Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 8
1Hvað heitir Norðurlandameistarimatreiðslunema? 2Hver er nýr stjórnarformaður Spari-sjóðs Hafnarfjarðar? 3Hversu lengi hefur stjórnarsamstarfSjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks staðið? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR Forstjórinn bjartsýnn á velgengni Opera 8 vafrans: Lofar að synda yfir Atlantshaf UPPLÝSINGATÆKNI Jón S. von Tetzchner, íslenskur forstjóri norska vafrafyrirtækisins Opera Software, sagðist á vinnufundi í fyrirtækinu ætla að synda frá Noregi til Bandaríkj- anna ef fleiri en milljón hlaða niður nýjustu útgáfu vafrans sem út kom á þriðjudag á fyrstu fjórum dögunum. „Ég skal ekki stoppa nema aðeins hjá mömmu á Íslandi til að fá mér heitt kakó,“ sagði hann, en almanna- tengsladeildin gat ekki setið á sér að leka orðum hans. Mikið álag var á miðlurum fyrirtækisins eftir að útgáfa 8 af Opera-vafranum var gerð aðgengileg og tóku sumir undan að láta þegar niðurhalsfjöldinn náði 120 á sekúndu fyrstu klukkustundina eftir útgáfu. Fyrirtækið segir að á tveimur sólarhringum hafi vafranum verið hlaðið niður 600 þúsund sinnum. „Við höfðum búið okkur undir mikil og góð viðbrögð, en þetta fór fram úr okkar björtustu von- um,“ sagði Carsten Fischer, einn yfirmanna Opera Software. Vef- ur Opera Software er www.opera.com, en hægt er að hlaða vafranum niður af miðlur- um hér innanlands. - óká Fjölskylduhjálp Íslands: Steinar Waage gaf barnaskó GJÖF Steinar Waage færði í gær Fjölskylduhjálp Íslands fjögur bretti af skóm og áætlar Ásgerð- ur Jóna Flosadóttir hjá Fjöl- skylduhjálpinni að alls séu skópörin um 300. „Þetta er ofsalega fín gjöf sem kemur til með að nýtast okkar skjólstæðingum mjög vel,“ segir Ásgerður Jóna, sæl og þakklát fyrir gjöfina. Við sama tækifæri færði Byko Fjölskyldu- hjálpinni hálft bretti af föndur- vörum. „Það er frábært að fyrirtækin hugsi til þessara félaga sem að- stoða fólk,“ segir Ásgerður Jóna en fjöldi fólks leitar aðstoðar hjá Fjölskylduhjálpinni í viku hverri. - bþs Fjórtán hundruð á hverja bensínstöð Í Evrópu er talið skynsamlegt að 5.000 íbúar séu á hverja bensínstöð en á Íslandi eru þeir um 1.400. Á Vestfjörðum eru þó ekki nema tæplega 400 íbúar á hverja bensínstöð. ELDSNEYTI Þjónustustöðvum olíu- félaganna hefur fjölgað nokkuð að undanförnu og nú er svo komið að það er ein bensínstöð fyrir hverja 1.418 Íslendinga. Í vikunni opnaði Atlantsolía sjálfsafgreiðslustöð fyrir dísilolíu á Akranesi og segir Hugi Hreið- arsson, markaðsstjóri fyrirtækis- ins, að þetta marki upphaf útrásar þess á landsbyggðinni. Á lands- byggðinni eru þó mun færri íbúar á hverja bensínstöð en á höfuð- borgarsvæðinu, ein þjónustustöð frá olíufélögunum fyrir hverja 719 íbúa. Vestfirðir eru sá lands- hluti þar sem markaðurinn er einna þéttast setinn en þar eru 385 íbúar um hverja stöð en á Vesturlandi eru þeir tæplega 600. „Því fer fjarri að markaðurinn