Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 2
2 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Sáttaumleitanir Hannesar dugðu ekki til:
Bau›st til a› skrifa bókina aftur
DÓMSMÁL „Fyrir nokkrum dög-
um hafði Hannes samband við
okkur og bauðst til þess að
skrifa bókina aftur, leiðrétta
hana samkvæmt dómsskjölun-
um þar sem hann færi eftir sett-
um reglum um heimildanotkun,“
segir Guðný Halldórsdóttir,
dóttir Halldórs Laxness, um
sáttaumleitanir Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar við
fjölskyldu nóbelskáldsins.
Fjölskylda Halldórs hefur
höfðað mál á hendur Hannesi
fyrir meintan ritstuld á höfund-
arverki Halldórs Laxness í bók
hans um rithöfundinn sem kom
út haustið 2003. Málflutningur-
inn hófst í Héraðsdómi Reykja-
víkur á miðvikudag.
„Þetta snýst ekki um það að
við fjölskyldan séum ísúrir og
basískir kommúnistar heldur
viljum við fá að vita hvort það
er leyfilegt að taka texta frá
öðrum, stela honum og nýta sér
hann í eigin þágu. Okkur er
alveg sama hver skrifar um
hann pabba, bara svo framar-
lega sem það er heiðarlega gert.
Við vildum ekki fara í mál við
Hannes heldur vildum við bara
að hann bæðist afsökunar og
tæki bókina úr sölu. Það vildi
Hannes hins vegar ekki gera,“
segir Guðný. - ifv
Skipta um húsnæði og ráða nýjan framkvæmdastjóra:
Vinstri grænir fá listabókstafinn V
STJÓRNMÁL Dómsmálaráðuneytið
hefur orðið við beiðni Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
um nýjan listabókstaf, en til þessa
hefur flokkurinn haft bókstafinn
U. Hann verður eftirleiðis V.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, segir að nokkur brögð
hafi verið að því í kosningum að
kjósendur hafi greitt Vinstri
grænum atkvæði sitt með bók-
stafnum V á atkvæðaseðli og sum-
ar kjörstjórnir hafi dæmt það gilt
en aðrar ekki. Þessi misskilningur
ætti nú að verða úr sögunni þar
sem listabókstafurinn V verði
eftirleiðis á kjörseðlum, næst í
sveitarstjórnarkosningunum eftir
tæpt ár. Tilkynning þessa efnis
verður send landskjörstjórnum og
yfirkjörstjórnum.
Vinstri grænir hafa endurbætt
húsakynnin á jarðhæð Suðurgötu
3 í Reykjavík og flutt starfsemi
sína þangað. Jafnframt hefur
Svandís Svavarsdóttir verið ráðin
framkvæmdastjóri flokksins og
tekur hún við af Kristínu Hall-
dórsdóttur 1. ágúst næstkomandi.
- jh
fiakka gu›i stu›ning-
inn á hverjum degi
Aron Pálmi Ágústsson segist flakka gu›i fyrir a› fólk hugsi til sín. RJF-hópur-
inn hefur sent bréf til ríkisstjóra Texas og óskar eftir lausn hans. Mó›ursystir
Arons kom til Texas í gær og ver›ur hjá honum í mánu›.
DÓMSMÁL „Ég er mjög þakklátur
fyrir bréfin og þessa fallegu hugs-
un. Ég þakka guði á hverjum degi
fyrir að fólk sé að hugsa til mín,“
segir Aron Pálmi Ágústsson í Texas
í Bandaríkjunum. RJF-hópurinn,
sem berst fyrir lausn Arons Pálma,
sendi í gær bréf til ríkisstjóra Texas
þar sem fram kom ósk um að hann
hlutaðist til um að Aroni Pálma yrði
veitt lausn úr betrunarvistinni.
Bréfi hópsins fylgir bænabréf frá
biskupi Íslands.
Aron Pálmi á eftir að ljúka rúm-
um tveimur árum af tíu ára betrun-
arvist sem hann var dæmdur til
ytra. Hann sagðist í samtali við
Fréttablaðið vonast til að bréfið
hlyti náð fyrir augum yfirvalda í
Texas. „Því fyrr sem ég kemst til Ís-
lands, því betra. Ég bið til guðs á
hverjum degi að ég komist til Ís-
lands.“ Hann segir dagana líða hægt
og hann hafi lítið fyrir stafni. Hann
geti farið í verslun og þvegið þvott
og fari auk þess í kirkju en fái ekki
að fara jafnt oft og hann kysi sjálf-
ur. „Ég er að reyna að fá leyfi til að
fara þrisvar í viku en fæ bara að
fara einu sinni,“ segir Aron Pálmi.
Valgerður Hermannsdóttir,
móðursystir Arons, kom til Texas í
gær og mun dvelja hjá honum
ásamt frænkum Arons Pálma í mán-
uð. Valgerður hafði með sér afrit af
bréfum til yfirvalda í Texas fyrir
fangelsisyfirvöld. RJF-hópurinn,
sem lætur sig réttlæti í máli Arons
Pálma varða, er skipaður mönnum
sem upphaflega komu að máli
Bobby Fischer. Hópurinn berst
fyrir heimfararleyfi og frelsi Arons
Pálma. Í bréfi hópsins til ríkisstjór-
ans segir að íslensk stjórnvöld og
sendiráð Íslands í Washington muni
leggja kapp á að uppfylla öll þau
skilyrði sem kunni að vera sett af
hálfu fangelsisyfirvalda í Texas.
