Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 29
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
Það eina sem er erfitt við
að kaupa nýjan bíl . . .
. . . er að velja vegi við hæfi
H
in
ri
k
P
é
tu
rs
s
o
n
l
w
w
w
.m
m
e
d
ia
.i
s
/h
ip
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 23. apríl,
113. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.27 13.26 21.27
AKUREYRI 5.03 13.11 21.21
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Jónas Traustason, íþrótta- og öku-
kennari, hélt upp á tíu ára afmæli
Sónötunnar sinnar fyrr í þessum mán-
uði. Bílllinn er eðaleintak og hefur
aldrei bilað.
„Þetta er ‘95-árgerðin af Huyndai Sonata
og ég féll fyrir honum af ýmsum ástæð-
um,“ segir Jónas. „Hann þurfti að vera
með góðum sætum af því ég ætlaði að
nota hann í ökukennsluna og svo varð
hann að vera hljóðlátur þar sem mér ligg-
ur ekki mjög hátt rómur. Ég þurfti reynd-
ar að taka út einangrunarmottur til að
betur heyrðist í vélinni inni í bílnum. Það
er ekki hægt að læra á bíl nema heyra í
vélinni.“
Jónas athugaði á sínum tíma hvaða bílar
uppfylltu þessar kröfur og prufukeyrði
marga bíla. „Í lokin voru fjórir eftir og þá
var þessi þriðjungi ódýrari en sá næst
ódýrasti. Það réð úrslitum.“
Jónas segist hafa hugsað sér að kaupa bíl
sem dygði í um það bil þrjú ár og 200 þús-
und kílómetra. „Nú er ég búinn að keyra
hann 410 þúsund kílómetra og enn hefur
hann hvorki æmt eða skræmt. Ég er eigin-
lega hættur að halda honum við því hann
átti aldrei að endast svona lengi. Það hefur
tvisvar verið keyrt á hann á undanförnum
þremur árum og einu sinni datt á hann mót-
orhjól og það er allt skráð á lakkinu. Ég geri
ekki meira fyrir hann og þegar hann er bú-
inn er hann bara búinn.“
Jónas er ekki með neina bíladellu og veit
aðspurður ekki hvernig bíl hann fengi sér
ef hann ætti sand af seðlum. „Örugglega
ekki sportbíl,“ segir hann. „Það þarf að
keyra þá hratt og það má hvergi á þessu
landi. Ætli ég keypti mér ekki jeppa.“
Íþróttaáhugi Jónasar er hins vegar sýnu
meiri en bílaáhuginn, en hann er íþrótta-
kennari við leikskóla í Kópavogi.
„Það er geysilegt fjör,“ segir hann.
„Krakkarnir eru svo áhugasamir að þeir
vilja alltaf mæta – jafnvel þótt þeir séu
veikir. Jú, ég er örugglega að kenna upp-
rennandi og væntanlegum keppendum á
Ólympíuleikum.“ ■
Hefur ekki hikstað á tíu árum
bilar@frettabladid.is
Stærsti bílaframleiðandi
Bandaríkjanna, General Motors,
tapaði 1,1 milljarði dala, eða
sjötíu milljörðum króna, á
fyrsta ársfjórðungi 2005. Þetta
er mesta tap fyrirtækisins síðan
árið 1992 en á sama tímabili á
síðasta ári nam hagnaður
General Motors 1,2 milljörð-
um dala. Ástæða þessar-
ar lélegu afkomu er
minni bílasala og auk-
inn kostnaður við
heilbrigðisþjónustu
starfsmanna. Fyr-
irtækið hefur einnig
þurft að greiða
kostnað vegna upp-
sagna um tólf þús-
und starfsmanna í
Evrópu.
Ingvar Helgason
býður viðskiptavinum sínum að
fá Opel bifreið lánaða í allt að
þrjá daga til reynslu frá 18. apr-
íl til 18. júní. Til að skrá sig í
reynsluaksturinn er hægt að
hringja í síma 525 8005 eða
senda póst á millionmile@ih.is.
Erna Gísladóttir
var endurkjörin formaður
Bílgreinasambandsins
(BGS) á aðalfundi
sambandsins 16. apríl
en hún er einnig
forstjóri B&L. Erna var
fyrst kosinn formaður
árið 2001 og þetta
er fimmta árið
hennar sem
formaður BGS.
Jónas er hættur að halda Sónötunni sinni við enda bíllinn búinn að endast miklu lengur en lagt var upp með.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég tók ekki
dótið þitt, ég
bara dreifði
aðeins meira
úr því!
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Hyundai Trajet reynsluekinn
BLS. 2
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI