Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 3. júní,
154. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.17 13.26 23.37
AKUREYRI 2.25 13.11 23.59
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þröstur Björgvinsson, mjólkurfræðing-
ur, hefur gaman af að spreyta sig í
eldhúsinu, en langbestur er hann við
grillið eins og svo margir kynbræður
hans.
„Ég er nú kannski ekki svo ýkja duglegur í
miðri viku, þá sér konan um matseldina, en
ég er ansi duglegur þegar eitthvað fínna
stendur til,“ segir Þröstur.
Nú þegar grillvertíðin stendur sem hæst
er Þröstur í essinu sínu. Hann leggur líka
áherslu á fallega uppdekkað borð og gerir
það klárt áður en hann setur sig í grillstell-
ingarnar. Hann segist aðspurður farinn að
grilla allt milli himins og jarðar, en fyrir
honum standi lambakjötið alltaf upp úr.
„Við grillum kjúkling, fisk, grænmeti og
ávexti, en uppáhaldið mitt er hvítlauks- og
rósmarinkrydduð lambaprimesteik, sem ég
kaupi í Kjötbankanum í Hafnarfirði. Þeir
eru algjörir snillingar þar. Þetta grilla ég í
sjö og hálfa mínútu á hvorri hlið og læt það
svo standa í fimm til sjö mínútur á eftir til
að jafna sig. Með kjötinu ber ég fram kart-
öflusalat, kalda sósu og grillaða nýja
sveppi. Sveppirnir eru einfalt og gott með-
læti. Stilkarnir eru skornir af sveppunum,
saxaðir og steiktir á pönnu með lauk og
hvítlauk. Þá er sýrðum rjóma bætt á pönn-
una og allt hrært saman, sveppirnir pensl-
aðir með smjöri og jafningurinn settur inn í
holuna á sveppunum, gráðostur ofan á og
grillað.“
Í eftirrétt segir Þröstur grillaða ávexti
langvinsælasta á sínu heimili. „Þá sker ég
niður á álbakka banana, epli, jarðarber og
hindber og set svo kókósbollur ofan á.
Þessu er skellt á grillið í nokkrar mínútur.
Rjómaís frá Emmess og góð íssósa með
gerir þetta að algjöru lostæti.“
Hangir ekki fólk á girðingunni hjá þér í
von um að vera boðið í mat?
„Nei, grannarnir eru ekki síður liðtækir
við grillið. Það eru grillmeistarar í hverjum
garði núorðið,“ segir Þröstur hlæjandi.
Þröstur gefur girnilega uppskrift að
kaldri sósu og kartöflusalati á bls. 3.
edda@frettabladid.is
Grillmeistarar í hverjum garði
tilbod@frettabladid.is
Sigurstjarnan í Fákafeni er
með 60% afslátt á öllum sín-
um vörum. Þar eru gjafavörur í
miklu úrvali og
einnig pelsar.
Sumarúlpur og
jakkar eru seldir á
hálfvirði í Topphús-
inu í Mörkinni 6.
Stærðirnar eru frá 36
upp í 54 og úrvalið er mikið.
Einnig eru síðar ullarkápur í
litlum stærðum á tilboðinu og
alltaf er eitthvað að bætast við.
Tískufatnaður og merkjavara
er á hálfvirði í versluninni
Outlet 10 í Faxafeni 10. Má þar
nefna gallabuxur með merkjun-
um Diesel, Levi's, Firetrap, Gas
og Lee. Þá eru skódagar í full-
um gangi í Outlet 10 og þýðir
það 50-70% afsláttur. Það
munar um minna.
Silkitré og silki-
blóm eru á 15%
afslætti í verslun-
inni Soldis sem
er á Laugavegi
63 en gengið er
inn frá Vitastíg.
Silkiblóm eru sí-
gild, hvort sem er um sumar
eða vetur og þurfa litla um-
hirðu sem kunnugt er.
Sólin skín dag eftir dag og
sundfötin koma í góðar þarfir.
Nú er 40% afsláttur í Útilífi af
O'Nell sundfötum sem tilheyra
sumarlínunni frá því í fyrra.
Útilíf er í Smáralind, Kringlunni
og að sjálfsögðu í Glæsibæ.
Þröstur Björgvinsson mjólkurfræðingur ber fram rauðvín frekar
en mjólk með steikinni og segir að hvort tveggja sé gott í hófi.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Loksins þegar
ég kann
að skrifa
maí þá er
kominn júní!
Nýr gripur á hverjum degi
BLS. 6
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is