Aron Pálmi býr einn í leiguíbúð í
Beumont í Texas, sem stjúpfaðir
hans ber kostnað af, en á sér þá ósk
heitasta að setjast að á Íslandi og
byggja upp líf sitt eftir harmleik-
inn. hjalmar@frettabladid.is
Frjálslyndi flokkurinn:
Krefst
rannsóknar
EINKAVÆÐING Frjálslyndi flokkur-
inn krefst ítarlegrar, opinberrar
rannsóknar á allri starfsemi
Einkavæðingarnefndar og vill að
mat verði lagt á gerðir hennar og
ráðherranna.
Í samþykkt stjórnar flokksins
segir að greinaflokkur Frétta-
blaðsins um einkavæðingu bank-
anna og VÍS beri vitni um spillta
stjórnarhætti sem leggja verði af.
Þingflokkur Frjálslyndra lagði
ásamt þingflokki Vinstri grænna í
fyrra fram beiðni um skýrslu frá
forsætisráðherra um einkavæð-
ingarferlið. Þeirri beiðni var
hafnað. -oá
FALLEGT VEÐUR Í MAÍ Túlípanabreiður við
Fríkirkjuveg á fallegum vordegi í maí.
Veðurfar á landinu:
Kalt, flurrt
og sólríkt
VEÐUR Veður í maí var heldur
óvenjulegt. Það var óvenjuþurrt
og sólríkt um meginhluta lands-
ins og lengst af fremur svalt og
næturfrost viðloðandi. Meðalhiti
í Reykjavík var 5,7 stig og er það
0,6 stigum undir meðallagi.
Afar lítil úrkoma var í Reykja-
vík í mánuðinum, ekki nema rétt
um þriðjungur af því sem er í
meðalári. Sólarstundir voru að
sama skapi óvenju margar, 317
sólarstundir mældust í mánuðin-
um, sem er nær tvöfalt það sem
venjulegt er. ■
Baugsmálið:
Sakborningar
yfirheyr›ir
LÖGREGLURANNSÓKN Efnahagsbrota-
deild Ríkislögreglustjóra hefur
yfirheyrt sakborninga og vitni í
Baugsmálinu svokallaða að undan-
förnu að því er fréttastofa Ríkisút-
varpsins greindi frá í gærkvöldi.
Samkvæmt fréttum Ríkisút-
varpsins eru yfirheyrslurnar yfir-
gripsmiklar og hafa staðið yfir
undanfarnar vikur. Lögregla rann-
sakar ásakanir þess efnis að Jón
Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi
Jónsson, núverandi og fyrrverandi
forstjórar Baugs, hafi brotið gegn
Baugi, meðal annars með því að
draga sér fé úr fyrirtækinu.
Ekki náðist í Jón Ásgeir,
Tryggva eða Jón H. Snorrason,
yfirmann efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóraembættisins, í
gærkvöldi. - oá
LANDHELGISGÆSLAN
KONA SÓTT MEÐ ÞYRLU TF-SIF
þyrla Landhelgisgæslunnar var í
gær kölluð út til að sækja konu
sem hafði slasast við skíða- eða
snjóbrettaiðkun á Snæfellsjökli.
Læknir óskaði eftir aðstoð þyrl-
unnar, sem flutti konuna á Land-
spítala – háskólasjúkrahús. Kon-
an er handleggsbrotin og með
heilahristing.
FRAKKLAND
AFHENDING AIRBUS TEFST Risa-
þota Airbus-verksmiðjanna,
A380, verður afhent kaupendum
hálfu ári síðar en fyrirhugað var.
Quantas-flugfélagið í Ástralíu
hefur lýst því yfir að þar á bæ
hyggist menn krefjast bóta vegna
seinkunarinnar. Vélin á að geta
borið 555 farþega 15 þúsund kíló-
metra leið án þess að millilenda.
SPURNING DAGSINS
Stefán Már, var miki› um
prestaköll í flinni æsku?
„Jú, prestar kölluðu vissulega oft á mig,
þá aðallega foreldrar mínir.“
Stefán Már Gunnlaugsson var nýlega kjörinn
prestur á Hofi. Báðir foreldrar hans eru prestar.
BRÉF TIL TEXAS RJF-hópurinn sendi bréf til ríkisstjóra Texas í von um að Aron Pálmi fáist
laus úr betrunarvist.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Hrottaleg árás:
firír dæmdir
DÓMSMÁL Hæstiréttur úrskurðaði
þrjá menn í gær í fangelsi fyrir
líkamsárás og þjófnað. Tveir
mannanna fengu þrjátíu daga
fangelsi en einn fékk sextíu daga.
Mennirnir eru dæmdir fyrir
að ráðast inn á heimili annars
manns og veita honum sýnilega
áverka í andliti og á líkama með
barsmíðum og spörkum.
Annar mannanna er sagður
hafa slegið fórnarlambið ítrekað
með hækju sem hann studdi sig
við. Að auki eru mennirnir
dæmdir fyrir að taka síma fórn-
arlambsins ófrjálsri hendi.
- mh
ARON PÁLMI ÁGÚSTSSON Á eftir að ljúka rúmlega tveggja ára betrunarvist í Texas í
Bandaríkjunum.
GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR Dóttir Halldórs
Laxness, Guðný Halldórsdóttir, segir mál-
flutning fjölskyldunnar á hendur Hannesi
ekki snúast um einelti eða kommúnisma
heldur ritstuld.
VINSTRI GRÆNIR Í SUÐURGÖTU 3 Í REYKJAVÍK Svandís Svavarsdóttir, til vinstri, er nýr
framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Með henni á myndinni eru Steingrímur J. Sigfússon og
Kristín Halldórsdóttir.