Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Besti vinurinn Léttur öllari Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is Gerðu garðinn frægan IK E 28 10 3 0 4. 20 05 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 5 Draumasumar 150,- BETTNA vatnskanna 300 ml STORÖN bekkur 170 smÄPPLARÖ fellistóll 12.900,-4.900,- PARKET gólfklæðning 50x50 sm 890,- ÄPPLARÖ sólbekkur 9.900,- HINK blómapottur Ø14 H16 sm 295,- BRÄMÖN sessa 190x48 sm 2.490,- OLLONÖ blómapottur Ø27 H13 sm 890,- HALLON blómapottur Ø14 H12 sm 295,- ODLA blómagrind 51x19 sm 990,- FÄNÖ blómapottur Ø31 H25 sm 990,- TISTELÖ bali Ø55 H28 sm 3.490,- 790,- MYNTA blómapottur 32 sm terracotta KUNGSHATT garðskraut 22 sm 495,- 290,- Salat Baccalao Guðsótti Mér flaug í hug þegar ég var aðkoma ungri stúlku í bílstólinn sinn einn morguninn núna í vikunni hvort páfinn í Róm væri kannski á móti barnabílstólum. Kaþólska kirkj- an virðist nefnilega vera á móti svo mörgu á þessum síðustu og verstu að maður er orðinn hálf óttasleginn. Í hverju því sem maður tekur sér fyrir hendur getur maður fallið í þá hugsun að hugsanlega sé maður að gera eitt- hvað sem er hinni ævafornu kirkju- deild ekki þóknanlegt, og samt er ég ekki kaþólskur eða neitt svoleiðis, maður bara fær sektarkennd samt. Ég meina, barnabílstólar? Eru þeir ekki inngrip í eðlilega framvindu hinnar guðlegu forsjónar, eða eitthvað? Hólí Móses. ÚFF, eins gott að maður sé ekki hommi og þurfi að búa við það að vera fordæmdur 24 tíma sólarhrings alla daga vikunnar út af einhverju sem ætti í sjálfu sér ekki að koma neinum öðrum við. Og eins gott að maður sé ekki kona, nóg er nú bölvunin samt. Áróður hinnar kaþólsku kirkju um að maður sé meira eða minna sekur hvernig sem á málin er litið – og í mínu einstaka tilviki væntanlega á leiðinni beinustu leið til helvítis því ég spila stundum rokk og hef jú notað getnaðarvarnir, þótt ég eigi enn eftir að gera bæði í einu – gerir það að verkum að maður er svona hálfpart- inn farinn á taugum út af samvisku- biti og farinn að ganga um með sól- gleraugu hálf skuggalegur dags dag- lega og býst við eldingu í hausinn á hverri stundu. ÚT AF FYRIR SIG er það merkilegt að til sé tvöþúsund ára stofnun í heim- inum sem lætur smokka fara svona í taugarnar á sér. Hvernig var þetta áður fyrr? Eignaðist fólk barn eftir hvert einasta skipti eða hvernig var það? ÞETTA er auðvitað gömul saga og ný. Í kristinni bókstafstrú er flest það sem til framfara heyrir – en smokkur- inn var jú ákveðið framfaraskref – kennt við djöfulinn. Eplið góða í Eden var ekki bara af einhverju tré heldur var það af ekki minni plöntu en sjálfu Skilningstrénu. Þetta fékk mig til að hugsa þegar ég var patti. Hvað var að því að borða af Skilningstré og þar af leiðandi væntanlega skilja meira? Á maðurinn ekki að skilja neitt? ÉG hlýddi einu sinni á fyrirlestur, eða öllu heldur át stundarkorn af skiln- ingstré bókmenntafræðinnar, hér í eina tíð uppi í Háskóla Íslands. Sá syndugi fyrirlestur fjallaði um það hvernig það er leiðandi þema í Biblí- unni að flest það sem maðurinn gerir – eins og að vilja skilja meira, vilja búa í borgum, stunda kynlíf, spila í hljómsveitum og svo framvegis – er djöfullegt. Og sá djöfullegasti er auð- vitað sjálfur Djöfullinn sem einmitt réðist gegn hinu ríkjandi valdboði um að ekkert mætti, og síðan þá, sam- kvæmt þessum fyrirlestri, hefur þessi barátta haldið áfram endalaust á milli a) þeirra sem vilja banna flest og halda lýðnum í skefjum og b) hinna sem vilja nota smokk. Góðar stundir. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.