Fréttablaðið - 03.07.2005, Síða 12
Margt hefur breyst frá þeim tíma
þegar Sesselja H. Sigmundar-
dóttir stofnaði barnaheimili á Sól-
heimum í Grímsnesi í nokkrum
tjöldum á afmælisdag sinn 5. júlí
árið 1930. „Það var torfbær á
staðnum en hann var óíbúða-
hæfur,“ greinir Agnar Guðlaugs-
son framkvæmdastjóri Sólheima
frá og bætir við að Sesselja og
börnin hafi dvalið í tjöldum fram
í nóvember á meðan Sólheima-
bærinn var byggður. Nálægur
hver hafi verið leiddur í rörum
undir gólf tjaldanna til að halda
hita.
Slík hugvitssemi einkennir
enn þann dag í dag Sólheimasam-
félagið en það rekur sína eigin
hitaveitu, dreifikerfi fyrir raf-
magn, fráveitukerfi, vatnsveitu,
sorphirðu, endurvinnslu auk þess
sem sjö íbúar skipa slökkvilið á
staðnum.
Árið 1931 kom fyrsta fatlaða
barnið að Sólheimum að undirlagi
Knut Ziemsen sem hafði verið
Sesselju innan handar við barna-
heimilið. Hún samþykkti það með
þeim skilyrðum að það myndi
ekki hamla börnunum sem fyrir
voru.
Agnar segir að í rauninni hafi
Sólheimar aldrei verið skil-
greindir sem staður fyrir þroska-
hefta eða fatlaða heldur búi þar
saman fólk sem aðhyllist sér-
staka umhverfisstefnu en Sól-
heimar voru fyrsti staðurinn á
Norðurlöndum til þess að stunda
lífræna ræktun. Agnar segir að í
raun geti hver sem er flutt til Sól-
heima meðan viðkomandi fylgi
umhverfisstefnu staðarins.
Um hundrað íbúar búa á Sól-
heimum og njóta um fjörutíu
þeirra þjónustu. „Þetta er bara
samfélag,“ segir Agnar,og bætir
við að daglegt líf á Sólheimum sé
líflegt. Allir vinni frá níu til fimm
og fimm daga vikunnar borði
stærstur hluti íbúanna saman í
hádeginu. Eftir vinnu er hægt að
fara í félagsmiðstöðina Grænu
könnuna eða taka þátt í starfi
íþrótta-, skáta- og leikfélagsins.
Agnar segir að draumur Sól-
heimaíbúa sé að gera Sólheima að
sjálfstæðu sveitarfélagi enda séu
þau nánast sjálfbær. „Við sjáum
um allt sjálf nema skóla- og leik-
skóla,“ segir Agnar en gerir sér þó
grein fyrir að það falli varla að
stefnu ríksins um að fækka sveit-
arfélögum.
Afmælishátíð verður haldin í
dag að Sólheimum og vígir biskup
Íslands, herra Karl Sigurbjörns-
son, Sólheimakirkju. Þá verður
Umhverfissetur Sólheima tekið
formlega í notkun og Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfisráð-
herra flytur ávarp en setrið mun
leggja áherslu á að kynna sjálf-
bæra þróun.
Á afmælinu sjálfu á þriðjudag
tekur Árni Magnússon félags-
málaráðherra fyrstu skóflustung-
una að nýrri miðstöð Sólheima auk
þess sem opnað verður trjásafn. ■
12 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR
JIM MORRISON (1943 – 1971)
lést þennan dag.
Vilja vera sjálf-
stætt sveitarfélag
SÓLHEIMAR Í GRÍMSNESI: 75 ÁR FRÁ STOFNUN
„Vinur er sá sem veitir þér algert frelsi til
að vera þú sjálfur.“
Jim Morrison var söngvari hljómsveitarinnar The Doors, sem naut
gífurlegra vinsælda. Hann lést 27 ára gamall í baðkeri í París.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Pála S. Ástvaldardóttir frá Sauðárkróki
er látin.
Sigurjón Björnsson fyrrverandi stöðvar-
stjóri Pósts og síma í Kópavogi, lést
miðvikudaginn 29. júní að Hrafnistu í
Hafnarfirði.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1883 Franz Kafka rithöfundur.
1962 Tom Cruise leik-
ari.
AFMÆLI
Ólafur Sigurgeirsson, dvalarheimilinu Ási
í Hveragerði, er áttræður í dag.
Salóme Þorkelsdóttir,
fyrrverandi forseti Al-
þingis, er 78 ára.
Ólöf Eldjárn ritstjóri er
58 ára.
Bára Lyngdal Magnús-
dóttir leikkona er 41
árs.
Marsibil Jóna Sæ-
mundsdóttir er 31 árs.
Í KVENNAHLAUPI Sólheimar standa fyrir kvennahlaupi á hverju ári. Þó nokkur fjöldi kvenna á Sólheimum tóku þátt í ár og hér má sjá
þær fyrir framan kaffihúsið Grænu könnuna.
