Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 24
Jón Finnur Hansson er nýtekinn
við sem ritstjóri hestatímaritsins
Eiðfaxa sem Jónas Kristjánsson
hefur ritstýrt um tveggja ára
skeið. Jónas hefur snúið sér að
ritstjórn DV.
Jón Finnur hefur sjálfur
starfað hjá Eiðfaxa í tvö ár sem
ritstjórnarfulltrúi og aðstoðar-
maður ritstjóra. „Ég hef ágæta
þekkingu á rekstri blaðsins sem
og víðtæka þekkingu og reynslu
í hestaheiminum sem ráðunaut-
ur, kynbótadómari, gæðinga-
dómari og er með hestabakteríu
á háu stigi,“ segir Jón Finnur,
sem telur að fáir komist í fót-
spor Jónasar.
Jón Finnur segir að blaðið
fjalli um allt sem viðkemur
hestamennsku og hestamönnum.
„Allt frá líkamsrækt reiðmanna
til hormónastarfsemi hryssna.“
Hann segist ekki vita með vissu
hvort stórvægilegar breytingar
verði á blaðinu en vissulega
verði alltaf áherslubreytingar
með nýjum mönnum. Meiningin
sé að blaðið verði áfram fagtíma-
rit en hafi skemmtilegar greinar
í bland.
Starfið leggst vel í Jón Finn og
segir hann það bæði skemmtilegt
og ögrandi. Einungis tveir blaða-
menn standa að blaðinu sem
stendur og á Eiðfaxa vinna fjórir
í allt. Þá koma að blaðinu þýð-
endur, prófarkalesarar og lausa-
blaðamenn. „Við erum fá sem
stöndum að Eiðfaxa og þurfum
að vinna mjög vel saman,“ segir
Jón Finnur sem telur þó að fjölga
muni í starfsliði á næstunni.
„Eiðfaxi er í góðum málum
eins og hann er og þarf á engri
byltingu að halda heldur þarf að
hlúa að honum áfram,“ segir Jón
Finnur. ■
24 23. apríl 2005 LAUGARDAGUR
WILLIAM WORDSWORTH
(1770-1850) lést á þessum degi.
Hestabaktería á háu stigi
TÍMAMÓT: NÝR RITSTJÓRI HESTATÍMARITSINS EIÐFAXA
„Golf er orkufrekt iðjuleysi.“
William Wordsworth er eitt frægasta skáld Bretlands
fyrr og síðar. Hann lék stundum golf með mönnum á
borð við Sir Walter Scott og Sir George Beaumont.
timamot@frettabladid.is
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1547 Miguel de
Cervantes skáld.
1899 Vladimir Nabokov
skáld.
1902 Halldór Laxness
skáld.
1936 Roy Orbison tónlist-
armaður.
JÓN FINNUR HANSSON Tekur við ritstjórn Eiðfaxa af Jónasi Kristjánssyni.
Þennan dag árið 1564 fæddist
William Shakespeare. Reyndar er
ekki vitað með vissu hvenær
Shakespeare fæddist en samkvæmt
kirkjubókum var hann skírður 26.
apríl og venjan var að börn væru
skírð á þriðja degi eftir fæðingu.
Þó að Shakespeare sé eitt
þekktasta skáld fyrr og síðar er fátt
vitað um ævi hans nema það sem
verður ráðið af opinberum skjölum.
Hann var ekki af aðalsættum, held-
ur sonur sútara og innheimtu-
manns að nafni John Shakespeare.
Þegar William var átján ára kvæntist
hann konu að nafni Anne Hat-
haway, sem var átta árum eldri og
með barni þegar þau gengu í
hjónaband. Hálfu ári síðar fæddist
þeim dóttirin Súsanna. Árið 1585
eignuðust þau tvíburana Hamnet
og Judith. Ekkert er vitað um ævi
Shakespeares frá fæðingu tvíbur-
anna fyrr en hann birtist í leikhús-
senunni í Lundúnum á síðasta ára-
tug 16. aldar. Eftir að hafa gefið út
nokkur ljóð og leikrit, meðal annars
Skassið tamið, gekk hann til liðs við
leikhóp sem kallaði sig Menn kon-
ungs. Shakespeare bæði lék og
samdi fyrir hópinn sem varð brátt
sá besti á Englandi og færði höf-
undinum talsverð auðæfi. Hann
starfaði með hópnum þar til hann
settist í helgan stein aðeins 49 ára
gamall.
