Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 6
6 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Reyndi að smygla fólki til Bandaríkjanna um Ísland:
Dæmdur í hálfs árs fangelsi
DÓMSMÁL Kínverskur karlmaður
var í gær dæmdur í hálfs árs
fangelsi fyrir að reyna að smygla
ungum Kínverjum um Ísland til
Bandaríkjanna.
Kínverjinn var sakfelldur var
fyrir að aðstoða tvo einstaklinga
við að komst til Íslands eða annars
ríkis með ólöglegum hætti, en
refsiramminn fyrir brot af þessu
tagi er að hámarki tveggja ára
fangelsi.
Eyjólfur Kristjánsson flutti
málið fyrir hönd ákæruvaldsins.
Hann telur þetta mál tengjast
gífurlega umsvifamikilli glæpa-
starfsemi. „Þessi mál eru senni-
lega hluti af vel skipulagðri
glæpastarfsemi sem mansalið er.
Það er þriðja umsvifamesta
glæpastarfsemi í heiminum á
eftir vopnasölu og fíkniefnavið-
skiptum. Það er því ekkert undar-
legt að hluti af þessu rati inn á
okkar borð. Vonandi verður hægt
að senda þau skilaboð til aðilanna
sem í þessum geira starfa að leið-
in um Ísland sé ófær.“ - mh
KOMIÐ Í HÉRAÐSDÓM
Maðurinn var dæmdur fyrir að aðstoða út-
lendinga við að ferðast ólöglega til
landsins.
Arkþing hannar menningarhús á Akureyri:
Kostar 1.400 milljónir fullbúi›
MENNINGARHÚS Í gær var undirrit-
aður samningur um hönnun menn-
ingarhúss á uppfyllingunni við
Torfunef á Akureyri. Gert er ráð
fyrir að byggingarframkvæmdin
verði boðin út í byrjun næsta árs
og stefnt er á að húsið verði tilbúið
til notkunar fyrir árslok 2007.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, og Sigurður
Hallgrímsson, arkitekt hjá Ark-
þingi, undirrituðu hönnunarsamn-
inginn á Akureyri en Arkþing
varð fyrir valinu að undangeng-
inni hönnunarsamkeppni.
Starfsemi Tónlistarskólans á
Akureyri verður í menningarhús-
inu en Kristján Þór segir að ekki
sé búið að ákveða endanlega
hvernig húsið verður nýtt að öðru
leyti. „Leikfélag Akureyrar verð-
ur ekki með fasta aðstöðu í húsinu
en þó er gert ráð fyrir aðstöðu til
leiksýninga og tónleikahalds í
húsinu. Kostnaður við bygginguna
er áætlaður 1.370 milljónir króna
en þá verður sá hluti sem hýsir
tónlistarskólann aðeins fokheldur.
Af því mun ríkið greiða um 700
milljónir króna en Akureyringar
verða að bera mismuninn,“ segir
Kristján. - kk
Gó› störf tapast
vegna sterkrar krónu
EFNAHAGSMÁL Sveinn Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins, segir jafn mikla ástæðu til að
hafa áhyggjur af því að íslensk
fyrirtæki kjósi nú að stofna til
reksturs erlendis og því að fyrir-
tæki segi upp fólki hérlendis.
Fregnir berast þessa dagana af
erfiðleikum í rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja og fyrirtækja í sam-
keppnisrekstri. Tilkynnt hefur ver-
ið um uppsagnir í fiskvinnslu á
Bíldudal, Reyðarfirði og Stöðvar-
firði jafnframt því sem Skinnaiðn-
aður á Akureyri áætlar að segja upp
40 manns á næstunni.
„Fækkun starfa í innlendum
samkeppnisiðnaði er af sömu rótum
runnin og viðleitni fyrirtækja til
þess að flytja störf á erlenda grund.
Það er hins vegar nefnt útrás,“
segir Sveinn Hannesson. „Það eru
mörg önnur störf en í fiskiðnaði
sem eru að tapast en gætu verið
arðbær. Þetta gerist vegna firna-
sterkrar krónu. Ég sé eftir arðbær-
um störfum eins og til dæmis Marel
er að skapa í Slóvakíu. Þetta eru há-
tæknistörf og Marel fjárfestir þar
fremur en í Garðabæ,“ segir
Sveinn.
