem átti afleitan leik í síðustu
viðureign liðanna, skaut sig inn í
leikinn strax í fyrstu sókn Kefl-
víkinga og var besti maður vallar-
ins. Hann átti meðal annars tvær
fjögurra stiga sóknir þar sem
hann skoraði þriggja stiga körfu
og fékk víti að auki. Keflavík var
iðið í sóknarfráköstum og kláraði
Snæfell með 16-2 áhlaupi snemma
í þriðja fjórðungi.
„Þetta var sárt tap og mér
fannst við eiga meira inni. En þeir
voru bara gríðarlega ákveðnir í
dag og unnu þetta verðskuldað. Í
þessari seríu voru of margir af
okkar leikmönnum sem voru ekki
að sýna sitt besta. Við erum að
spila á fáum mönnum og þegar við
erum að spila á móti jafnsterku
liði og Keflavík er verða allir okk-
ar menn að eiga góðan dag.
Kannski er það til of mikils ætlast
af minni hálfu en það er það sem
til þarf. Þetta er gríðarlega gott
lið og þeir geta verið ánægðir með
að ná titlinum,“ sagði Bárður
Eyþórsson, þjálfari Snæfells.
„Við unnum þessa seríu og ég
held að þetta hafi verið frábær
körfubolti sem þessi tvö frábæru
lið buðu upp á. Virkilega góð aug-
lýsing fyrir körfuboltann og Snæ-
fell á mikið hrós skilið enda stór-
kostlegt lið. Að vinna hér er
nokkuð sem okkur finnst frábært
því við erum að vinna mjög vel
skipulagt og gott lið með frábær-
um leikmönnum. Við viljum bara
þakka Snæfelli fyrir frábæran
körfubolta og skemmtilega
seríu,“ sagði Sigurður Ingimund-
arson, þjálfari Keflavíkur,
sigurreifur eftir leikinn.
smari@frettabladid.is
KEFLVÍKINGAR MEISTARAR ÞRIÐJA ÁRIÐ Í RÖÐ Keflvíkingar tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta þriðja árið í röð
eftir að hafa borið sigurorð af Snæfelli, 98–88, í fjórða leik liðanna í Stykkishólmi. Keflavík vann einvígið 3–1. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM