Fréttablaðið - 03.06.2005, Qupperneq 1
Æskul‡›sfulltrúi
á elliheimili
STEFÁN EINAR STEFÁNSSON
▲
FÓLK 46
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ATVINNUMÁL „Þetta er reiðar-
slag,“ sagði Jón Páll Jakobsson,
sjómaður á Bíldudal, um upp-
sagnirnar hjá fiskvinnslustöð-
inni Bílddælingi. Hann og kona
hans eru bæði meðal starfs-
manna fyrirtækisins og sjá því
fram á að missa vinnuna.
„Það hefur að sjálfsögðu
slæma þýðingu fyrir byggðar-
lagið þegar svo margir missa
vinnuna,“ sagði Jón Páll í Hádeg-
isútvarpi Talstöðvarinnar í um-
sjón Fréttablaðsins í gær. Skel
Bílddælinga er þó orðin hörð að
sögn Jóns Páls enda Bílddæling-
ur fimmta fyrirtækið í röðinni
síðan árið 1992 til að hverfa á
braut.
Jón og kona hans eiga fjögur
börn á aldrinum tveggja til tíu
ára. Jón Páll telur eigin mögu-
leika á starfi annars staðar
ágæta en hann geti þurft að
sækja vinnu fjarri heimilinu.
Erfiðara sé fyrir konu hans að fá
aðra vinnu. Jón Páll sagði fjöl-
skylduna ekki ætla að yfirgefa
Bíldudal. Til standi að reisa
kalkþörungaverksmiðju á Bíldu-
dal en vinnsla á ekki að hefjast
fyrr en á haustmánuðum árið
2006.
Jón Páll sagði fólk almennt
hætt að hugsa mikið um hvað við
taki hjá byggðarlaginu. „Bar-
áttuandinn er alveg horfinn,“
sagði Jón Páll. „Mjög erfitt er að
yfirgefa þorpið enda ómögulegt
að taka húsið með sér.“ Lítil
hreyfing er á fasteignamarkaði í
bænum og þar býr fátt ungt fólk.
„Byggðarlagið samanstendur að
mestu af fólki sem komið er yfir
miðjan aldur og á húsin sín
skuldlaus,“ sagði Jón Páll. - ht
Uppsagnirnar reiðarslag segir fjölskyldufaðir:
Baráttuandinn er alveg horfinn
&Hellur steinar
S. 540 6800
www.steypustodin.is
HÁLFSKÝJAÐ EÐA SKÝJAÐ Hætt við
lítilsháttar vætu suðvestan til, annars yfirleitt
þurrt. Hiti 6-13 stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐUR 4
MÖGNU‹
TILBO‹
Á N†JUM VÖRUM
Kaup
2.-5. júní
til sunnudags!til !
Sterkari en Ungverjar
Ásgeir Sigurvinsson landsliðs-
þjálfari segir að Ísland ætti að
leggja Ungverjaland. Hann segir
að í versta falli þurfi liðið að fá
fjögur stig úr næstu
tveimur leikjum
en krafan er
sex stig.
ÍÞRÓTTIR 30
Almenningur hluti af
listsköpun Sigga
Fjöllistahópurinn Siggi er einn
af þeim hópum sem
munu starfa á veg-
um Hins húss-
ins í sumar í
Skapandi
sumarstarfi.
UNGA FÓLKIÐ 38
Matseldin alfari›
úti í gar›i
ÞRÖSTUR BJÖRGVINSSON
Í MIÐJU BLAÐSINS
● matur ● tilboð ● langur laugardagur
▲
BARIST VIÐ SINUELD Mikill sinubruni braust út við Litla-Sandfell í Þrengslum í gær. Slökkviliðið í Þorlákshöfn fékk tilkynningu laust fyrir
eitt og var mætt á staðinn klukkan eitt. Slökkvilið Hveragerðis mætti einnig á svæðið og um klukkan fimm var búið að slökkva eldinn.
Tólf hektarar lands brunnu í sinubrunanum. Eldurinn kviknaði út frá reykblysi sem kastað var úr annarri tveggja þyrla varnarliðsins sem
voru þar að æfingum. Svo virðist sem eldur frá blysinu hafi komist í sinuna með ofangreindum afleiðingum.
Alfre› vill flugvöllinn burt
Alfre› fiorsteinsson segir a› landfylling undir n‡jan Reykjavíkurflugvöll á Lönguskerjum í Skerjafir›i
gæti kosta› 10 til 20 milljar›a króna en menn megi ekki láta flann kostna› vaxa sér í augum. Sala ló›a í
Vatnsm‡rinni geri gott betur en a› hrökkva fyrir fleim kostna›i.
tíska heilsa stjörnuspá persónuleikapróf matur tónlist pistlar
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
3.
jún
í –
10
. jú
ní
GEFUR ÞÉR GAUM
ANDI FORTÍÐAR
»Í MIÐBÆNUM«
VERSLUN JÓRUNNAR
BRYNJÓLFSDÓTTUR
& FLEIRI BÚÐIR SEM
MINNA Á LIÐNA TÍÐ
COLDPLAY
» Ný plata á leiðinni
SNJÓLAUG BRAGA
» Ástarsöguhöfundur dregur sig í hlé
Gömlu bú›irnar
í bænum
ANDI FORTÍÐAR
● snjólaug braga ● coldplay ● heilsa
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Pólitískt stormviðri:
Vilja ekki a›
konur keyri
SÁDI-ARABÍA, AP Mörgum er heitt í
hamsi vegna vangaveltna um hvort
leyfa eigi konum að aka bíl.