sé mettaður ef þjónustunni er komið fyrir á hagkvæman hátt,“ segir Hugi. Hann segir fram- göngu Atlantsolíu vera fagnaðar- efni fyrir neytendur. „Ef Atl- antsolíu nyti ekki við væri verð á bensíni og dísilolíu um sex til átta krónum hærra og þetta er sparn- aður fyrir þjóðfélagið upp á svona 600-800 milljónir króna,“ bætir hann við og segir frekari fjölgun stöðva vera í uppsiglingu. Með opnuninni á Akranesi lýkur 40 ára sögu þar sem einung- is þrjú félög kepptu sín á milli á Vesturlandi. Margrét Guðmunds- dóttir markaðsstjóri Skeljungs segir að mönnum þar lítist bara vel á samkeppnina en engra sér- stakra viðbragða væri að vænta af þeirra hálfu. „Þó fari nú ein dísildæla upp á Akranes þá kallar það kannski ekki á stór viðbrögð. En við fylgjumst vel með öllum breytingum á markaðnum,“ segir Margrét. Hún bendir á að víðast í Evrópu er talið skynsamlegt að það séu 5.000 íbúar á stöð, þótt víðsvegar væru þeir 10.000. Hún er því afar ósammála Huga og segir að íslenski markaðurinn sé mjög mettur. Hún segir fjölgun bensínstöðva hér á landi vera þróun sem sé á skjön við það sem gerist í nágrannalöndunum en í Danmörku hefur til dæmis verið í umræðunni á síðustu mánuðum að fækka þeim um fjögur hundruð. jse@frettabladid.is Bjargað úr lífshættu: Börnin við góða heilsu SLYS Börnin tvö sem féllu í sjóinn í Kolgrafafirði í fyrradag voru við góða líðan á Barnaspítalan- um í gær og sagði Sigurður Kristjánsson barnalæknir að engin hætta væri á ferðum. Hann átti jafnvel von á að þau yrðu útskrifuð af sjúkrahúsinu í gær. Börnunum tveimur var bjargað úr lífshættu í Kolgrafa- firði í fyrradag. Þau voru þar við skeljatínslu með mæðrum sínum þegar þau féllu í sjóinn og bar út. Móðursystir þeirra óð út í og náði þeim en annað barn- ið var búið að missa meðvitund þegar því var bjargað. - ghs Háskólasamtökin Vaka: Tímabær úttekt MENNTAMÁL „Úttektin sannar að Háskólinn hefur haldið afar vel á spilunum undanfarin ár þrátt fyrir að ýmsir hafi haldið öðru fram,“ segir Árni Helgason, oddviti Vöku, félags lýðræðis- sinnaðra stúd- enta í Háskóla Íslands. Hann fagnar s t j ó r n s ý s l u - úttekt Ríkisend- urskoðunar á H á s k ó l a n u m enda hafi sam- tök hans farið fram á að slík úttekt yrði gerð. Vaka hefur áður lagst gegn öllum hugmyndum um fjöldatakmarkan- ir eða upptöku skólagjalda en það eru tvö þeirra úrræða sem skólinn hefur til að vega upp á móti fjár- skorti ár eftir ár og nefnd eru í út- tekt Ríkisendurskoðanda - aöe ■ STYRKIR ■ BANDARÍKIN ■ INDLAND ■ LAGANEMAR ATLANTSOLÍA Á AKRANESI Atlantsolía opnaði í vikunni sjálfsafgreiðslustöð á Akranesi og er þar með farin að keppa um hylli viðskiptavina á Vesturlandi, þar eru tæplega sex hundruð íbúar á hverja bensín- stöð. ÍBÚAR Á HVERJA BENSÍNSTÖÐ Höfuðborgarsvæðið 3350 Landsbyggðin 719 Vesturland 577 Vestfirðir 385 Landið allt 1418 BENSÍNSTÖÐVAR EFTIR OLÍUFÉLÖGUM Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin