Fréttablaðið - 06.06.2005, Side 73
Framtíðarsýn um Reykjavíkur-
borg getur ekki undanskilið
Vatnsmýrina. Hún er blindi punkt-
urinn í auga D-listans, sem kynnti
tillögur sínar um borgina án þess
að hafa skoðun á stærsta tækifæri
Reykjavíkur til að breytast úr
þorpi í borg. Ég fagna hins vegar
tillögum D-lista, sem eru blanda af
gömlu og nýju, og vil kynna sjón-
armið mín um framtíðarmögu-
leika Reykjavíkur – og þar er
Vatnsmýrin ekki undanskilin. Það
liggur beint við að skoða mögu-
leika Vatnsmýrarinnar áður en
grafin eru göng út í Engey. Ég
kynni hér hugmyndir sem mér
finnst mikilvægt að koma á
framfæri í umræðunni sem nú
stendur.
Engin höfuðborg í hinum
vestræna heimi á sams konar
tækifæri og Reykjavík: risastórt
óbyggt kjörsvæði í hjarta borgar-
landsins. Með því að byggja upp
framtíðarborgarbyggð í Vatns-
mýrinni tekur Reykjavík stökk inn
í 21. öldina – risastórt skref fram á
við. Við höfum tækifæri til að
klofa yfir skipulagsmistök 20. ald-
arinnar sem þöndu borgina út og
dreifði of vítt. Reykjavíkurlistinn
vill efna til alþjóðlegrar hug-
myndasamkeppni um þennan
stóra framtíðardraum – hvernig
hann getur litið út. Við þurfum að
draga upp mynd af framtíðarborg-
inni og skoða af yfirvegun í sam-
anburði við þá mynd sem blasir
við í dag; fá til þess færustu hugs-
uði að sýna okkur hvað geti orðið
með dirfsku og áræði – í stað þess
útsýnis sem við höfum í blindgöt-
unni sem deilan um flugvöllinn er.
Annað stórt tækifæri
Uppbygging í miðbænum, sem
teygir sig frá fyrirhuguðu tónlist-
arhúsi í átt til Lækjartorgs og síð-
an yfir á slippsvæðið og
Mýrargötuna, er nú komin af
draumsýnarstigi á verkáætlun.
Hér er annað fágætt tækifæri,
tónlistar- og ráðstefnuhús með
aðliggjandi hverfi (og vonandi
listaháskóla) er stærsta einstaka
verkefni sem komið hefur í
miðbæinn frá upphafi. Í framhaldi
þarf að endurgera Lækjartorg,
sem er því miður borgarskömm.
Sundabraut „alla leið“ á að vera
forgangsverkefni í samgöngumál-
um þjóðarinnar. Um leið og hún
kemur (en fyrr ekki) verður hægt
að reisa glæsta íbúðabyggð í Gufu-
nesi/Geldinganesi, sem verður í 5-
7 mínútna fjarlægð frá
miðbænum. Þessi kjarni, Gufu-
nes/Geldinganes, kemur auðvitað
til notkunar langt á undan uppfyll-
ingum í vestur frá Örfirisey og
blasir nú við. Ef um það næst sátt
að byggja upp í austurhluta
Viðeyjar í framhaldi væri ég því
hlynntur; enn er á lífi fólk sem bjó
í þorpinu í Viðey og stundaði þar
vinnu og sótti skóla. Við Elliðavog-
inn má þróa 1.000 íbúða bryggju-
hverfi í framhaldi af því sem nú
þegar er komið og með því að færa
burt þunga atvinnustarfsemi úr
Ártúnshöfðanum meðfram ósum
Elliðaáa má skapa frábært íbúðar-
land, sem og við Súðarvog. Allt eru
þetta svæði sem liggja vel við
frekari uppbyggingu án teljandi
kostnaðar við samgöngumann-
virki eða uppfyllingar sem ekki
eru þegar fyrirhuguð.
Þegar litið er yfir til syðri hluta
vesturborgarinnar er augljóst að
Suðurgatan þarf að halda áfram
yfir á Álftanes með því að fara
yfir eða undir Skerjafjörð, og síð-
an þarf að loka hringnum með
tengingu yfir til Hafjarfnarðar
eða sunnan hans. Þar með er kom-
in sú „hringbraut“ sem umlykur
miðborgarsvæðið og gerir það að
kjarna í stað þess að vera land-
fræðilegur útnári í borgarlandinu.