Allt hófst þetta með því að Mo-
hammad al-Zulfa stakk upp á því á
ráðgjafaþingi Sádi-Arabíu að skoð-
aðir yrðu kostir þess og gallar að
konur fengju að aka bíl, en það er
stranglega bannað í landinu. Síðan
þá hefur al-Zulfa orðið fyrir miklu
aðkasti og vilja sumir svipta hann
ríkisborgararétti.
Stuðningsmenn bannsins segja
það fyrirbyggja að konur komist
eftirlitslaust leiðar sinnar og brjóti
jafnvel íslömsk lög í leiðinni. ■
FÖSTUDAGUR
3. júní 2005 - 148. tölublað – 5. árgangur
Gömul brög› í
n‡rri stö›u
Gömul slagorð um vinstri hættur
og varnarleysi verða líklega áber-
andi í málflutningi sjálfstæðis-
manna og nýrri pólitískri
stöðu verður mætt á
stöðnuðum sagnfræði-
legum forsendum,
að mati Birgis
Guðmundssonar.
SKOÐUN 24
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Alfreð Þor-
steinsson, Framsóknarflokki og
borgarfulltrúi R-listans, telur tíma-
bært að höggva á hnútinn um
Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýr-
ina. Hann vill reisa nýjan flugvöll á
uppfyllingu við svonefnd Löngu-
sker í Skerjafirði og segir það ekki
kostnaðarsamara en að reisa orku-
ver á Hellisheiði.
Alfreð telur ástæðu til að skoða
nánar tillögur Sjálfstæðisflokksins
um byggð á eyjunum við sundin
norðan Reykjavíkur. „Hins vegar er
alveg ljóst að þessi mál eru ekki
næsta stóra viðfangsefnið á sviði
skipulagsmála í
Reykjavík. Þar
hlýtur Vatns-
mýrin að koma
á undan. Hvorki
Sjálfstæðiflokk-
urinn né R-list-
inn geta skotið
sér undan því að
taka afstöðu um
framtíð Reykja-
víkurflugvall-
ar.“
Alfreð segir
ljóst að aldrei muni nást sátt um að
Reykjavíkurflugvöllur verði í
Vatnsmýrinni til frambúðar, hvorki
í núverandi mynd né smækkaðri.
„Jafnljóst er að það er skylda
Reykjavíkur sem höfuðborgar að
greiðar flugsamgöngur séu í næsta
nágrenni borgarinnar og þá er ég
ekki að tala um Keflavíkurflugvöll
heldur flugvöll sem staðsettur yrði
nær höfuðborginni. Kostnaður við
nýjan flugvöll ásamt landfyllingu
og vegagerð gæti numið 10-20 millj-
örðum króna, en á móti koma tekjur
af sölu lóða í Vatnsmýrinni langt
umfram þennan kostnað,“ segir
Alfreð.
Hugmyndin um flugvöll á
Lönguskerjum er ekki ný af nál-
inni, segir Alfreð og bendir á að
framsóknarmenn hafi meðal ann-
arra lagt fram hugmynd í þá veru
í borgarstjórn fyrir um 30 árum.
Einnig hafi Hrafn Gunnlaugsson
gert henni skil í sjónvarpsmynd
um framtíðarsýn sína um skipulag
höfuðborgarinnar. „Þetta er ein-
faldlega skynsamlegt og arðsamt
verkefni fyrir borgina og ríkið.“
Alfreð Þorsteinsson fjallar nán-
ar um skipulagshugmyndir sínar,
Sjálfstæðisflokkinn og fleira í við-
tali við Fréttablaðið á morgun,
laugardag. - jh
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
22 ÁRA Á HRAFNISTU
ALFREÐ Ljóst að
aldrei næst sátt um
að flugvöllurinn verði
áfram í Vatnsmýrinni.
ÁN ÖKULEYFIS Konur í Sádi-Arabíu mega
ekki aka bíl og því verða þær ýmist að
ganga eða fá karlmenn til að keyra sig.
VEÐRIÐ Í DAG
JÓN PÁLL JAKOBSSON ÁSAMT ÞREMUR
BARNA SINNA Jóni Páli og eiginkonu hans
var sagt upp störfum þegar allir starfs-
menn fiskvinnslunnar Bílddælings fengu
uppsagnarbréf um mánaðamótin.