Fréttablaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 31
7FÖSTUDAGUR 3. júní 2005
Í fyrra ákvað Reykjavíkurborg að
gera Skólavörðustíg að svokall-
aðri blómagötu enda er gatan
miðstöð blóma, menningar, hand-
verks, og hönnunar í miðbænum.
Þá var gatan skreytt með blómum
og skemmtileg dagskrá var í boði
fyrir þá sem áttu leið hjá. Á morg-
un verður blómadagurinn haldinn
í annað sinn og af því tilefni verð-
ur mikið um dýrðir á Skólavörðu-
stígnum. Kaupmenn munu hafa
dyr sínar opnar fyrir gesti og
gangandi til kl. 17 og boðið verður
upp á ýmsa skemmtidagskrá við
götuna.
Dagskráin hefst í raun í dag
þegar Katrín Júlíusdóttir, for-
maður umhverfisráðs, afhendir
íbúum og rekstraraðilum við
Skólavörðustíg blóm til að fegra
götuna. Afhendingin fer fram á
torginu gegnt Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis kl. hálf ellefu.
Á morgun verður búið að koma
blómunum fyrir, gatan mun
skarta sínu fegursta og vegfar-
endur eiga von á skemmtilegri
stemmningu. Á torginu við Spari-
sjóðinn verður grænmetismark-
aður og gengið verður um götuna
með hjólbörur fullar af ávöxtum
sem dreift verður ókeypis til veg-
farenda. Fjórtán ára saxófónleik-
ari, Gauti Sigurjónsson, ætlar að
leika listir sínar, Kramhúsið sýnir
afródans og magadansarar fara á
kreik svo fátt eitt sé nefnt. Þá
mun Birna Þórðardóttir standa
fyrir menningargöngu um götuna
og fræða gesti og gangandi um
það sem fyrir augu ber á Skóla-
vörðustígnum. Lagt verður af
stað frá Hallgrímskirkju kl. 13 og
verður gangan ræst með klukkna-
spili í kirkjunni sem Hörður Ás-
geirsson, organisti í Hallgríms-
kirkju, ætlar að stjórna.
Það verður því nóg um að vera
og tilvalið að skella sér í bæinn og
eiga blómlegan dag. ■
Tilfinningar
bornar á torg
Á LÖNGUM LAUGARDEGI ER TILVAL-
IÐ AÐ RÖLTA VIÐ Á HRESSÓ OG TJÁ
TILFINNINGAR SÍNAR.
Borgarbúum og gestum borgarinnar
gefst kostur á að bera tilfinningar
sínar á torg á löngum laugardegi. Til-
finningatorgið verður starfrækt í
Hressógarðinum við Austurstræti.
Engin dagskrá verður í boði en ætl-
ast er til þess að fólk búi sjálft til
sína dagskrá með því að viðra tilfinn-
ingar sínar, stórar og smáar, í gamni
eða alvöru. Nú er tími ferðalaganna
runninn upp og ýmsar tilfinningar
sem vakna af því tilefni og svo er
líka landsleikur í fótbolta þennan
dag sem vafalaust vekur upp
blendnar tilfinningar.
Tilfinningatorgið stendur frá 14 til 18
og mun Elísabet Jökulsdóttir taka á
móti gestum. Að venju verða ljúf-
fengar veitingar í boði á Hressó. ■
Opnunartími á
löngum laugardegi
Á morgun er langur laugardagur í
miðbænum. Verslanir verða ýmist
opnaðar kl. 10 eða 11 og ekki lokað
aftur fyrr en kl. 17 síðdegis.
Það verður mikið líf í bænum, margt
um að vera og því tilvalið að skreppa
í bæinn til að sýna sig og sjá aðra.
Fatahönnuðirnir Sæunn Huld Þórðar-
dóttir og Jette Jocus standa á bak við
verslunina Trilogiu á Laugavegi. Þar
selja þær fatnað og fylgihluti og
bjóða vegfarendum í leiðinni upp á
myndlistarsýningu á veggjum búðar-
innar.
Í versluninni kennir ýmissa grasa en
Jette segir að þær stöllur leitist við að
vera með fatnað sem sé bæði sér-
stakur og fínn. „Við seljum okkar eigin
hönnun hérna undir merkinu Trilogia
og svo erum við líka með umboð fyrir
ýmsa aðra hönnuði, bæði íslenska og
erlenda. Ég er hollensk og hef leitað
uppi spennandi hönnuði frá Hollandi
og Belgíu og Sæunn hefur ýmis sam-
bönd í London þar sem hún hefur
búið undanfarin ár,“ segir Jette.
Að sögn Jette hefur búðinni verið vel
tekið og þangað leita konur á öllum
aldri. ■
Skemmtileg Trilogia á Laugaveginum
Á DÖGUNUM OPNAÐI SPENNANDI VERSLUN VIÐ LAUGAVEG 7 SEM SELUR FALL-
EGA HÖNNUN EFTIR ÍSLENSKA OG ERLENDA HÖNNUÐI.
Í Trilogiu er seldur fatnaður eftir íslenska og erlenda fatahönnuði.
15%
afsláttur
af öllum vörum
á föstudag og
löngum laugardegi
Silkitré og silkiblóm
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin)
Sími 551 2040
Líf og fjör á blómagötunni Skólavörðustíg
Á morgun verður blómadagurinn haldinn hátíðlegur á Skólavörðustíg í annað sinn.
Á morgun er blómadagur og þá mun Skólavörðustígurinn svo sannarlega springa út.