Skeljungur 16 30 Olís/Ódýrt bensín 19 5 Esso 17 70 Atlantsolía 3 1 FRÆÐASJÓÐUR STOFNAÐUR Fræðasjóður Úlfljóts, tímarits laganema, hefur verið stofnaður. Markmið sjóðsins er að efla fræðastarf og rannsóknarvinnu á sviði lögfræði. Árlega verður út- hlutað 600 þúsund krónum úr sjóðnum og fer fyrsta úthlutun fram nú í vor en umsóknarfrest- ur rennur út 2. maí. ÁRNI HELGASON Oddviti Vöku fagnar nýrri úttekt Ríkis- endurskoðunar á fjármálum Háskól- ans. ELDSVOÐI Í ARKANSAS Hræði- legt slys varð í Arkansas í fyrrinótt þegar 23 ára gömul kona brann inni í hjólhýsi ásamt fimm börnum. Það yngsta var aðeins átta mánaða gamalt. Ekki er vitað um eldsupptök en ná- grannar sögðu að hjólhýsið hefði orðið alelda á augabragði eftir tvær sprengingar. 24 FARAST Í LESTARSLYSI Farþegalest lenti í árekstri við kyrrstæða flutningalest í Gujarat-héraði á Indlandi með þeim afleiðingum að 24 létu lífið og 94 slösuðust. Lestar- vagnarnir hrúguðust hverjir upp á aðra við áreksturinn og urðu björgunarsveitir að klippa hinna slösuðu úr flakinu. JÓN STEPHENSON VON TETZCHNER Íslenskur forstjóri Opera Software er himin- lifandi yfir viðtökunum við nýrri útgáfu vafra fyrirtækisins og sagðist í hugaræsingi á innanhúsfundi myndu synda til Ameríku ef niðurhal næði ákveðnum mörkum. NÝBYGGING Á SELBREKKUSVÆÐINU Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir 50 til 60 íbúðum á svæðinu og styttist í að fleiri lóðir verði auglýstar. Fljótsdalshérað: Lóða- happdrætti LÓÐIR Alls bárust 182 umsóknir um átta nýjar íbúðalóðir á Sel- brekkusvæðinu á Egilsstöðum. Lóðunum verður úthlutað á mánudaginn og samkvæmt út- hlutunarreglum Fljótsdalshér- aðs verður dregið úr nöfnum umsækjenda. Hver umsækjandi fær aðeins eina lóð en þær eru í efri hluta íbúðasvæðisins í Sel- brekku og eru þetta fyrstu lóð- irnar sem úthlutað verður þar. - kk ÁNÆGÐAR Starfskonur Fjölskylduhjálparinnar fögnuðu skógjöfinni í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M 35 MILLJÓNIR Í TÓNLIST Mennta- málaráðuneytið úthlutaði 35 milljónum króna í styrki til 35 tónlistarverkefna. Hæsti styrkur- inn nemur 4,5 milljónum á ári í þrjú ár og rennur til Kammer- sveitar Reykjavíkur. Næsthæsti styrkurinn nemur fjórum millj- ónum á ári og rennur til Caput. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Áfylling á gaskúta: Olís ódýrast NEYTENDUR Áfylling á venjulegan níu kílóa gaskút reyndist ódýrust hjá Olís við könnun blaðsins í gær. Þar kostar áfyllingin 2.743 krónur en bæði Skeljungur og Esso eru tæpum 200 krónum dýr- ari. Olís er þannig ennþá með sama verð á hverri áfyllingu og var fyrir ári síðan en þá voru þeir einnig aðeins ódýrari en hin olíufélögin tvö. Esso býður áfyll- ingu á 2.995 og Skeljungur á 2.990 en verðið virðist vera mis- jafnt hjá Skeljungi, þar sem áfylling á stöð félagsins á Egils- stöðum kostaði 3.100 krónur um hádegisbil í gær. - aöe
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.