Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 18
18 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR Átökin um Austurvöll Forseta Alþingis er í nöp við árvissa ljósmyndasýningu á Austurvelli. Flestir aðrir nábúar Austurvallar eru ánægðir með sýningarnar. Fjörlegar umræður hafa spunn- ist um ljósmyndasýningarhald á Austurvelli í kjölfar bréfs Hall- dórs Blöndal, forseta Alþingis, til Steinunnar Valdísar Óskars- dóttur borgarstjóra en í því fer hann fram á að borgin láti af sýningarhaldi á Austurvelli enda finnist honum óviðeigandi að völlurinn sé notaður með þessum hætti. Margir eru ósammála Hall- dóri en segja engu að síður að lítil prýði sé af steinstöplunum sem ljósmyndirnar hvíla á. Skemmst er frá því að segja að borgaryfirvöld hyggjast virða erindi þingforsetans að vettugi og hefst sýning á ljós- myndum Ragnars Axelssonar 24. júní. Ráðamenn Reykjavíkur eru vitaskuld í fullum rétti þegar þeir ákveða hvernig Austurvöll- ur skuli notaður en engu að síð- ur er eðlilegt að starfsmenn nærliggjandi húsa hafi ríka skoðun á því sem þar fer fram. Ásdís Sigurðardóttir vinnur á Thorvaldsen og er hrifin af sýn- ingunum. „Mér finnst þetta æðis- legt. Austurvöllur er frábær staður og mér finnst frábært að eitthvað svona sniðugt sé gert hérna því þetta lífgar upp á mið- bæinn.“ Hún telur Austurvöll alls ekki vanvirtan með sýning- arhaldinu og telur grasið ekki fara illa þótt fólk spígspori um það og skoði myndirnar. Sonja Magnúsdóttir starfar í móttökunni á Hótel Borg í sum- ar. „Fyrir ferðamenn er þetta örugglega mjög skemmtilegt,“ segir hún en það eru helst út- lendingar sem dvelja á hótelinu. Líklegt verður að telja að flestir þeirra leggi leið sína yfir Póst- hússtrætið og berji myndirnar augum. „Mér finnst í fínu lagi að á Austurvelli sé annað slagið eitthvað að sjá fyrir landsmenn og erlenda ferðamenn en það má ekki ofgera því,“ segir Sonja, sem þó hefur smá áhyggjur af grasinu. Séra Hjálmar Jónsson dóm- kirkjuprestur er á báðum áttum í málinu en tekur skýrt fram að hann sé feginn því hvað borgin hefur lifnað yfir sumarið. „Ég er mjög glaður yfir þeirri list sem þarna hefur verið sýnd undanfarin ár og vænti einnig góðs af listinni nú í sumar. En ég neita því ekki að mér finnst steinsteypan dálítið mikil og velti fyrir mér hvort ekki sé skynsamlegra, að minnsta kosti stundum, að fara með allt þetta grjót á Ingólfstorg, þar er grjót hvort eð er.“ bjorn@frettabladid.is SVONA ERUM VIÐ Eyþór Arnalds hefur síðastliðna mánuði verið eins og jójó milli Lundúna og Íslands. Hann starfar hjá fyrirtækinu Enpocket sem þjónustar farsímafyrirtæki og sameinaðist Landmati á síðasta ári en þar starfaði Eyþór áður. Aðal- skrifstofur fyrirtækisins eru í London og því kallar vinnan á mikil ferðalög. Eyþór var á leið heim til Íslands í gær en hann reynir að vera að minnsta kosti tíu daga í hverjum mánuði í Reykjavík. Þá eyðir hann eins miklum tíma með börnum sínum og hann getur. „Já, það er aðeins lengra í vinn- una,“ segir Eyþór kíminn, þegar hann er spurður hvernig honum líki þessi ferðalög. London sé skemmtileg borg en hins vegar sjái hann ekki fram á að vinna við þetta lengur en út árið. Hvað tekur við er ekki víst. „Það verður eitt- hvað spennandi,“ segir Eyþór, sem hefur lítið komið nálægt tónlistinni í lengri tíma. Hann segir þó að það sé með tónlistina eins og hjólið. Maður gleymi því ekki svo glatt. Eyþór ætlar að taka sér eitt- hvert frí í sumar. Þá ætlar hann að vera hér heima. „Það er best að vera á Íslandi, það er ekki spurn- ing,“ segir hann og er feginn að ís- lenska sumarið skuli loksins vera komið. Draumastaður Eyþórs er uppi við Álftavatn og ætlar hann að reyna að verja einhverjum tíma þar í sumar ásamt börnum sínum. Fer›ast til London í vinnuna HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EYÞÓR ARNALDS                !"#$%%&     ' (       (   ) * +,,,,,,,, -        .$ / -  . % / -  . % / 0 $"1%%%2 3  3             *  '4   , ' *    5  ' 3  6  ')   * 4  * '     7 '  * 8  )   90  :4  "  & ;#&11  *  5 * $ (  '   2  * * *      !" #$$ < 3  )        %!  " %   &'(    !  ) $$$   * +"  ,        * -   .  % ///  0  1    2   = >  ? +;11@$AA  ( '+;11@$%% *'BC DDD #  Á BÁÐUM ÁTTUM Séra Hjálmar veltir fyrir sér hvort grjótstöplarnir eigi ekki betur heima á Ingólfstorgi en væntir góðs af list sumarsins. HALLDÓR er ósátturSTEINUNN heldur sínu striki Ólafur Stefánsson garðyrkjubóndi að Syðri Reykjum í Biskupstungum orti um bréf Halldórs: Halldór Blöndal heimaríkur hugar að Austurvelli. Ráðhúsklíku Reykjavíkur rekur hann burt í hvelli. Séra Hjálmar Jónsson hugsaði stutt- lega um málið og kvað svo: Austurvöllur blómskrúð er og brosir öllum móti. En hvort er magnið meira hér af menningu eða grjóti? Blíða á Kárahnjúkum: Vaknar klukkan sex „Það hefur verið blíða á Kárahnjúkum síðustu daga,“ segir Oddur F r i ð r i k s s o n , sem vinnur að v i r k j u n a r - fræmkvæmd- unum þar efra. Þegar svo hátt- ar til starfa menn í glaða sólskini frá morgni til kvölds. „Glugginn minn snýr í austur og ég er glað- vaknaður klukkan sex á morgn- ana.“ Oddur grætur það ekki enda fegurðin talsverð. „Morgnarnir hér eru fallegir og kvöldin líka,“ segir hann. Fimm stiga hiti var á Kára- hnjúkum um miðjan dag í gær. - bþs ODDUR FRIÐ- RIKSSON Vaknar við morgunsólina á Kárahnjúkum. SÁTTAR Sonja á Borginni og Ásdís á Thorvaldsen eru ánægðar með sýningahaldið á Austurvelli.TÍMAMÓTUM FAGNAÐ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Nursultan Nazarbajev, forseti Kasakstan, stilltu sér upp fyrir myndatöku á geimflaugaskotpallinum í Baikonur í Kasakstan. Hálf öld er liðin síð- an pallurinn var tekinn í notkun. ÁRIÐ 2003 VORU 24 KVIKMYNDAHÚS Á ÍSLANDI SEM ALLS GÁTU TEKIÐ 8821 Í SÆTI. Heimild: Hagstofan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.