Hann segir að íslenska myntin sé
vitlaus og til lengri tíma litið sé
ekkert annað til ráða en að leggja
niður óstöðuga krónuna og taka
upp evruna sem gjaldmiðil hér á
landi. „Í fjárfestingarfasa rýkur
krónan upp og veldur búsifjum
og hið sama gerist þegar um
hægist, þá með gengisfalli krón-
unnar. Við eigum að miða okkur
við evruna. Það er hið eina
skynsamlega. Aðrar þjóðir
Evrópu hafa talið nauðsyn-
legt að draga úr sveiflum
með því að taka hana upp
sem gjaldmiðil. Ef einhver hefur
þörf fyrir slíkt er það við. Ísland er
ekki heppilegt myntsvæði í alþjóða-
væddum heimi nú um stundir,“
segir Sveinn.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, segir að
stjórnvöld eigi að hætta að vinna
gegn viðleitni Seðlabankans til að
halda aftur af þenslu og ættu nú að
stöðva stóriðjustefnu sína. „Allir
eru sammála um að orsakir ástands-
ins séu þrjár: Í fyrsta lagi stóriðju-
stefnan, í öðru lagi skattalækkanir
stjórnvalda og í þriðja lagi ástandið
á fasteignamarkaðinum. Stjórnvöld
hafa möguleika á beinum aðgerðum
varðandi stóriðjustefnuna. Skyn-
samlegast væri að lýsa því yfir að
nú sé nóg komið í bili og hagkerfinu
verði gefið svigrúm til kælingar,“
segir Steingrímur.
johannh@frettabladid.is
Mullah Krekar:
Talinn ógna
Nor›mönnum
NOREGUR, AP Dómsmál Mullah
Krekar gegn norskum stjórnvöld-
um hófst í dag. Krekar er stofn-
andi kúrdísku samtakanna Ansar
al-Islam sem grunuð eru um
hryðjuverk í Írak.
Hann hefur síðan 1991 haft
stöðu pólitísks flóttamanns í Nor-
egi en nýverið fyrirskipuðu norsk
yfirvöld að vísa bæri honum úr
landi þar sem þau telja hann ógn-
un við þjóðaröryggi.
Krekar hefur nú hafið dómsmál
þar sem hann fer fram á afturköll-
un skipunarinnar. Talið er að mál-
ið geti velkst árum saman í dóms-
kerfinu áður en niðurstaða fæst.
BANDARÍKIN
REKIN FYRIR AÐ TAKA TÖFLUR
Unglingsstúlka hefur verið rekin
úr skóla sínum í York-sýslu í
Pennsylvaníu eftir að hún sagði
kennara sínum að hún hefði tekið
væga höfuðverkjatöflu á leið í
skólann vegna mígrenis. Skóla-
reglur kveða á um að lyfjataka
verði að vera í samráði við yfir-
kennara. Móðir stúlkunnar er æf
út í skólayfirvöld.
HANDTEKIN FYRIR TÖLVUPÓST-
ÁREITNI Debby Wilbanks, frá
Seminole í Flórída, hefur verið
tekin föst fyrir að áreita spennu-
sagnahöfundinn Randy White
með stöðugum tölvupóstsending-
um. Að sögn lögreglu sendi hún
rithöfundinum mörg hundruð
tölvuskeyti þar sem hún játaði
honum eldheita ást sína.
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
85
97
06
/2
00
5
Sumartilboð 9. og 16. júní
Costa del Sol
Glæsilegir gististaðir í boði
• Sunset Beach Club Mjög gott íbúðahótel við ströndina í
Benalmadena Costa.
• Amaragua Eitt vinsælasta íbúðahótelið á staðnum.
• Flatotel Glæsilegur gististaður í Benalmadena.
44.900* kr.
Verðdæmi á Flatotel:
á mann í íbúð m/1 svefnh. m.v. að 3 ferðist saman.
Enginn barnaafsláttur. Verð á aukaviku skv. verðlista.
Innif.: Flug, gisting í 7 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis, íslensk
fararstjórn og föst aukagjöld. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu greiðist
bókunar- og þjónustugjald sem er 2.000 kr. á mann.
Tryggðu þér bestu
kjörin og bókaðu strax.
Sunset Beach Club
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð á www.urvalutsyn.is
Myndir þú kaupa sumarhús af
Orkuveitunni?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Vinna Íslendingar Ungverja í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í fótbolta?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
62,4%
37,6%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Framkvæmdastjóri Samtaka i›na›arins segir einu lei›ina út úr rekstrarkrögg-
um íslenskra fyrirtækja a› taka upp evruna sem gjaldmi›il. Forma›ur Vinstri
grænna vill stö›va stóri›justefnu stjórnvalda.
við
ja-
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR Kristján Þór Júlíusson og Sigurður Hallgrímsson undirrit-
uðu samninginn en Kristján telur að menningarhús á uppfyllingu við Torfunef falli vel að
verðlaunahugmyndinni í samkeppni um nýjan miðbæ á Akureyri.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON „Við höfum
ávallt varað við þessu og nú er verið að
segja við menn að þetta erfiða ástand
haldi áfram með skefjalausri stóriðjust-
efnu,“ segir Steingrímur.
SVEINN HANNESSON „Það er kallað útrás þegar ís-
lensk fyrirtæki treysta sér ekki til að stofna ný störf
hér á landi en gera það erlendis þess í stað.“