Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 13

Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 13
FÖSTUDAGUR 3. júní 2005 13 LÍBÍA FLUGSTÖ‹ LEIFS EIRÍKSSONAR For›ist bi›ra›ir á flugvellinum Vegna aukinna öryggisrá›stafana á flugvöllum og til hæg›arauka hvetjum vi› farflega til a› mæta tímanlega í Leifsstö› flegar fari› er úr landi. Vi› mælum me› a› farflegar mæti í flug- stö›ina tveimur klukkustundum fyrir brottför. Ókeypis sætafer›ir frá BSÍ kl. 4.30 á morgnana í bo›i Flugstö›var Leifs Eiríkssonar. Ókeypis sætafer›ir frá BSÍ kl. 4.30 Gef›u flér tíma í Leifsstö› Finni› rúturnar me› okkar merki Athugi› a› innritun í Flugstö›inni hefst kl. 5.00. Tilbo›i› gildir frá 1. júní - 31. ágúst 2005 M Á T T U R IN N O G D † R ‹ IN Samkeppnisstofnun: Hafnar kröfu Landssímans SAMKEPPNI Samkeppnisstofnun telur ekki þörf á að rannsaka kvartanir Landssíma Íslands á hendur 365 – ljósvakamiðlum þar sem ákvörðunin sem kvörtunin nær til hefur ekki tekið gildi. Síminn krafðist íhlutunar stofnunarinnar til að fá afhent sjónvarps- og útvarpsmerki 365 – ljósvakamiðla eins og stofnunin ákvað 23. mars síðastliðinn vegna samruna Og Vodafone og 365 ljós- vaka- og prentmiðla. Þar sem ákvörðunin tekur ekki gildi fyrr en 23. júní var ekki talin ástæða til að aðhafast frekar. -shg BORGARMÁL Ólafur F. Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarstjórn, lýsir sig andvígan því að Reykjavíkurborg selji Heilsuverndarstöðina við Baróns- stíg. Heilsuverndarstöðin hefur þjónað því hlutverki sem nafnið gefur til kynna í rúm 50 ár, allt frá árinu 1954. Ólafur átti sæti í stjórn heilsu- gæslunnar í tólf ár og kveðst hafa látið sig hlutverk Heilsuverndar- stöðvarinnar mjög varða. „Ég hef flutt margar tillögur um málefni hennar í borgarstjórn. Mér finnst það mjög hart að frétta af sölu Heilsuverndarstöðvarinnar fyrst í fjölmiðlum án þess að hafa orðið var við nokkra umræðu um málið innan borgarkerfisins. Þó að heil- brigðismál séu á hendi ríkisvalds- ins áttu fulltrúar borgarstjórnar lengi sæti í stjórn heilsugæslunn- ar og þeim kemur að sjálfsögðu mikið við hvernig staðið er að heilsugæslu í borginni. Það liggur fyrir að mjög mikilvægum þætti heilsuverndarstarfs í borginni er sinnt á Heilsuverndarstöðinni,“ segir Ólafur. - oá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur: F-listinn andvígur sölunni ÓLAFUR F MAGNÚSSON Fulltrúi Frjálslyndra í borgarstjórn vill ekki að Heilsuverndarstöðin verði seld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Noregur og ESB: Meirihluti andvígur NOREGUR Stuðningsmönnum Evr- ópusambandsaðildar í Noregi hefur fækkað mjög samkvæmt nýrri könnun. Nú segjast aðeins um 35 af hundraði norskra kjósenda vilja sjá Noreg innan ESB en um 45 prósent leggjast gegn aðild. Könnunin var gerð eftir að Frakkar felldu stjórnarskrá Evr- ópusambandsins í þjóðaratkvæða- greiðslu og ljóst að niðurstaðan hefur haft veruleg áhrif á afstöðu Norðmanna því kannanir síðustu misseri hafa yfirleitt sýnt meiri- hluta fyrir aðild að ESB. ■ Sendiráð Indónesa: Loka› vegna duftsendingar CANBERRA, AP Sendiráði Indónesíu í Canberra, höfuðborg Ástralíu, var lokað og það innsiglað eftir að þangað barst pakki með grunsam- legu hvítu dufti í fyrrdag. Embættismenn telja líklegt að málið tengist sakfellingu ástral- skrar konu á indónesísku eynni Balí fyrir fíkniefnamisferli en mikil reiði ríkir í Ástralíu vegna málsins. John Howard, forsætis- ráðherra Ástralíu, segir pakkann hafa verið stílaðan á sendiherra Indónesíu, sem þó var ekki í hús- inu. Ef grunur manna verður stað- festur um að duftið innihaldi sýkla af einhverju tagi er það í fyrsta skipti sem slík efni finnast í Ástralíu. ■ Kirgisistan: Rá›ist inn í Hæstarétt KIRGISISTAN, AP Um tvö hundruð mótmælendur réðust inn í húsa- kynni Hæstaréttar Kirgisistan á miðvikudag. Innrásina gerði fólkið til að reka út annan hóp mótmæl- enda sem þar hafði setið í tvo mán- uði til stuðnings fimm frambjóð- endum sem töpuðu í þingkosning- um á dögunum. Þeir höfðu komið í veg fyrir dómhald allan þann tíma. Lögregla og herlið þustu að hús- inu og stíuðu fylkingunum í sund- ur. Einhverjar róstur voru þó við dómstólinn fram eftir degi. Þetta eru alvarlegustu átökin í landinu eftir að Askar Akajev, fyrrum forseta þess, var steypt af stóli í mars síðastliðnum. ■ ÁFRÝJUNARÚRSKURÐI FRESTAÐ Hæstiréttur Líbíu hefur frestað ákvörðun um hvort hann muni taka upp mál sex búlgarska hjúkrunarfræðinga sem dæmdir hafa verið í héraðsdómi til dauða fyrir að smita 400 líbísk börn af HIV-veirunni með sýktu blóði. Foreldrar barnanna reyndu að ryðjast inn í dómsalinn í mót- mælaskyni en var vísað frá. MINNINGIN LIFIR Á morgun eru sextán ár liðin síðan Khom- eini erkiklerkur í Íran gaf upp öndina og af því tilefni verða haldnar minningarathafnir um allt land. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.