Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 61
Gagnrýndur
fyrir reykingar
Dansarinn Kevin Federline, eigin-
maður poppprinsessunnar Britney
Spears, hefur verið
gagnrýndur fyrir
að reykja ofan í
Spears sem er
ófrísk af þeirra
fyrsta barni.
Teknar voru
ljósmyndir af
Federline þar sem
hann reykti í bíl
með eiginkonu
sinni sem vöktu
hörð viðbrögð hjá
ritstjóra tímaritsins Fit Pregnancy.
„Ef Kevin vill reykja á hann að gera
það einn undir berum himni,“ sagði
ritstjórinn. ■
LO-435
Opel Astra 1.2
n‡skr. 06.01. ek 90 flús km
Ver› 910.000,-
Tilbo› 720.000,-
Betri díll 650.000,-
SE-688
Nissan Patrol Elegance
n‡skr. 02.04. ek 100 flús km
Ver› 4.180.000,-
Tilbo› 3.730.000,-
Betri díll 3.330.000,-
SU-193
Opel Astra Coupe
n‡skr 02.03. ek 32 flús km
Ver› 2.180.000,-
Tilbo› 1.680.000,-
Betri díll 1.480.000,-
AK517
Nissan Terrano Sport
n‡skr 09.01. ek 110 flús km
Ver› 1.870.000,-
Tilbo› 1.650.000,-
Betri díll 1.520.000,-
KX-416
MMC Lancer Wagon
n‡skr. 03.97. ek 131 flús km
Ver› 640.000,-
Tilbo› 420.000,-
Betri díll 380.000,-
Vegna breytinga á húsakynnum
okkar bjó›um vi› 55 bíla
á ótrúlegum kjörum
PF-157
Suzuki Vitara
n‡skr. 06.00. ek. 79flús km
Ver› 1.070.000,-
Tilbo› 820.000,-
Betri díll 720.000,-
LN-030
Hyundai Elantra
n‡skr. 06.02. ek 54 flús km
Ver› 1.190.000,-
Tilbo› 970.000,-
Betri díll 890.000,-
TB-349
Suzuki Ignis
n‡skr. 12.03. ek 18 flús km
Ver› 1.330.000,-
Tilbo› 1.070.000,-
Betri díll 980.000,-
NB-766
Renault Laguna
n‡skr. 11.99. ek 95 flús km
Ver› 950.000,-
Tilbo› 750.000,-
Betri díll 680.000,-
VJ-339
VW Passat Basic Line
n‡skr. 07.99. ek 74 flús km
Ver› 1.080.000,-
Tilbo› 880.000,-
Betri díll 780.000,-
NOTA‹IR BÍLAR
BETRI DÍL
Á NOTU‹UM BÍL
12:00–16:00
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
fiú fær›...
hjá Ingvari Helgasyni
Al
lt
a›
40
0.0
00
kr
. a
fs
lát
tu
r
Leikarinn Pierce Brosnan hefur
viðurkennt að hafa lent í rifrildi
við Teri Hatcher við tökur á Bond-
myndinni Tomorrow Never Dies
fyrir nokkrum árum síðan.
„Hún lét mig bíða eftir sér í
margar klukkustundir,“ sagði
hann. „Ég verð að viðurkenna að
ég sagði ýmislegt við hana sem
var ekki sérlega fallegt.“ Sagan
segir að Hatcher hafi síðar slegið
Brosnan í alvörunni í einu atriði
myndarinnar til að ná fram hefnd-
um. ■
45LAUGARDAGUR 23. apríl 2005
■ KVIKMYNDIR
■ TÓNLIST
Það er eitthvað stuðandi við The
Bravery. Þeir hljóma eins og sveit
sem getur ekki ákveðið sig hvort
þeir eigi að verða eins og Duran
Duran, The Cure eða The Hives.
Söngvarinn virðist þó vera sá eini
sem heldur að hann sé í The Smiths.
Morrissey-áhrifin í söng hans eru
mjög greinileg, þó svo að raddir
þeirra séu ólíkar. Textarnir eru líka
góðir. Þeir blanda líka afar smekk-
lega saman hljómborðum við ebow-
gítar.
The Bravery eru melódískir og
eru með nokkra slagara í pokahorn-
inu, við eigum eftir að heyra í þeim
annað slagið langt fram á næsta
haust, það er alveg á hreinu. Þetta
er allt frekar smekklegt og smart
en af einhverjum ástæðum hreyfir
þetta ekkert gífurlega mikið við
mér. Sá grunur rennur að mér að
þessir menn séu í hlutverkum og
eltist of mikið við hluti sem eru ekki
þeirra. Það læðist því að mér sá
grunur að þeir gætu farið of langt
yfir strikið einn daginn og orðið
afar óspennandi. Vonandi hef ég
bara rangt fyrir mér, því hér innan-
borðs leynast hæfileikaríkir laga-
höfundar.
Ef þið hafið gaman að bílskúrs-
rokki, húðuðu með sykurflúri frá
hinum hárprúða níunda áratug, þá
er þetta platan fyrir ykkur. Hér er
vel hægt að missa sig í dans á góð-
um degi. Birgir Örn Steinarsson
Hugrekkið
uppmálað?
THE BRAVERY: THE BRAVERY
THE BRAVERY ER LÍKLEGAST HLJÓMSVEIT
SEM ÞÚ ÁTT ANNAÐHVORT EFTIR AÐ ELSKA
EÐA HATA. FRUMRAUN ÞEIRRA ER VANDAÐ
SYKURHÚÐAÐ BÍLSKÚRSROKK SEM ÆTTI AÐ
KOMA ROKKÁHUGAMÖNNUM Í GOTT SKAP,
A.M.K. AÐ FÁ ÞÁ TIL AÐ BROSA.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
PIERCE BROSNAN Bondinn var ósáttur
við framkomu Teri Hatcher við tökur á
Tomorrow Never Dies.
Reifst við Hatcher
FEDERLINE OG
SPEARS
Federline hefur
verið harðlega
gagnrýndur fyrir
reykingar sínar.