Þennan dag árið 1987 var fyrrverandi
Gestapó-foringinn Klaus Barbie
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi
gegn mannkyninu. Kviðdómur fann
hann sekan um 341 ákærulið í dóms-
sal í Lyon í Frakklandi. Hinn 73 ára
gamli Barbie, sem hlaut viðurnefnið
„slátrarinn frá Lyon“ var ákærður fyrir
að láta flytja 842 manns í útrýmingar-
búðir Nasista í seinni heimstyrjöldinni.
Flestir þeirra voru gyðingar og um 370
af þeim sem Barbie sendi í búðirnar
létu lífið. Ein ákæran snérist um atvik
þar sem 44 börnum var smalað
saman á bóndabæ nálægt Lyon og
send á vit dauðans.
Dómssalurinn var yfirfullur af aðstand-
endum þeirra látnu. Málið fékk mikla
fjölmiðlaumfjöllun í Frakklandi og beið
fólk fyrir utan dómshúsið til þess að
hlýða á úrskurðinn.
Áður hafði Barbie tvisvar verið dæmd-
ur til dauða en hann lifði undir fölsku
nafni í Bólivíu. Hann fannst þar árið
1972 en yfirvöld í Bólivíu fengust ekki
til að framselja hann fyrr en árið 1983.
Barbie gekk til liðs við SS-sveitir Þjóð-
verja árið 1935 og varð síðar yfir-
maður Gestapó í Lyon. Talið er að
hann eigi sök á dauða yfir fjögur þús-
und manna í síðari heimstyrkjöldinni.
Eftir stríðið vann Barbie fyrir Bandarík-
in sem gagnnjósnari en Bandaríkin
báðust síðar afsökunar á því. Barbie
lést í fangelsi í Lyon 25. september
árið 1991. 3. JÚLÍ 1987
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1863 Robert E. Lee hershöfðingi
er sigraður við Gettysburg í
bandarísku borgara-
styrkjöldinni.
1921 Hin íslenska fálkaorða er
stofnuð. Hana á að veita
þeim sem öðrum fremur
hafa eflt hag og heiður Ís-
lands.
1948 Skrifað er undir samning
um Marshall-aðstoð.
Bandaríkjamenn létu Ís-
landi um 39 milljónir dala í
té.
1954 Dregið var í fyrsta sinn í
Happdrætti DAS. Fyrsti
vinningurinn var Chevrolet-
fólksbifreið.
1973 Vísindamenn lýsa því yfir að
eldgosinu í Heimaey sé
lokið.
1986 Sjálfvirkt farsímakerfi Lands-
símans er formlega tekið í
notkun.
Barbie í lífstí›arfangelsi
Tilkynningar um
merkisatbur›i, stóraf-
mæli, andlát og jar›-
arfarir
í smáletursdálkinn
hér a› ofan má senda
á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a›
senda á
auglysingar@frettabladid.is
e›a hringja í síma
550 5000.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma
Bergþóra G. Jónsdóttir
Hjálmholti 9, Reykjavík,
sem lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn 25. júní s.l. verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. júlí kl. 13.
Hrafnkell Björnsson Dagbjört Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Hrafnkelsson Kristín María Guðjónsdóttir
Björn Hrafnkelsson
Viðar Hrafnkelsson
DÓMSMÁLARÁÐHERRA Björn Bjarnason opnaði nýjan vef Lögbirtingablaðsins.
Lögbirtingabla›i› a›eins á netinu
Lögbirtingablaðið verður í fram-
tíðinni einungis gefið út á netinu. Á
föstudag opnaði Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra nýjan vef Lög-
birtingablaðsins, www.logbirtinga-
blad.is, á sýsluskrifstofu Hvols-
vallar. „Í dag eru merk tímamót í
sögu Lögbirtingablaðsins, þegar
stigið er skref frá prentaðri útgáfu
þess til rafrænnar. Með þessari
breytingu er svarað kalli tímans en
prentað hefur blaðið verið gefið út
síðan í ársbyrjun 1908,“ sagði
Björn en Gutenberg prentsmiðjan
prentaði blaðið í 97 ár.
Í ársbyrjun 2002 var stigið
fyrsta skrefið í átt að rafrænni út-
gáfu samhliða þeirri prentuðu og
nú til fulls.
Þrátt fyrir hið nýja fyrirkomu-
lag verður hægt að panta ný tölu-
blöð á prenti. Netáskrift af blað-
inu verður ókeypis fram að ára-
mótum. ■
Í SUNNU Reynir Pétur kitlar Rósu forstöðumann garðyrkjustöðvarinnar Sunnu með lauf-
blaði. Með þeim á myndinni er dóttir Rósu, Líney Lea og Edda Guðmundsdóttir.