Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 30
Loftþrýstingur í dekkjum
Mjög mikilvægt er að réttur loftþrýstingur sé í dekkjum, því það hefur með-
al annars áhrif á slit, fjöðrunar- og bremsueiginleika bílsins og þarf að
athuga hann mánaðarlega.[ ]
REYNSLUAKSTUR
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
Sláttuvélarnar eru komnar í hús
Flottar vélar – frábær verð
Pabbi, mamma, börn og bíll
Huyndai Trajet er afar rúm-
góður sjö manna fjölskyldu-
bíll. Þetta er bíll sem býður
upp á mikinn sveigjanleika í
umgengni og er hagkvæmur
valkostur fyrir barnmargar
fjölskyldur.
Hyundai Trajet er rúmgóður og
mikill bíll. Hann er ótrúlega lipur
miðað við stærð, léttur í stýri og
með ágætan kraft enda hefur ný
tveggja lítra 140 hestafla vél leyst
þá eldri af hólmi. Þetta er VVTI vél
með breytilegum ventlabúnaði sem
gerir að verkum að hún vinnur bet-
ur en sú gamla, er bæði snarpari og
eyðslugrennri. Bíllinn er einnig fá-
anlegur með 112 hestafla einbunu
dísilvél.
Reynsluekinn var beinskiptur
bíll með bensínvél. Stærð bílsins
vekur óneitanlega þægilega örygg-
istilfinningu enda er hann eins og
klettur á veginum. Um leið er hann
þægilegur í akstri og allri um-
gengni. Hvert sæti í bílnum er
stakt. Þetta gerir þau bæði þægileg,
ekki síst í öftustu röðinni þar sem í
sumum sjö manna bílum er boðið
upp á bekk sem getur verið nokkuð
harður. Framsætunum má snúa aft-
ur og aftursætin má bæði leggja
saman og einnig taka þau út úr bíln-
um. Mikil hugkvæmni er í hirslum
og glasabökkum í bílnum, meðal
annars eru borð aftan á öllum sæt-
um, niðurfellanleg á framsætunum
og plötur sem nýtast sem borð þeg-
ar aftari sætin eru lögð niður.
Möguleikarnir eru því ótrúlega
margir í samspili sætafjölda og far-
angursrýmis og við að koma fjöl-
skyldunni fyrir, til dæmis þegar
nestis er neytt á ferðalögum. Far-
angursrýmið aftan við þriðju far-
angursröð leynir reyndar á sér, er
nógu stórt fyrir stórinnkaup eða
barnakerru. Í því er einnig hand-
hægt farangursnet sem kemur í veg
fyrir að smærri hlutir fari á flakk.
Bíllinn er með ABS-hemlum og
fjórum líknarbelgjum, auk þess
sem sérhannaður stálrammi mynd-
ar innbyggðan höggdeyfi á framhlið
bílsins þannig að hann leggst saman
við árekstur sem dregur úr höggi og
ver bílstjóra og farþega.
Hyundai Trajet er tvímælalaust
góður valkostur fyrir barnmargar
fjölskyldur. Og ekki spillir verðið
fyrir, rúmlega 2,2 milljónir króna
fyrir sjö manna bíl hlýtur að teljast
hagstætt. steinunn@frettabladid.is
Hyundai jepplingar seljast mest og eru
með rúmlega fimmtungs hlut eða 22%,
samkvæmt sölutölum fyrstu þrjá mánuði
ársins. Honda er í öðru sæti með rúm
20% og Toyota er í þriðja sæti með rúm
16%.
Honda CR-V er mest selda einstaka teg-
und jepplinga með 140 selda bíla og
hafa aldrei áður jafn margir Honda CR-V
bílar selst á jafn stuttum tíma hjá Bern-
hard og umboðsaðilum. Þetta er 121%
aukning frá því á sama tíma á síðasta ári.
Toyota RAV er í öðru sæti en af þeim bíl
seldust 122 bílar.
Ef litið er til jepplinga með dísilvél er
hlutdeild Hyundai 75%. Að sögn Heiðars
J. Sveinssonar, forstöðumanns sölusviðs
B&L, skýrist þessi þróun meðal annars af
afar góðri sölu á Tucson, sem kom nýr á
markaðinn í haust. Í öðru sæti yfir sölu-
hæstu dísiljepplingana er Kia með 18%
hlut og Toyota er í því þriðja með 5,5%.
Hyundai með söluhæstu jepplingana
BORGARJEPPINN HONDA CR-V ER SÖLUHÆSTA EINSTAKA TEGUNDIN.
HYUNDAI TRAJET
Vél Hestöfl Beinskiptur Sjálfskiptur
Hyundai Trajet GLS 2000 140 kr. 2.220.000 kr. 2.320.000
Hyundai Trajet 2000 113 kr. 2.620.000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SALA JEPPLINGA
janúar til mars 2005
Tegund Sala stk. %
Hyundai Santa Fe/Tucson 174 22,16
Honda CR-V/HR-V 160 20,38
Toyota RAV4 128 16,31
Ford Escape 78 9,94
Nissan x-trail 58 7,39
MMC Outlander 53 6,75
Suzuki Grand Vitara 49 6,24
Kia Sportage 30 3,82
Huyndai Trajet er rúmgóður sjö manna bíll.