Undarlegt er að tillögur D-lista
skuli ekki fela þessa hugsun í sér,
en það helgast væntanlega af
feimninni við Vatnsmýrar-
möguleikann – sem á korti Sjálf-
stæðisflokksins er eins og korn-
akur! Framtíðarsýn um Reykjavík
án Vatnsmýrar er flótti. Nú þarf
að taka af skarið um flugvöllinn:
finna honum stað í nágrenni borg-
arinnar og taka það verkefni al-
varlega, eða stytta tímann frá
Keflvík í miðborgina um a.m.k.
50% með göngum frá álverinu í
Álftanes og halda svo áfram inn í
Suðurgötuna. Til þess má nota fé
sem fæst fyrir verðmætt bygging-
arland í eigu ríkis og borgar í
Vatnsmýri. Auðvitað kemur til
greina að byggja nýjan flugvöll í
jarðri borgarlandsins, en með
þessari samgöngubót sem hér er
lýst er það hugsanlega óþarft þar
sem ferðatími til Keflavíkur verð-
ur miklu styttri en nú og sú hring-
tenging sem skapast utan um
borgarhjartað er mikilvæg.
Tveir hringir um hjarta borgarinnar
Á kortinu sem hér er kynnt sést að
með því að fara yfir Skerjafjörð
og tengjast um Álftanes yfir í
Hafnarfjörð (tvær leiðir sýndar)
verður til hringur um miðborgar-
kjarnann í Vatnsmýri/höfn/gamla
miðbæ. Kosturinn er þessi: Höfuð-
borgarsvæðið þjappast saman
með því að Hafnarfjörð-
ur/Garðabær/Kópavogur og mið-
borg liggja innan, eða við, sömu
hringbrautina. Hér eru líka sýnd
göng undir Öskjuhlíð sem þegar
eru á dagskrá og munu létta álagi
af Miklubraut/Kringlumýrar-
braut. Við þetta skapast í raun
tvær hringbrautir um borgina:
innri hringur um miðbæjar-
kjarnann, og ytri hringur sem
fylgir Reykjanesbraut í átt að
Mjódd og þaðan með tengingu yfir
á Sæbraut/Sundabraut.
Munurinn á því sem ég kynni
eða D-listinn felst í þessu: 1)
Vatnsmýrin verður hjarta fram-
tíðarborgarinnar með gamla
miðbæinn að baklandi og nýja
hverfið við höfnina að aðdráttar-
afli fyrir atvinnu, menningu og
mannlíf. 2) Þessir kostir eru borð-
leggjandi strax á næstu árum, án
þess að leggja í tugmilljarða upp-
fyllingar út í Engey/Akurey með
tilheyrandi hliðrun á þungamiðju
borgarinnar vestur fyrir
miðbæinn, sem skapar mikil um-
ferðarvandræði. 3) Tvær hring-
brautir um borgina létta á stökum
álagspunktum og greiða fyrir allri
umferð auk þess sem ný bygging-
arsvæði verða í örskotsfjarlægð
frá miðborginni. Álftanes fær al-
veg nýtt vægi sem þróunarkostur
í snertifjarlægð við miðborgina.
Samtímis getum við tryggt þeim
íbúum borgarinnar sem vilja búa í
friðsælu úthverfi í anda Fossvogs-
hverfisins eða suðurhlíða Kópa-
vogs ákjósanlegar lóðir í þúsunda-
tali í veðursæld Úlfarsfells. Þessi
leið gerir það sem Reykjavík hef-
ur alltaf langað til að gera en
aldrei haft burði til fyrr en nú: Að
breytast úr þorpi í borg.
fiegar liti› er yfir til sy›ri hluta
vesturborgarinnar er augljóst
a› Su›urgatan flarf a› halda
áfram yfir á Álftanes me› flví
a› fara yfir e›a undir Skerja-
fjör›, og sí›an flarf a› loka
hringnum me› tengingu yfir til
Hafnarfjar›ar e›a sunnan
hans.
Vatnsm‡rin er einstakt tækifæri
17MÁNUDAGUR 6. júní 2005
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
BORGARFULLTRÚI
UMRÆÐAN
SKIPULAGSMÁL