Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 10
STROKUBRÚÐUR FÆR DÓM Jennifer Wil-
banks (t.h.), bandaríska konan sem komst
í heimsfréttirnar á dögunum fyrir að setja
á svið eigið mannrán, var í gær dæmd fyrir
tiltækið. Hún fékk skilorðsbundna refsingu
en þarf auk þess að inna af hendi sam-
félagsþjónustu og greiða sekt.
10 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Íraskir uppreisnarmenn voru enn við sama heygarðshornið í gær:
Hátt í fjörtíu manns liggja í valnum
BAGDAD, AP Að minnsta kosti 38
manns létust og fjölmargir
særðust í árásum uppreisnar-
manna í Írak í gær.
Mannskæðasta sprengingin
var í bænum Tuz Khormato,
skammt suður af Kirkuk, þar sem
12 manns létust og 40 særðust.
Bílsprengja sprakk fyrir utan við
veitingahús þar sem lífverðir að-
stoðarforsætisráðherra Íraks
sátu að snæðingi, en ráðherrann
var ekki sjálfur á staðnum.
Í bænum Baqouba var
Hussein al-Tamimi, aðstoðarhér-
aðsstjóra í Diyala-héraði, banað
ásamt þremur lífvörðum sínum
og um svipað leyti féllu fjórir
vegfarendur í sjálfsmorðsárás í
Kirkuk. Því tilræði var beint
gegn bílalest erlendra verktaka
en þá sakaði ekki í árásinni.
Í Mosul sprungu tvö bifhjól
sem hlaðin höfðu verið
sprengiefnum og létust þrettán
óbreyttir borgarar í því ódæði.
Uppreisnarmenn í Bagdad
hófu skothríð úr bílum sínum á
saklausa vegfarendur og dóu niú
manns af skotsárum sínum.
Nú hafa um 800 fallið fyrir
uppreisnarmönnum í Írak síðan
ríkisstjórn var formlega mynduð
28. apríl síðastliðinn. Ekkert lát
virðist vera á uppreisninni í
landinu. ■
Hálendisvegirnir opnast einn af öðrum:
Betri fær› á hálendinu
BÍLSPRENGJA HJÁ VEITINGAHÚSI Að minnsta kosti 12 létu lífið og 40 særðust í Tuz Khor-
mato þegar bílsprengja sprakk utan við veitingahús þar sem lífverðir eins af aðstoðarfor-
sætisráðherrum landsins sátu að snæðingi. Ráðherrann var hins vegar víðs fjarri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
SAMGÖNGUR Vegurinn
inn í Flateyjardal á
Norðurlandi, vegurinn
inn í Lakagíga og Kaldi-
dalur voru allir opnaðir
í gær.
Vegurinn yfir Kjöl er
ennþá aðeins fær að
hluta. Að norðan er
hægt að komast til
Hveravalla og sunnan-
megin er hægt að kom-
ast upp á Bláfellsháls.
Arnarvatnsheiði er
opin upp að Surtshelli
að sunnan og að Arnar-
vatni hinu stóra að norð-
anverðu.
Á Austfjörðum er
ekki búið að opna neinar hálendis-
leiðir en leyfilegt er að fara suður í
Snæfell frá Kárahnjúkaveginum.
Flestar fjallabaksleiðir eru enn-
þá lokaðar. Þó er vegurinn frá Sig-
öldu inn í Landmannalaugar opinn
en Dómadalsleiðin er lokuð.
Allur akstur er bannaður á milli
Landmannalauga og Eldgjár og
sömu sögu er að segja um Emstru-
leið og Fjallabak syðra.
- if
VEGAKORT Kortið má finna á vefsíðu Vegagerðarinnar,
vegagerdin.is, og er það uppfært vikulega með nýjustu
upplýsingum um færð á fjallvegum og fjallabaksleiðum.
EVRÓPUSAMBANDIÐ Pólitískt upp-
nám ríkir nú innan Evrópusam-
bandsins eftir að Hollendingar
kolfelldu stjórnarskrársáttmála
sambandsins í þjóðaratkvæða-
greiðslu í fyrradag. Leiðtogar að-
ildarríkjanna munu á næstu
vikum leita leiða til að bjarga því
sem bjargað verður af sáttmálan-
um.
Atkvæðagreiðslan í Hollandi
var aðeins ráðgefandi en engu að
síður brást Jan Peter Balkenende,
forsætisráðherra Hollands, skjótt
við í gær og dró til baka frumvarp
um fullgildingu sáttmálans sem lá
fyrir hollenska þinginu. Í ræðu
sinni við þetta tækifæri sagði
Balkenende að ráðamenn aðildar-
ríkjanna hefðu þjösnað Evrópu-
samrunanum áfram án þess að
spyrja þjóðir sínar um áhuga
þeirra á því. „Núna verður Bruss-
el að koma sér í samband við fólk-
ið á ný. Við verðum að hlusta
betur á borgarana og láta af öllum
hástemmdum áformum nema
fyrir þeim liggi skýr vilji hjá um-
bjóðendum okkar.“
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, hraðaði sér til Lúx-
emborgar í gær til skrafs og ráða-
gerða við Jean-Claude Juncker
forsætisráðherra, en Lúxemborg
er í forsæti ESB út þennan mánuð.
Á laugardaginn mun svo Jacques
Chirac Frakklandsforseti halda til
Berlínar, þar sem þeir Schröder
munu vafalítið leggja á ráðin um
hvernig koma megi sambandinu
úr þeirri klemmu sem það er í
þessa dagana.
Leiðtogar flestra aðildarríkj-
anna lýstu yfir vonbrigðum með
úrslitin í gær, nema þá helst
Vaclav Klaus, forseti Tékklands.
Hann sagði úrslitin í Hollandi
sigur frelsis og lýðræðis í álfunni
og lét auk þess þá skoðun í ljós að
ólýðræðislegt væri að láta þjóð-
þing staðfesta sáttmálann án þjóð-
aratkvæðagreiðslu, eins og mörg
aðildarríkjanna gera.
Fyrir síðustu helgi aftóku for-
svarsmenn ESB með öllu að
breytingar yrðu gerðar á stjórn-
arskrársáttmálanum. Í gær sagði
talsmaður framkvæmdastjórnar-
innar hins vegar að til greina
kæmi að sáttmálinn yrði tekinn til
gagngerrar endurskoðunar á leið-
togafundi sambandsins sem hald-
inn verður í Brussel 16.-17. júní.
Sjá síðu 20
sveinng@frettabladid.is
Evrópusamruninn
er í algeru uppnámi
Lei›togar a›ildarríkja Evrópusambandsins reyna nú a› koma sér úr fleirri
úlfakreppu sem fljó›aratkvæ›agrei›slurnar í Frakklandi og Hollandi leiddu
flá í. Vera má a› breytingar ver›i ger›ar á stjórnarskrársáttmálanum.
Glös fyrir góðar stundir
– einstök ending og frábært verð
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opnu
nartí
mi
í ver
slun
RV:
R
V
20
42
B
Pils 36 cl bjórglös, 3 stk.
Maldive 36 cl bjórglös, 6 stk.
Imerial 31 cl rauðvínglös , 12 stk.
Á tilboðsverði í júní 2005
1.528,-
12 stk.
742.-
6 stk.
324,-
3 stk.
BROSANDI ÞRÁTT FYRIR ALLT Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Jean-Claude
Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, settust á rökstóla í gær og ræddu framtíð Evrópu-
sambandsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P