Fréttablaðið - 23.04.2005, Síða 16
Frumvarp það um ríkisútvarpið,
sem menntamálaráðherra, Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, hefur ný-
lega lagt fram á alþingi, er ótrúleg
tímaskekkja.
Ríkisútvarpið hafði haft einka-
rétt á ljósvakamiðlun allt frá stofn-
un þess 1930. Þegar útvarpsrekstur
var gefinn frjáls með lögum frá al-
þingi 1985 var gert ráð fyrir að
endurskoðun á lögum um ríkis-
útvarpið færi fram ekki síðar en
þremur árum seinna, eða 1988. Það
eru því komin 17 ár fram yfir þann
tíma, sem þá var ætlaður til endur-
skoðunar laga um rekstur ríkis-
útvarpsins. Það er því vissulega tími
til kominn að endurskoða hlutverk
ríkisútvarps á frjálsum fjölmiðla-
markaði. Hins vegar vill svo til, að
sú nefnd, sem skipuð var í upphafi
þings, eftir hrakfarir fjölmiðla-
frumvarps forsætisráðherra síðast-
liðið sumar, hefur nú skilað áliti, það
álit er komið til meðferðar þingsins,
og ráð fyrir því gert að frumvarp
byggt á niðurstöðum þess verði lagt
fyrir þingið að hausti. Það er því
eðlilegt og rökrétt að afgreiðslu
þessa frumvarps verði frestað til
haustsins og þingið ræði lagasetn-
ingu um fjölmiðlamarkaðinn sem
heild, en ekki í bútum. Raunar er
ríkisútvarpið svo snar þáttur í fjöl-
miðlaneti landsmanna, að það væri
beinlínis óeðlilegt að ræða það ekki
sem hluta af því, og jafnóeðlilegt að
alþingi ræði ekki fjölmiðlamarkað-
inn í heild sinni og setji um hann lög.
Eftir 17 ára vanrækslu á því að
endurskoða lög um ríkisútvarp,
getur varla skipt sköpum, þótt það
frestist enn um nokkra mánuði.
Það hefur lengi verið vitað, að
aðildarflokkar ríkisstjórnarinnar
hafa ólíkar skoðanir á útvarps-
rekstri ríkisins. Framsóknarflokkur-
inn hefur helst viljað halda honum í
sem næst óbreyttu formi. Innan
Sjálfstæðisflokksins hafa hins vegar
verið skiptar skoðanir. Hávær hópur
manna hefur aðhyllst þá skoðun, að
forsendur séu brostnar fyrir al-
mennum afnotagjöldum, eftir að ein-
okunaraðstaða ríkisútvarpsins hefur
verið afnumin. Stór hópur hefur
einnig dregið í efa að rás 2 sé rekin í
harðri samkeppni við einkamiðla og
krafist þess að hún verði „seld“ eða
hreinlega lögð niður. Einnig hafa
komið fram raddir meðal sjálfstæð-
ismanna um að tími sé kominn til að
háeffa ríkisútvarpið, jafnvel með
það fyrir augum að einkavæða það
síðar. Þetta síðasttalda er þó eitur í
beinum framsóknarmanna. Því hafa
flokkarnir nú sæst á að esseffa það!
Gera það að sameignarfélagi, þótt
enginn sé meðeigandinn, mennta-
málaráðherra skal fara með eignar-
hlutinn og tilnefna fimm menn í
stjórn þess, sem alþingi hefur þegar
kosið, á aðalfundi sem haldinn skal í
lok maímánaðar ár hvert. Þessi
stjórn á ekki að hafa afskipti af dag-
skrárstefnu eða mannaráðningum,
öðrum en ráðningu útvarpsstjóra,
sem þannig verður ráðinn af pólit-
ískum meirihluta framvegis sem
hingað til.
Með þessu verða starfsmennirn-
ir ekki lengur ríkisstarfsmenn, og
fyrirtækinu er ætlað að starfa með
líkum hætti og keppinautarnir á
markaðnum. Vissulega þarfnast
þessi tilhögun ítarlegrar umræðu og
því ekki rétt að hespa afgreiðslu
frumvarpsins af í vor.
Gert er ráð fyrir að afnotagjöldin
verði afnumin en í þeirra stað komi
nefskattur, sem innheimtur verði
með sama hætti og önnur opinber
gjöld. Við þetta á að sparast 80 millj-
óna króna innheimtukostnaður af-
notagjaldanna og á sú upphæð því
að bætast við tekjur útvarpsins. Að
öðru leyti er stefnt að því að breytt-
ir tekjustofnar gefi sama eða svipað
af sér og núverandi fyrirkomulag.
