Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 17
Gæðastjóri
Markmið starfsins:
Sjá um og stýra gæðamálum fyrirtækisins með það að leið-
arljósi að ná sem bestum árangri hvað varðar gæði og eins-
leitni framleiðslu fyrirtækisins.
Hlutverk og ábyrgð:
• Uppfærslur á gæðahandbók.
• Hafa umsjón með skráningum og úrvinnslu frávika og
kvartana.
• Leiða og stjórna fundum gæðanefndar.
• Öll gagnakerfi sem tengjast gæðamálum fyrirtækisins.
• Umsjón með nýþjálfun og endurmenntun starfsmanna
fyrirtækissins.
• Öll áætlanagerð er tengist gæðamálum og þjálfun
starfsfólks.
• Tryggja flæði upplýsinga til framkvæmdastjóra.
• Sýna frumkvæði í uppbyggingu og þróun starfseminnar.
Menntun og hæfni sem starfið kallar á:
• Háskólamenntun eða sambærileg framhaldsmenntun á
sviði byggingafræði, tæknifræði eða verkfræði, helst
tengt byggingageiranum.
• Reynsla af gæðastýringu æskileg.
• Tungumálakunnátta; enska og eitt norðurlandamál í
það minnsta.
• Góð tölvukunnátta og reynsla í notkun Excel og Word.
• Stjórnunarhæfileikar og áhugi á byggingariðnaði og
tengdum sviðum.
• Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og
viðskiptavinum.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Fréttablaðsins, merktar
„Smellinn“, eða sendist Fréttablaðinu í tölvupósti á
box@frett.is merkt „Smellinn-Gæði“, fyrir 14. júlí n.k.
Byggingaiðnfræðingur/tækniteiknari
Markmið starfsins:
Vinna í tæknideild fyrirtækisins við gerð vinnuteikninga fyrir
framleiðsludeild fyrirtækisins, magntökur og önnur störf
sem til falla.
Menntun og hæfni sem starfið kallar á:
• Byggingaiðnfræðingur eða tækniteiknari.
• Reynsla af tölvuteikningum nauðsynleg.
• Góð tölvukunnátta og reynsla í notkun AutoCad, Excel
og Word.
• Áhugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum.
• Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og
viðskiptavinum.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Fréttablaðsins, merktar
„Smellinn“, eða sendist Fréttablaðinu í tölvuósti á
box@frett.is merkt „Smellinn-Cad“, fyrir 14. júlí n.k.
Fyrirtækið Þorgeir og Helgi hf. var stofnað árið 1963. Árið 1999 hófst
framleiðsla forsteyptra húseininga undir nafninu Smellinn
og er það í dag meginþátturinn í starfsemi fyrirtækisins.
Félagið er í eigu 11 hluthafa og eru starfsmenn um 50 talsins.
Starfsmenn okkar eru allir með mikla starfsreynslu og góða
menntun að baki. Sjá nánar www.smellinn.is.
Þorgeir og Helgi hf. / Smellinn á Akranesi óskar eftir að ráða í eftirtalin störf
Gæðastjóri • Byggingaiðnfræðingur/tækniteiknari
Þorvaldur Þór Björnsson er hamskeri
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Aðalstarfið er að stoppa upp fugla en
einnig verkar hann bein bæði úr fugl-
um og hvölum. Svo er hann húsa-
smiður og grípur smíðaáhöldin þegar
með þarf.
