Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 22
Davíð ætli að hætta
Þær sögur heyrast nú innan úr utanríkisráðu-
neytinu að mikil uppstokkun sé í vændum í
ríkisstjórninni og jafnframt utanríkisþjónust-
unni. Því er haldið fram að yfirmaður ráðu-
neytisins, Davíð Oddsson utanríkisráðherra,
ætli sér að hætta sem ráðherra í haust og
jafnframt hætta af-
skiptum af stjórn-
málum.
Í hans stað
muni koma
Geir H. Haarde
fjármálaráð-
herra, sem þá
sé jafnframt lík-
legur til að taka við
af Davíð sem
formaður
flokksins.
Uppstokkun í vændum
Sögunni fylgir þó ekki hver muni taka við af
Geir í fjármálaráðuneytinu. Spekúlasjónir eru
þó uppi um að ef til vill muni
Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra færast yfir í fjármálaráðu-
neytið. Þá losnar um ráðherra-
stól í sjávarútvegsráðuneytinu
en enginn hefur verið nefndur
öðrum fremur sem líklegur til
að verma það sæti.
Hins vegar hefur ríkis-
stjórnin, þá sérstaklega
framsóknarmenn,
gefið upp boltann
með það að algjör
uppstokkun verði á
stjórnsýslunni á
þessu kjörtímabili;
ráðuneyti sameinuð
og þeim fækkað.
Björn verði sendiherra
Innan úr utanríkisráðuneytinu heyrist það
einnig að Björn Bjarnason sé að hætta í
stjórnmálum og á leið til útlanda sem sendi-
herra. Þorsteinn Pálsson er á leið heim frá
Kaupmannahöfn, en ekki er talið víst að
Björn taki við af honum, því allsherjarupp-
stokkun sé einnig í vændum í utanríkisþjón-
ustunni.
Lengi hefur verið um það talað að Bjarni
Benediktsson eigi von á skjótum
frama innan flokksins og þótti
hann standa sig vel í erfiðri stöðu
formanns allsherjarnefndar í fjöl-
miðlamálinu. Því hefur hann
verið nefndur sem væntanlegur
arftaki Björns frænda síns í
dómsmálaráðuneytinu enda
menntaður að lögum, sem
þykir víst hjálpa til á þeim
bænum.
22 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR
Ríkisstjórnarsamstarf
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks á tíu
ára afmæli í dag. Aðeins
viðreisnarstjórnin svokall-
aða, ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks,
sat lengur en hún starfaði
í tólf ár. Ef núverandi rík-
isstjórn starfar til loka
kjörtímabilsins mun hún
slá það met.
Í dag eru 10 ár liðin frá því að rík-
isstjórnarsamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks
hófst. Einungis einu sinni áður
hefur ríkisstjórnarsamstarf
varað lengur, en það var viðreisn-
arstjórnin svokallaða, ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks, sem starfaði á árunum
1959 til 1971.
Ef gert er ráð fyrir því að
ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks
vari fram yfir næstu alþingis-
kosningar 2007 mun ríkisstjórnin
hafa verið við völd fjórum mán-
uðum lengur en viðreisnarstjórn-
in, og þar með slá nýtt met.
Fjörutíu þingsæti
Í alþingiskosningunum 1995 hélt
þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks minnsta
mögulega meirihluta og baðst þá-
verandi forsætisráðherra, Davíð
Oddsson, lausnar og gekk til ríkis-
stjórnarsamstarfs við Framsókn-
arflokkinn. Nýja ríkisstjórnin
hafði fjörutíu þingsæti á bak við
sig en Framsóknarflokkurinn
hafði unnið nokkurn sigur í kosn-
ingunum, bætt við sig tveimur
þingsætum og náð 15 kjörnum
þingmönnum.
Fráfarandi ríkisstjórnarflokk-
ar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur, fengu 32 þingsæti sam-
tals og hefði hver þingmaður því í
raun verið í oddastöðu í öllum
málum.
Tíu ráðherrar
Í ríkisstjórninni sem mynduð var
fyrir tíu árum áttu sæti Davíð
Oddsson, forsætisráðherra og
ráðherra Hagstofu Íslands, Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra, Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra, Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra, Björn
Bjarnason menntamálaráðherra,
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra og dóms- og kirkjumála-
ráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, Guðmundur Bjarnason,
landbúnaðarráðherra og um-
hverfisráðherra, og Finnur Ing-
ólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra.
22 ráðherrar á tímabilinu
Alls hafa tólf ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins og tíu ráðherrar
Framsóknarflokksins setið í ríkis-
stjórn á síðustu tíu árum. Auk
þeirra sem að ofan eru talin eru
það Árni M. Mathiesen, Geir H.
Haarde, Sturla Böðvarsson, Sól-
veig Pétursdóttir, Tómas Ingi Ol-
rich, Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir og Sigríður Anna Þórðar-
dóttir úr Sjálfstæðisflokki og
Guðni Ágústsson, Siv Friðleifs-
dóttir, Jón Kristjánsson, Valgerð-
ur Sverrisdóttir og Árni Magnús-
son úr Framsóknarflokki.
Þrír ráðherrar hafa setið í
ríkisstjórn öll tíu árin; þeir Davíð,
Halldór og Björn.
Tvennar þingkosningar
Ríkisstjórnin hefur farið í gegn-
um tvennar alþingiskosningar á
áratugnum og haldið meirihluta í
þeim báðum. Árið 1999 töpuðu
flokkarnir samtals tveimur þing-
mönnum frá því í kosningunum
fjórum árum áður og fengu því 38
þingmenn. Framsóknarflokkur
fékk 12 þingmenn kjörna og Sjálf-
stæðisflokkur 26.
