Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 12

Fréttablaðið - 03.06.2005, Side 12
ÞJÓÐHÁTÍÐ Á ÍTALÍU Hermenn þjóta fram- hjá ítölskum ráðamönnum á hersýningu sem var haldin í Róm í tilefni þjóðhátíðar- dags Ítalíu. 59 ár voru liðin í gær síðan ítalska lýðveldið var sett á fót. 12 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR Fulltrúar ríkis og borgar undirrita samning: Heilsuverndarstö›in ver›ur seld SÉRSKÓLAR Reykjavíkurborg mun yfirtaka eignarhald á Öskjuhlíð- arskóla og Safamýrarskóla, þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskólabörn. Þá munu ríkið og Reykjavíkurborg selja húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík við Barónsstíg á al- mennum markaði. Þetta eru atriði samnings um húsnæðismál sérskóla og Heilsu- verndarstöðvarinnar í Reykjavík sem fulltrúar borgar og ríkis undirrituðu í vikunni. Samkvæmt honum yfirtekur borgin einnig eignarhald á minni húseignum við Vesturhlíðarskóla, þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskóla- börn, svo og Brúarskóla, sem er sérskóli fyrir börn á grunnskóla- aldri með félagslegar og geðræn- ar raskanir. Það húsnæði sérskóla sem ekki er nauðsynlegt að nýta verður selt og andvirðið notað til að kosta uppbyggingu á nýrri sér- deildarálmu fyrir fatlaða við Fjöl- brautaskólann í Ármúla. Húsnæð- ið sem selt verður er aðalbygging fyrrum Heyrnleysingjaskólans en kennsla og þjónusta við heyrnar- laus og heyrnarskert börn á grunnskólaaldri hefur verið sam- einuð á einn stað í nýrri viðbygg- ingu við Hlíðaskóla. Þá kaupir Reykjavíkurborg eignarhluta ríksins í Vörðuskóla, sem Iðnskólinn í Reykjavík nýtir nú. Verður það húsnæði afhent þegar Iðnskólinn í Reykjavík getur flutt í nýtt húsnæði. - jss Alfre› vill lei›a Framsókn Útlit er fyrir a› framsóknarmenn velji á frambo›slista í flokksvali en raddir eru einnig uppi um prófkjör. Ólíklegt a› fleir geri tilkall til borgarstjóraefnis R-listans. Vi›ræ›unefnd R-listaflokkanna fundar næst a› viku li›inni. REYKJAVÍKURLISTINN Búist er við því að framsóknarmenn velji fulltrúa sína á R-listann með flokksvali á kjördæmisþingi flokksins eða í prófkjöri, en fleiri munu hallast að fyrrnefnda kostinum. Ekki er annað vitað en að Anna Kristins- dóttir borgarfulltrúi gefi kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir flokkinn en Alfreð Þorsteinsson sagði í samtali við Fréttablaðið að hann gæfi kost á sér til forystu fyrir flokkinn í Reykjavík. Hann sigraði Önnu naumlega í flokksvali fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar og búist er við að þau stefni bæði á efsta sætið aftur. Ef til flokksvals kemur hefur verið haft á orði að hafa svipaðan hátt á og hafður var þegar Fram- sóknarflokkurinn valdi fulltrúa sína fyrir síðustu alþingiskosn- ingar í norðvesturkjördæmi. Þar var haldið svokallað tvöfalt kjör- dæmisþing. Þá eiga hverjir fimm félagar sem skráðir eru í starf- andi flokksfélögum í kjördæminu einn fulltrúa á þinginu. Má segja að um nokkurs konar út- færslu á prófkjöri sé að ræða en markmiðið með þessu er að reyna að koma í veg fyrir að fólki verði smalað í flokkinn og þeir einir kjósi sem stjórnir viðkomandi fé- laga hafa valið. Fulltrúar fram- sóknarmanna hafa lagt fram til- lögu um að hver hinna þriggja R- listaflokka fái tvo fulltrúa í annað til sjöunda sæti listans en hinir veljist með öðrum hætti. Um slíkt mun vera nokkuð góð sátt innan raða framsóknarmanna og er ekki talið að þeir muni gera tilkall til borgarstjóraefnis listans. Viðræðunefnd R-listaflokk- anna hélt fund í vikunni og var að- allega fjallað um málefnasamning þeirra. Næsti fundur viðræðunefndar- innar verður haldinn á fimmtu- daginn kemur. hjalmar@frettabladid.is AÐEINS FJÓRÐI HVER BLÓÐGJAFI ER KONA. HÉR ER EKKI VANÞÖRF Á AÐ HEFJA BLÓÐI DRIFNA JAFNRÉTTISBARÁTTU SEM ÞÓ BJARGAR MANNSLÍFUM. ERTU MEÐ ÞETTA Í BLÓÐINU? OKKUR BLÓÐLANGAR Í JAFNRÉTTI ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - O G V 2 84 26 06 /2 00 5 VERÐUR SELD Húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg í Reykjavík verður selt og skipta borgin og ríkið með sér söluandvirðinu í samræmi við eignarhlut. VIÐRÆÐUNEFND R-LISTAFLOKKANNA Frá fundi á þriðjudaginn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Höskuldur hættir: Mun sakna starfsins ÁTVR Höskuldur Jónsson, for- stjóri Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins, hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með 1. september n æ s t k o m - andi og hef- ur fjár- m á l a r á ð - herra fall- ist á það. Höskuld- ur hefur verið for- s t j ó r i ÁTVR í tæplega 20 ár, frá 1. apríl 1986. Þar áður var hann ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu um ellefu ára skeið. Höskuldur verður 68 ára gamall í haust og lætur því af störfum sökum aldurs. „Vissulega kem ég til með að sakna starfsins. Ég hef notið þess að vinna með færu starfs- fólki og fylgjast með umgjörð fyrirtækisins breytast á þess- um tæpu tuttugu árum,“ segir Höskuldur. - oá HÖSKULDUR JÓNSSON Höskuldur lætur af störfum í haust eftir tæp 20 ár í forstjóra- stóli ÁTVR. M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.