Fréttablaðið - 03.06.2005, Síða 56
40 3. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Vertu me› í Kvennahlaupinu 11. júní. Nánari uppl‡singar á sjova.is.
Sjóvá hefur
veri› a›alstyrktara›ili
Kvennahlaupsins í 13 ár.
Njóttu lífsins – áhyggjulaus
Höfum opnað
lagersölu að
Laugarvegi 13.
Skór fyrir alla
fjölskylduna
4 verð
990-1990
2990-3990
Opið
Virka daga 12-18
Laugardaga 10-17
Salsa
stemningin
er hjá okkur!
Komdu og vertu með
Opið til 03 um helgar
Ofurstjörnurnar Madonna og
Sting ætla að troða upp saman á
Live 8 tónleikunum í London í
sumar. Þetta samstarf mun verða
skráð á spjöld poppsögunnar sem
eitt hinna merkustu og er full-
komin viðbót við þessa risatón-
leika. Eitt lag sem stjörnurnar eru
sagðar ætla að taka saman er lag-
ið Imagine sem John Lennon gerði
ódauðlegt. „Þau voru fyrst að
hugsa um að taka Bítlalag en
ákváðu að að taka Imagine,“ sagði
heimildarmaður. Madonna þurfti
að hafa samráð við rabbínann sinn
um lagaval, en hún er eins og
flestir vita Kabbalahtrúar, sem er
hluti af gyðingdómi. Þrátt fyrir
þetta samstarf munu stjörnurnar
líka koma fram hvort í sínu lagi,
þar sem Sting ætlar að spila fyrir
hádegi en Madonna um eftirmið-
daginn. Þau munu svo sameina
krafta sína í lok stórtónleikanna.
Annað stórt samstarf sem er lík-
legt til að myndast fyrir þessa
tónleika er á milli Robbie Willi-
ams og fyrrverandi Guns 'n'
Roses rokkarans Slash, en þeir
eiga það sameiginlegt að vera
fæddir nálægt stórbænum Stoke-
on-Trent. Þetta eru greinilega eft-
irsóttustu tónleikar sumarsins því
stjörnurnar berjast um sæti í dag-
skránni. Hljómsveitarmeðlimir
The Who hafa grátbeðið Bob
Geldof um að fá að taka þátt og
Kryddpíurnar eru öskureiðar yfir
því að fá ekki að vera með. ■
Duran Duran frá
Reykjavík til Rómarborgar
MADONNA Hefur fengið blessun rabbínans síns til að taka þátt í
góðgerðartónleikunum.
STING Er í fyrsta sinn í samstarfi við poppdrottninguna Madonnu.
Sögulegt samstarf Madonnu og Sting
Nú hefur komið í ljós að hljóm-
sveitin sívinsæla Duran Duran
mun taka þátt í Live 8-stórtón-
leikunum. Þeir stíga á svið í Róm,
en tónleikarnir verða samtímis í
fimm borgum, París, Róm, Fíla-
delfíu, Lundúnum og Berlín. Dur-
an Duran heldur tónleika í Egils-
höll 30. júní og verða því aðeins
þremur dögum síðar á sviðinu í
Róm eða 2. júlí. Það verður
ókeypis inn á alla tónleikana en
þeir eiga að vekja athygli á fá-
tækt og skuldum þriðja heimsins.
Það þykir gríðarlegur heiður að
fá að taka þátt í þessum tónleik-
um og reynsluboltinn Elton John
segist stoltur af því að fá að vera
í hópi þeirra virtu listamanna
sem koma fram. „Þetta er rjóm-
inn af tónlistarmönnum heimsins
í dag,“ sagði Elton. Það eru þó
ekki allir jafn spenntir fyrir tón-
leikunum því hagfræðingar hafa
tjáð áhyggjur sínar. Þeir óttast að
þótt markmið tónleikanna sé gott
þá muni það ekki skila sér til
þeirra sem þurfa á því að halda,
því þróunarhjálp sé afar við-
kvæmt mál. ■
DURAN DURAN Meðlimir Duran Duran þurftu ekki að grátbiðja um að taka þátt í Live 8