Ákafar umræður um þetta hafa
farið fram í mörgum löndum, t.d.
núna síðast í Bretlandi í sambandi
við framlengingu útvarpsleyfis
BBC um 10 ár í viðbót. Þar komust
menn að þeirri niðurstöðu að afnota-
gjöldin væru þrátt fyrir allt sann-
gjarnasta aðferðin til að halda úti
þjóðarútvarpi – menn greiði fyrir
það að ríkið hefur byggt upp dreifi-
kerfi, sem nær til allra, hvort sem
menn svo kjósa að nýta sér það eða
ekki. Yfir 20 lönd innheimta afnota-
gjöld og í meirihluta þeirra eru þau
aðaltekjustofn ríkisútvarps. Sum
þessara landa leyfa auglýsingar að
vissu marki í ríkisfjölmiðlum, en í
öðrum eru engar auglýsingar leyfð-
ar.
Það sem er þó aðalgallinn við
frumvarp menntamálaráðherra er
að þar er menningarhlutverk ríkis-
útvarpsins hvergi skilgreint, hvað
þá að gerð sé kostnaðaráætlun um
hvað það megi kosta að rækja það.
Er það ásættanlegt að íslenskt dag-
skrárefni sjónvarps ríkisins verði
fátæklegra með hverju árinu sam-
tímis því sem það er í harðri sam-
keppni við einkamiðla um kaup og
flutning á erlendu afþreyingarefni?
Er rétt að íslenskur ríkismiðill heyi
harða samkeppni við einkastöðvar
um auglýsingar?
Það sem einkum réttlætir það að
ríkið standi áfram í fjölmiðlarekstri
á ljósvakanum, eftir að einkaleyfi
þess hefur verið afnumið, er það að
öflugt ríkisútvarp er driffjöður fyrir
öflugt og vandað útvarp á vegum
annarra, kemur af stað ákveðinni
gæðahringrás. Til þess þarf það þó
að vera fjárhagslega öflugt og geta
skipulagt dagskrárefni sitt mörg ár
fram í tímann, ekki einungis með
framleiðslu eigin efnis heldur með
samningum við sjálfstæða framleið-
endur eða kaupum á efni þeirra.
Þetta er stærra mál en svo að skyn-
samlegt geti talist að hespa því af á
nokkrum síðustu dögum þingsins.
Því er best að það bíði haustsins og
alþingi afgreiði þá lög, sem ná yfir
fjölmiðlamarkaðinn í heild. ■
Í upphafi höfðu fáir trú á að Fréttablaðið ætti sér framtíð.Þrátt fyrir bölsýni og hrakspár er blaðið fjögurra ára ídag. Vissulega átti Fréttablaðið og starfsmenn þess erfiða
bernsku. Fyrri útgefanda skorti það sem þarf til að treysta
grunn öflugs fyrirtækis. Þess vegna fór svo að svörtustu
hrakspár rættust. Fréttablaðið varð gjaldþrota rúmu ári eftir
að það hóf göngu sína. Aðrir eigendur og sterkari komu að
rekstri blaðsins og síðan hefur leiðin legið upp á við.
Við vorum ekki mörg sem komum saman í gömlu verk-
smiðjuhúsi í þeim tilgangi að brjóta í blað í íslenskri fjölmiðla-
sögu með útgáfu nýs dagsblaðs – og ekki venjulegs blaðs –
heldur blaðs sem ætlað var að dreifa ókeypis til tugþúsunda
heimila. Vinnan var strax skemmtileg og viðtökur lesenda oft-
ast aðrar en bölsýnisspárnar sem hæst fóru. Nú fjórum árum
síðar eru nokkuð margir af fyrsta hópnum enn starfandi á
Fréttablaðinu. Það fólk hefur þurft að ganga grýtta leið en
gleðilega. Árangurinn af þeirri göngu birtist daglega flestum
landsmönnum.
Fréttablaðið hefur frá upphafi haft að leiðarljósi að vera
vandað, hófsamt og sanngjarnt fréttablað. En Fréttablaðið er
ekki lengur bara fréttablað. Í upphafi var blaðið tuttugu og
fjórar síður fimm daga vikunnar. Nú er blaðið gefið út alla
daga og síðurnar eru á milli fjögur og fimm hundruð í hverri
viku, þá er Birta ekki talin með. Það er margt fleira en hefð-
bundnar fréttir á öllum þessum síðum. Alla daga fylgir blað-
inu blaðaukinn Allt, en þar er fjallað um flest það sem lýtur að
daglegu lífi fólks. Nýverið hóf Fréttablaðið að gefa út Markað-
inn, sem er vandað sérblað um viðskipti og kemur út einu sinni
í viku. Auk þess koma út í viku hverri eitt eða fleiri sérblöð um
hin ýmsu mál. Um tvö ár eru frá því að Fréttablaðið hóf útgáfu
á tímaritinu Birtu – sem nú er víðlesnasta tímarit landsins.
