Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 4
4 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR Tillaga formanns Kjördæmasambands framsóknarmanna: Vill halda opi› prófkjör STJÓRNMÁL „Ég legg til að fram- sóknarmenn í Reykjavík haldi opið prófkjör svo að borgarbúar geti sjálfir valið okkar borgar- fulltrúa,“ segir Þorlákur Björns- son formaður Kjördæmissam- bands framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður en hann á einnig sæti í viðræðu- nefnd um framtíð R-listans. Hann segir umræðuna hafa verið á þá vegu að framsóknar- menn séu hræddir við dóm kjós- enda vegna skoðanakannanna að undanförnu en með þessu vilji hann sannreyna að þeir treysti borgarbúum mæta vel til að meta störf flokksins. Aðpurður hvort R-lista flokk- arnir séu farnir að huga að kosn- ingum hver með sínu sniði segir Þorlákur það aðeins eðlilegt að flokkarnir noti sína aðferð við að koma sér saman um menn og hann telur að opið prófkjör sé eins og komið er hentugasta leiðin fyrir framsóknarmenn, hvort sem þeir verði innan R- listans eða ekki. Alferð Þorsteinsson segir þetta vera bestu tíðindi sem hann hafi heyrt lengi frá forystu flokksins og vonast hann ein- dregið til að orðið verði við til- lögunni. Hann segist ekki vera smeykur við að leggja verk sín hjá Orkuveitunni undir dóm borgarbúa, þrátt fyrir að stjórnarformennska hans hjá Orkuveitu Reykjavíkur hafi verið mjög umdeild, enda hafi umsvifin þar treyst atvinnulífið á höfuðborgarsvæðinu. -jse fi‡ski bankinn haf›i tilkynningaskyldu ytra VIÐSKIPTI Rekstrarhagnaður þýska bankans Hauck & Aufhäuser nam um 2,4 milljörð- um íslenskra króna árið 2004 samkvæmt ársreikningi bank- ans. Söluhagnaður bankans af bréfunum í Búnaðarbanka árið 2004 var hins vegar um 1,85 milljarður króna sem bóka á sem hagnað samkvæmt reiknings- skilavenjum bankans. Hagnaður bankans mun því að meira en tveimur þriðju hlutum byggður á fjárfestingu hans í Búnaðarbankanum. Þýski bankinn hefur ekki fengist til að staðfesta hvort sú fjárfesting hafi verið hans eigin eða hvort hann hafi keypt bréfin fyrir hönd annarra aðila eins og haldið hefur verið fram. Alþekkt er að fjármálafyrir- tæki hafi safnreikninga fyrir viðskiptavini sína. Þannig kemur bankinn fram sem hluthafi fyrir hönd viðskiptavinarins og er skráður hluthafi en ekki hinn raunverulegi eigandi. Slíkt telst fyllilega eðlilegt en engu síður hefur hinn raunverulegi eigandi upplýsingaskyldu gagnvart við- komandi yfirvöldum, svo sem fjármálaeftirliti eða kauphöll- um. Þýska bankanum bar skylda að tilkynna þýska fjármálaeftir- litinu um kaup sín samkvæmt þýskum bankalögum, þar sem viðskipti með Búnaðarbankann áttu sér stað innan Evrópska Efnahagssvæðisins og eign Hauck & Aufhäuser í Búnaðar- bankanum var meiri en tíu pró- sent. Þetta sagði starfsmaður þýska fjármálaeftirlitisins þegar Fréttablaðið leitaði upplýsinga þar um tilkynningaskyldu bank- ans. Þýska fjármálaeftirlitið vill ekki gefa upp hvort bankinn hafi gert slíkt enda tjáir það sig ekki um mál einstakra banka. Eftirlit- ið staðfesti þó að þýski bankinn hafi ekki haft þessa upplýsinga- skyldu ef hann hefði keypt hlut- inn í annars nafni því þá hefði sá aðili verið tilkynningaskyldur. Forsvarsmenn Eglu hafa tjáð Fréttablaðinu að eignarhlutur þýska bankans í Búnaðarbanka hafi verið færður í veltureikning þýska bankans. Sá reikningur er skráður í ársreikningi 2003 að upphæð um 13 milljarðar ís- lenskra króna. Kaup bankans í Búnaðarbankanum sama ár voru að fjárhæð 3,7 milljarðar króna. Samkvæmt því er rúmlega fjórð- ungur af veltureikningi bankans viðskipti með bréf í Búnaðar- bankanum. hjalmar@frettabladid.is EVRÓPA HERÐA LEIT AÐ MLADIC Serbnesk og bosnísk stjórnvöld hafa ákveðið að herða leitina að stríðs- glæpamönnum við landamæri ríkjanna tveggja. Leitin beinist einkum að Ratko Mladic, sem sakaður er um að hafa stjórnað fjöldamorðum á 8.000 múslimum í Srebrenica