Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,24 62,54
1 19,23 119,81
81,31 81,77
10,91 10,98
9,97 9,92
8,87 8,92
0,59 0,59
94,55 95,11
GENGI GJALDMIÐLA 22.04.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,90 -0,02%
4 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR
Mál handrukkara í Hæstarétti:
Vill málið aftur í hérað
DÓMSMÁL Verjandi Annþórs Krist-
jáns Karlssonar krafðist þess fyrir
Hæstarétti í gær að máli hans yrði
vísað aftur heim í hérað. Í nóvem-
berlok voru Annþór og Ólafur Val-
týr Rögnvaldsson dæmdir í fang-
elsi fyrir að ráðast inn á heimili
mjaðmagrindarbrotins manns og
ganga í skrokk á honum, sá fyrr-
nefndi í tveggja og hálfs árs og
hinn í tveggja ára fangelsi. Maður-
inn var meðal annars handleggs-
brotinn, en fyrir dómi breytti hann
framburði sínum frá því sem hann
sagði lögreglu og kvað handleggs-
brotið hafa átt sér stað fyrr um
daginn. Dómaranum þótti sú skýr-
ing ekki trúverðug.
Við dómhaldið í gær sagði skip-
aður verjandi Annþórs, Karl Georg
Sigurbjörnsson, það álit Annþórs
að kalla hefði til þurft tvo meðdóm-
endur til að meta sannleiksgildi
orða mannsins sem ráðist var á,
vegna kúvendingarinnar sem varð
í framburði hans.
Til vara krafðist hann sýknu í
málinu, en þrautavara að Annþór
yrði dæmdur til vægustu refsinga.
Hilmar Ingimundarson, verjandi
Ólafs Valtýs, krafðist sýknu fyrir
skjólstæðing sinn, en til vara að
refsingin yrði milduð og heimfærð
upp á aðra grein hegningarlaga en
í ákæru.
-óká
Þrýst á stjórnvöld
vegna unglækna
Eftirlitsstofnun EFTA hefur sent stjórnvöldum rökstutt álit vegna þess að ekki hefur verið
gengið í að laga vinnu unglækna að vinnutímatilskipun Evrópusambandsins. Stjórnvöld
hafa tvo mánuði til að reiða fram áætlun, sem átti að vera frágengin í ágúst í fyrra.
FÉLAGSMÁL ESA, eftirlitsstofnun Frí-
verslunarsamtaka Evrópu (EFTA),
segir stjórnvöld hér hafa látið hjá
líða að leggja fram áætlun um
hvernig framfylgja á vinnutímatil-
skipun Evrópusambandsins hvað
varðar unglækna.
Eftirlitsstofnunin hefur sent
stjórnvöldum rökstutt álit vegna
þessa og gefið tveggja mánaða frest
til að koma málum í réttan farveg.
Samkvæmt tilskipun Evrópusam-
bandsins áttu EFTA ríkin að hafa
lagt fram áætlun um innleiðingu
fyrir fyrsta ágúst í fyrra. Fram
kemur að eftirlitsstofnunin hafi
engar upplýsingar fengið frá stjórn-
völdum hér um ráðstafanir vegna
vinnu unglækna. Bregðist stjórn-
völd ekki við áliti ESA er næsta
skref að vísa málinu til EFTA dóm-
stólsins.
Bjarni Þór Eyvindsson formaður
félags unglækna segir fyrstu skref-
in í að innleiða vinnutilskipun Evr-
ópusambandsins hafa verið tekin í
apríl 2003 með lagabreytingu í þá
veru að unglæknar væru ekki leng-
ur undanþegnir almennum vinnu-
tímaákvæðum. Sú breyting mun þó
ekki hafa skilað sér í framkvæmd.