Aðkoma Fréttablaðsins að Talstöðinni er nýjasta viðbótin.
Frá og með mánudeginum annast Fréttablaðið morgunþátt
Talstöðvarinnar, Morgunútvarpið, sem er viðbót við Hádegis-
útvarpið sem blaðið hefur haft umsjón með frá upphafi Tal-
stöðvarinnar. Auk þess sér ritstjórn Birtu um vikulegan þátt.
Þegar litið er um öxl má brosa út í annað að erfiðleikunum
í upphafi en miklu fremur er ástæða til að gleðjast yfir öllum
þeim sigrum, stórum sem smáum, sem unnist hafa vegna þess
hversu góðar móttökur blaðið hefur hlotið hjá lesendum í fjög-
ur ár. Án lesenda er ekkert blað og áfram munum við vinna í
þeim anda, að vera heiðarlegt og vandað blað til að endur-
gjalda lesendum þann trúnað sem þeir hafa sýnt Fréttablað-
inu. ■
23. apríl 2005 LAUGARDAGUR
SJÓNARMIÐ
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
OG SIGURJÓN M. EGILSSON
Frá upphafi útgáfu Fréttablaðsins hefur það
vaxið og dafnað og leitt af sér aðra fjölmiðla.
Fréttablaðið
í fjögur ár
FRÁ DEGI TIL DAGS
Án lesenda er ekkert blað og áfram munum við
vinna í þeim anda að vera heiðarlegt og vandað
blað til að endurgjalda lesendum þann trúnað sem þeir
hafa sýnt Fréttablaðinu.
,,
Tímaskekkja
Davíð reiður Morgunblaðinu
Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur
ekki enn fyrirgefið Agnesi Bragadóttur
og Morgunblaðinu fyrir að hafa birt frétt
á forsíðu blaðsins um símasöl-
una. Þar kom fram að Hall-
dór og Davíð hefðu „hand-
salað“ samkomulag um
sölufyrirkomulagið. Davíð
sagði á blaðamannafundi
í gær, sem haldinn var af
tilefni tíu ára afmæli ríkis-
stjórnarinnar, að fréttin
væri helber upp-
spuni. Hann og
Halldór hefðu
aldrei handsal-
að neitt sam-
komulag.
Skemmtilegar eldhúsumræður
Þrír helstu stuðningsmenn og ráðgjafar
Össurar Skarphéðinssonar í formanns-
slagnum í Samfylkingunni; Mörður Árna-
son, Óskar Guðmundsson og Einar Karl
Haraldsson, forðast eflaust að ræða
formannskjörið á heimilum sínum.
Umræðuefnið er vafalaust eldfimt
því þannig vill til að eiginkonur
þeirra allra eru stuðningsmenn
keppinautarins, Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur. Kristín Ólafsdóttir, eigin-
kona Óskars, og Steinunn Jóhanns-
dóttir, eiginkona Einars Karls,
hafa ekki lýst yfir stuðningi
sínum opinberlega, en eru
engu að síður sagðar vera
einarðir stuðningsmenn
Ingibjargar Sólrúnar.
Lýðræðissinnuð kvenréttinda-
kona
Linda Vilhjálmsdóttir, eiginkona Marðar,
hefur birt opinbera stuðningsyfirlýsingu
við Ingibjörgu Sólrúnu á kosningavef
hennar. Þar segist hún styðja Ingi-
björgu vegna þess að hún sé kvenrétt-
indakona, lýðræðissinnuð, jafnaðar-
maður og baráttukona og henni sé
„treystandi til að meðhöndla vald af
auðmýkt og virðingu“. Reyndar er það
skiljanlegt að Linda styðji Ingibjörgu því
sama er hve Össur reyndi mikið, og er
honum nú margt til lista lagt, hann
gæti aldrei orðið lýðræðissinnuð kven-
réttindakona.
sda@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Öflugt ríkisútvarp er
driffjöður fyrir öfl-
ugt og vandað útvarp á veg-
um annarra, kemur af stað
ákveðinni gæðahringrás.
,,
Í DAG
LÖG UM RÍKISÚTVARPIÐ
ÓLAFUR
HANNIBALSSON