í júlí 1995. SKOTINN TIL BANA Öfgamönnum úr röðum mótmælenda er kennt um morðið á karlmanni sem skot- inn var til bana í Belfast, höfuð- borg Norður-Írlands, á föstudag. Maðurinn var að vinna í rústum kráar sem var áður í eigu eins yf- irmanna öfgahóps mótmælenda þegar bifreið var ekið framhjá og hann skotinn. Kynning á framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun Gestamóttakan í Skíðaskálanum í Hveradölum er opin mánudaga-laugardaga kl. 9-17 og sunnudaga kl. 13-18. Allar nánari upplýsingar í síma 516 6000 og á www.or.is Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir! ORKA ÚR IÐRUM JARÐAR www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 2 87 51 06 /2 00 5 LÖGREGLUFRÉTTIR VEÐRIÐ Í DAG KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,94 65,24 115,62 116,18 78,42 78,86 10,52 10,582 9,96 10,018 8,27 8,318 0,585 0,5884 95,5 95,06 GENGI GJALDMIÐLA 01.07.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 110,18 -0,13% Rúmlega tveir flri›ju hlutar hagna›ar Hauck & Aufhäuser ári› 2004 eru vegna söluhagna›ar af Búna›arbanka. fi‡ski bankinn haf›i tilkynningaskyldu vegna kaupanna hjá fl‡ska fjármálaeftirlitinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H B HÖFUÐSTÖÐVAR HAUCK & AUFHÄUSER Í FRANKFURT Rúmlega tveir þriðju hlutar hagn- aðar bankans árið 2004 er til kominn vegna söluhagnaðar af Búnaðarbanka. Ólafsvík: Sumarhús og tjöld fuku HÁTÍÐ Mikið fjör var á færeyskum dögum í Ólafsvík um helgina og fjöldi fólks sóttu bæinn heim. Lögreglan áætlar að um 3000 til 5000 manns hafi verið í bænum. Að sögn lögreglu fór allt vel fram en mikinn strekking gerði aðfararnótt laugardags og veður var með versta móti. Tjöld fuku út í veður og vind sem og grind af sumarbústað sem var í byggingu. Björgunarsveitir og lögregla voru kölluð út til að aðstoða fólk sem lenti í vandræðum vegna veður- hamsins. Einhverjir gestir pökkuðu þá saman og fóru heim. Veðrið lagaðist þó fljótlega daginn eftir og vindinn lægði. ■ DANSAÐ Á FÆREYSKUM DÖGUM Nokkuð hvasst var í Ólafsvík og einhver tjöld fuku. ÞORLÁKUR BJÖRNSSON Þorlákur segir framsóknarmenn hvergi bangna heldur séu þeir reiðubúnir að bera verk sín undir dóm borgarbúa og því leggur hann til að flokkurinn haldi opið prófkjör í Reykjavík. MAÐUR LÉST SKAMMT FRÁ HÖFN Maður á sextugsaldri fannst lát- inn í Ketillaugarfjalli um miðbik gærdags. Maðurinn er heima- maður á Höfn og hafði gengið oft á fjallið. Lögreglan á Höfn sagði líklegt að fólk hafi farið að undr- ast um hann og fundið hann lát- inn. Maðurinn hafði fallið fram af brún. Ekki er ljóst hvort það hafi orsakaði dauða hans. FÓTBROTNAÐI VIÐ ÖSKJUVATN Lögreglunni í Húsavík barst til- kynning um ökklabrotinn mann við Öskjuvatn um þrjúleytið í gær. Erfitt var að komast að manninum fótgangandi og var því send þyrla frá varnarliðinu til að sækja hann. BÁTUR SÖKK ÚT AF SNÆFELLS- NESI Báturinn Ísborg SH 58 var nærri sokkinn út af Snæfellsnesi um klukkan sex á föstudags- kvöld. Landhelgisgæslan sendi bátinn Bárð SH 81 á vettvang og tókst að bjarga skipverjanum á Ísborgu ómeiddum. TVÖ UMFERÐARÓHÖPP Tvö um- ferðaróhöpp urðu á Vestur- landsvegi í gær. Um klukkan tíu í gærmorgun varð árekstur við gatnamót Akrafjallsvegar og Vesturlandsvegar. Bílarnir skemmdust töluvert og þurfti að draga þá í burtu en engin slys urðu á fólki. Um tvö leytið valt bíll við gatnamót Vestur- landsvegar og Hvalfjarðarveg- ar. Að sögn lögreglunnar á Akranesi voru þrjár stúlkur í bílnum en engin þeirra slasað- ist. TVÖ FÓTBOLTAMÓT OG HUMAR- HÁTÍÐ Tvö fótboltamót eru á Ak- ureyri yfir helgina og eitt golf- mót. Að sögn lögreglu fór allt vel fram í gær en mikið var af fólki í bænum vegna mótanna. Einnig var mikill erill á Höfn vegna Humarhátíðarinnar sem stendur yfir en hátíðin fór einnig vel fram og lögregla hafði ekki þurft að hafa afskipti af hátíðarhöldun- um í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.