Í kosningunum 2003 tapaði
Sjálfstæðisflokkurinn fjórum
þingsætum en fjöldi framsóknar-
þingsæta stóð í stað. Ríkisstjórn-
arflokkarnir héldu því meirihluta
með 34 þingmenn kjörna.
Ekki í fyrsta sinn
Samstarf Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í ríkisstjórn nú
er ekki hið fyrsta því flokkarnir
hafa tvisvar áður starfað saman í
tveggja flokka stjórn. Í fyrsta
skipti var það á árunum 1932 til
1934 undir forsæti Ásgeirs Ás-
geirssonar. Því næst störfuðu
flokkarnir saman í ríkisstjórn á
árunum 1950 til 1956. Formenn
beggja flokkanna, Ólafur Thors
og Hermann Jónasson, gegndu
ráðherraembættum í ríkisstjórn-
inni sem samanstóð af sex ráð-
herrum, þremur í hvorum flokki,
og höfðu flokkarnir 36 þingsæti
af 52. sda@frettabladid.is
stjornmal@frettabladid.is
Úr bakherberginu...
Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks 10 ára
nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
„Í öllu fjasinu um meinta spillingu og gjafir varla minnast
þessir kappar á Sjálfstæðisflokkinn.“
Hjálmar Árnason á heimasíðu sinni 21. apríl.
„Ber strák sem verður ástfanginn af stelpu sem situr á Al-
þingi, að leggja fram fjárhagslegar upplýsingar um sjálfan
sig, kjósi þau að rugla saman reytum sínum?“
Einar K. Guðfinnsson á heimasíðu sinni 22. apríl.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur átt góða viku. Líklega
þá bestu frá því að hann tók við forsætisráðuneytinu.
Hann lýsti því yfir á Alþingi fyrr í vikunni að þingflokkurinn
hefði ákveðið að birta opinberlega upplýsingar um fjárhag og
eignir þingmanna. Að auki lýsti Halldór því yfir að hann hygðist
stofna nefnd um fjármál stjórnmálaflokka. Enn fremur lofaði
Halldór að birta á næstunni skýrslu fjárfestingarbankans Morgan
Stanley, sem hefur veitt ríkisstjórninni ráðgjöf varðandi sölu Sím-
ans, en leynd hefur hvílt yfir.
Allt skal upp á borðið. Allt skal gert opinbert.
Þá hefur komið í ljós að Halldór er staðráðinn í að standa við orð sín á
Alþingi frá því í janúar um að afnema ákvæði laga um eftirlaun þingmanna
og ráðherra sem gerir fyrrverandi þingmönnum og ráðherrum kleift að
þiggja eftirlaun um leið og laun frá ríkinu fyrir önnur störf. Davíð Oddsson
lýsti því hins vegar yfir í fréttum í gær að ekki stæði til að breyta lögum um
eftirlaun.
Báðir eru þeir þekktir fyrir eftirfylgni og á því eftir að koma í ljós hver
hefur betur í þessari deilu. Þótt Halldór hafi ósjaldan verið uppnefndur
„skugginn hans Davíðs“ sýndi hann og sannaði að þegar í óefni var komið
í fjölmiðlamálinu svokallaða gat hann bakkað og knúið fram vilja sinn –
og flokksins – þegar á reyndi og jafnvel beygt harðasta stál.
Það er ljóst að vörn Davíðs verður erfiðari en sókn Halldórs. Allir stjórn-
málaflokkar að undanskildum Sjálfstæðisflokki hafa lýst yfir vilja til að
breyta eftirlaunalögunum og hefur Halldór því víðtækan pólitískan stuðn-
ing við áform sín. Að auki – sem er jafnvel enn mikilvægara þegar tekist
er á um pólitísk hitamál – hefur Halldór almenning á sínu bandi.
En Davíð er ekki þekktur fyrir að segja neitt opinberlega að óígrunduðu
máli. Því má spyrja – hvaða tilgangi þjónaði yfirlýsing hans í gær? Var hún
vel úthugsaður leikur í valdatafli foringjanna? Var Davíð að lýsa andstöðu
sinni við áform Halldórs í því skyni að ná betri samningsstöðu í öðrum
málum sem þeir eiga eftir að útkljá? Hyggst hann „bakka“ með eftirlauna-
frumvarpið í staðinn fyrir eitthvað annað? Stefnir í enn ein hrossakaupin
formannanna á milli?
Það á eftir að koma í ljós.
VIKA Í PÓLITÍK
SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR
Barcelona
í maí
frá kr. 24.090
Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri
við. Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins í
þessari einstöku borg á frábærum kjörum. Beint flug.
Fjölbreyttir gistivalkostir í boði í hjarta Barcelona.
Verð kr. 24.090
Flugsæti með sköttum, 20. maí.
Netverð
Flug og gisting frá kr.
49.990í 5 daga
M.v. 2 í herbergi á Hotel
Atlantis, 20. maí. Netverð.
Beint flug
13. maí - uppselt
20. maí - nokkur sæti laus
27. maí - nokkur sæti laus
RÍKISSTJÓRN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS OG FRAMSÓKNARFLOKKSINS 23. APRÍL 1995 Aftari röð frá vinstri: Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra, Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Guðmundur Bjarnason, landbúnaðarráðherra og umhverfisráð-
herra, og Halldór Blöndal samgönguráðherra. Fremri röð frá vinstri: Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra og ráðherra Hag-
stofu Íslands, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Hrossakaup um eftirlaunamál?