„Hamskurðurinn hefur verið áhugamál hjá
mér í yfir þrjátíu ár,“ segir Þorvaldur, sem
ólst upp í Reykjavík en var í sveit á sumrin
eins og tíðkaðist á þeim tíma. „Ég var á bæ
í Vestur-Húnavatnssýslunni og áhugi minn
á fuglum og náttúrunni almennt er meðal
annars kominn til af því. Á veturna gekk ég
í Laugarnesskóla og þar var kynt undir
þennan áhuga en svo er þetta í genunum
líka. Foreldrar mínir voru mikið fyrir að
horfa í kringum sig úti við,“ segir hann
brosandi. Nú hefur hann starfað á Náttúru-
fræðistofnuninni í tíu ár. Kveðst meðal
annars hamfylla fugla sem geymdir séu í
skúffum í vísindaskyni. Sumir séu úldnir
þegar þeir komi og þá séu bara beinin tekin,
hreinsuð og geymd til að hægt sé að bera
þau saman við bein sem fólk finni kannski
við uppgröft eða aðrar rannsóknir. „Þó ég
sé titlaður hamskeri hef ég líka verið að
verka hvalbein og setja upp hvalabeina-
grindur. Í Hvalamiðstöðinni á Húsavík,
Náttúrufræðistofnun Kópavogs og hvala-
skoðunarfyrirtæki í Reykjavíkurhöfn sem
heitir Hvalastöðin eru slíkar beinagrindur
eftir mig,“ segir hann og upplýsir að það
taki þrjú ár að hreinsa alla fitu úr beinum
hvalanna. Einnig lýsir hann verkun fiska
sem geymdir eru í sérstökum vökva er
varðveitir þá um hundruð ára ef rétt er að
farið.
Þorvaldur er sjálfmenntaður í faginu en
það kemur oft í hlut hans að hjálpa öðrum
vísindamönnum við rannsóknir og hann
kveðst vissulega hafa gaman af að vinna úti
við. Auk þess er hann húsasmiður og lagar
það sem laga þarf innan stofnunarinnar.
Þegar hann á frí er hann þó ekki alveg eins
spenntur fyrir fuglunum og hann var.
„Þetta breyttist svolítið þegar áhugamálið
varð að atvinnu. Maður er ekki alveg eins
upplagður að hafa það sem áhugamál á
eftir.“
gun@frettabladid.is
Áhugamálið varð að atvinnu
atvinna@frettabladid.is
Nýsköpun Samkeppni um við-
skiptaáætlanir, Nýsköpun 2005, er
nú haldin í fimmta skiptið og er Ís-
landsbanki einn af burðarásum
keppninnar. Eina skilyrð-
ið fyrir þátttöku er að
sama viðskiptaáætlun
hafi ekki áður verið send
í keppnina, að öðru leyti
er frjálst að senda inn
nýja eða eldri viðskiptaá-
ætlun. Innsendar við-
skiptaáætlanir fá ítarlega
umsögn sérfræðinga,
hægt er að vinna til veg-
legra peningaverðlauna
og auk þess er gert ráð
fyrir að valin verkefni fái
ákveðin tæknilegan stuðning við
vöruþróun hjá Iðntæknistofnun.
Nánar á www.nyskopun.is.
Kjarasamningur Tollvarðafélag
Íslands hefur samþykkt kjara-
samning félagsins og fjármálaráðu-
neytis sem undirritaður var 6. júní
2005. 106 voru á kjörskrá og kusu
89 eða 84% Já sögðu 68 eða 76%
en nei sögðu 21 eða 24%. Engin
atkvæðaseðill var auður eða ógild-
ur.
Norðurlönd Á aðalfundi
NSO Samtaka ríkisstarfs-
manna á Norðurlöndum
(Nordiske Stat-
stjenestemænds Organ-
isation) sem haldinn var á
Akureyri síðastliðinn mið-
vikudag var Tommy
Agerskov Thomsen kosinn
nýr formaður samtakanna.
Hann tók við formennsku
af Jens Andréssyni formanni SFR
sem gengt hefur embættinu síð-
astliðið ár. Með aðalfundinum lauk
þriggja daga ráðstefnu Samtaka
ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum
en hana sóttu liðlega 50 fulltrúar
frá Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku,
Noregi og Íslandi.
Þorvaldur kann vel við sig innan um náttúruminjarnar.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
Af lúxusfleytu á togara BLS. 2
Óléttar konur missa vinnu BLS. 2
Starf verkfræðingsins BLS. 6
Lánafulltrúi í fjárfestingabanka BLS. 8
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 12
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 3. júlí,
184. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.09 13.32 23.53
AKUREYRI 2.06 13.17 00.24
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
STÖRF Í BOÐI
Öryggisvörður 3
Byggingaverkfr. 3
Trésmiðir 3
Byggingaráðgj. 3
Grunnskólakennari 4
Bílstjóri 4
Hárgreiðslusveinn 4
Baðvörður 4
Leikskólakennari 4
Ræstingafólk 5
Lagerstörf 5
Málmsmiðir 6
Íþróttafulltrúi 7
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N