„Við erum því komin með mál á
hendur Landsspítalanum til að fá
þessa löggjöf virta, en það var dóm-
tekið fyrir um hálfum mánuði,“ seg-
ir hann og bætir við að ESA þrýsti
nú á um fimm ára áætlun frá stjórn-
völdum um hvernig innleiða eigi
hvíldartímatilskipunina, sem engar
Evrópuþjóðir muni vera farnar að
framfylgja. „Við erum hins vegar
eina þjóðin sem ekki er enn farin að
framfylgja því að unglæknar séu
ekki undanþegnir almennum hvíld-
artímaákvæðum.“
Hanna Sigríður Gunnsteinsdótt-
ir, skrifstofustjóri í félagsmálaráðu-
neytinu, segir unnið að undirbún-
ingi frumvarps sem lagt verði fram
á Alþingi í haust. „En þetta er nokk-
uð flókið í útfærslu og hefur áhrif á
vinnutíma unglækna á spítölunum
og við höfum því lagt það í hendurn-
ar á heilbrigðisráðuneytinu að meta
kostnaðinn, líkt og skylt er að gera.“
Hún segir að svo verði ákveðið í
samráði við heilbrigðisyfirvöld,
fjármálaráðuneyti og unglækna
hversu langur tími verði tekinn í að
innleiða vinnutímatilskipunina, en
því á að vera að fullu lokið ekki síð-
ar en 2009. „En aðlögunin snýr ein-
göngu að vikulegum hámarksvinnu-
tíma. Reglur vinnuverndarlaga um
vinnutíma munu þá gilda um lækna
í starfsnámi með sama hætti og þau
gilda um aðra.“ Hún segir tveggja
mánaða frestinn sem ESA gaf nú
vera hefðbundinn og að ráðuneytið
muni skýra sín mál gagnvart stofn-
uninni.
olikr@frettabladid.is
Læknafélag Íslands:
Gagnrýnir
stjórnvöld
UNGLÆKNAR Læknafélag Íslands
gagnrýndi í gær að stjórnvöld hér
skuli engar ráðstafanir hafa gert til
að tryggja að unglæknar séu ekki
látnir vinna lengri vinnuviku en
heimilt er samkvæmt ákvæðum
vinnutímatilskipunar.
„Það er fréttnæmt í sjálfu sér
þegar íslensk yfirvöld fullnægja
ekki alþjóðlegum skuldbindingum
sínum. Það er ekki síður fréttnæmt
þegar alþjóðlegum skuldbindingum
hefur verið fullnægt með viðeig-
andi lagabreytingum, þegar opin-
berir aðilar, sem fara eiga eftir hin-
um breyttu reglum, hunsa þær
þannig að leita verði til dómstóla til
að fá hinar nýju reglur viðurkennd-
ar,“ segir á vef Læknafélagsins. - óká
edda.is
Þegar afi hans Ásbjörns
deyr segir mamma að
hann sé orðinn engill -
en það er ekki alveg rétt.
Eina nóttina birtist hann
í herberginu hans
Ásbjörns og vill leika.
Hann þarf líka dálitla
hjálp sem bara Ásbjörn
getur veitt.
Falleg og sniðug bók
um stóra hluti og
smáa.
KOMIN Í
VERSLANIR!
BJARNI ÞÓR EYVINDSSON,
FORMAÐUR FÉLAGS UNGLÆKNA
Bjarni var staddur á Akureyri þegar blaðið
náði í hann og því ekki í hvíta sloppnum.
„Það er ágætt að það sjáist að við fáum
einstaka sinnum frí og fáum notið veður-
blíðunnar,“ sagði hann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
JK
Sjávarútvegsnefnd:
Frestaði
fundinum
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsnefnd
Alþingis kemur saman til fundar á
mánudag en boðuðum fundi í gær
var frestað.
Guðjón Hjörleifsson formaður
nefndarinnar segir að sátt sé um
fundartímann þótt óskað hafi verið
eftir neyðarfundi strax í gær
vegna nýrra upplýsinga Hafrann-
sóknastofnunarinnar um bágborið
ástand þorskárganga undanfarin
fjögur ár. Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri stofnunarinnar, kemur til
fundar við nefndina ásamt Jóni
Sólmundarsyni fiskifræðingi. - jh
HÓTA MANNRÁNUM Sheik Hass-
an Nasrallah, leiðtogi líbönsku
samtakanna Hezbollah, gaf í skyn
að félagar hans myndu ræna ísra-
elskum hermönnum til að knýja
fram lausn þriggja Líbana sem
Ísraelar halda í fangelsi.
ANNÞÓR KRISTJÁN KARLSSON
Myndin er tekin í Héraðsdómi þegar mál Annþórs var þar til umfjöllunar. Málflutningur fór
fram í Hæstarétti í gær, en dóms er að vænta í lok næstu viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
■ MIÐ-AUSTURLÖND