Shakespeare eru eignuð 38 leikverk
og fjöldi ljóða. Hann lést á sama
degi og talið er að hann hafi fæðst,
23. apríl árið 1616, ekki nema 52
ára gamall. Eiginkona hans lést sjö
árum síðar.
WILLIAM SHAKESPEARE
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1014 Víkingar myrða Brján
Írlandskonung.
1121 Jón Ögmundsson helgi
fyrsti biskup á Hólum deyr.
1925 Fyrsta ljóðabók Tómasar
Guðmundssonar, Við sund-
in blá, kemur út.
1951 Útvarpsþátturinn Óskalög
sjúklinga hefur göngu sína.
1984 Alnæmisveiran er uppgötv-
uð.
1995 Ný ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks
undir forsæti Davíðs Odds-
sonar tekur við völdum.
1997 Páll Skúlason kjörinn rektor
Háskóla Íslands.
2001 Fréttablaðið kemur út í
fyrsta sinn.
Shakespeare fæðist og deyr
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér á síðunni má senda
á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
ANDLÁT
Oddgeir Jóhannsson, Aðalgötu 5, Kefla-
vík, lést þriðjudaginn 19. apríl.
Sigríður Níelsdóttir, áður til heimilis að
Fellsmúla 7, Reykjavík, lést fimmtudag-
inn 21. apríl.
JARÐARFARIR
10.30 Gunnlaugur Ólafsson, Litlagerði
19, Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju, Vest-
mannaeyjum.
13.00 Erna María Guðmundsdóttir,
Fannafold 245, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju.
14.00 Kristín Þórðardóttir, frá
Melgraseyri, Jökulgrunni 11, verð-
ur jarðsungin frá Melgraseyrar-
kirkju.
14.00 Davíð Jóhannes Helgason, Sól-
hlíð 19, Vestmannaeyjum, verður
jarðsunginn frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum.
14.00 Oliver Kristjánsson, Vallholti 3,
Ólafsvík, verður jarðsunginn frá
Ólafsvíkurkirkju.
14.00 Guðfinna Axelsdóttir, Ytri-Nes-
löndum, Mývatnssveit, verður
jarðsungin frá Reykjahlíðarkirkju.
14.00 Dagbjartur Hansson, Hauganesi,
Árskógsströnd, verður jarðsunginn
frá Stærra-Árskógskirkju.
AFMÆLI
Hilmar Örn Hilmarsson,
allsherjargoði og tónlist-
armaður, er 47 ára.
Haraldur Jónsson mynd-
listarmaður er 44 ára.
Þröstur Leó Gunnarsson
leikari er 44 ára.
Magnús Ver Magnússon
kraftakarl er 42 ára.
Halla Margrét Árnadótt-
ir söngkona er 41 árs.
Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir, varaþingmaður
Frjálslynda flokksins, er
41 árs.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, afi
og langafi
Hjörtur Magnús Guðmundsson
Löngubrekku 47, Kópavogi,
sem lést 18.apríl síðastliðinn verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 25. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minn-
ingarsjóð Sunnuhlíðar.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún Rósa Sigurðardóttir
Karl Hjartarson Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir
Lilja Hjartardóttir
Sigrún Hjartardóttir
Guðmundur Hjartarson Þórhalla Jónsdóttir
Stefanía Hjartardóttir Helgi Hrafnsson
Gunnhildur Hjartardóttir
Ingibjörg Hjartardóttir
Skarphéðinn Þór Hjartarson Guðrún Sigríður Loftsdóttir
Elsa Unnur Guðmundsdóttir
Bragi Kr. Guðmundsson Margrét Hauksdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegt þakklæti til allra sem heiðruðu minningu
Erlendar Sigmundssonar
og sýndu okkur vináttu og samúð við fráfall hans. Starfsfólki
Hrafnistu í Reykjavík er þökkuð einstök alúð og umönnun.
Margrét Erlendsdóttir Helgi Hafliðason
Álfhildur Erlendsdóttir Eymundur Þór Runólfsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
Oddný Hansína Runólfsdóttir
er lést á hjúkrunarheimilinu Vífilstöðum fimmtudaginn 14. apríl
verður jarðsungin frá Fella- og hólakirkju mánudaginn 25. apríl
kl. 13.00.
Friðrik Jósepsson, Kristín Árdal,
Oddný og María.