Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 18
Hlífðarbúnaður
Heilsan skiptir miklu máli og því nauðsynlegt að nota alltaf tilheyrandi hlífðar-
búnað ef starfið er þess eðlis að hans er þörf. Ef trassað er til dæmis að nota
eyrnarhlífar er hægt að hljóta varanlegan skaða á heyrninni. [ ]
Af lúxusfleytu á frystitogara
Harpa og Göran kunna vel við sig í Hálendismiðstöðinni en útiloka ekki frekari ævintýr.
Harpa Groiss hefur þrátt fyrir
ungan aldur komið víða við í
atvinnulífinu, bæði hér heima
og erlendis. Nú er hún hótel-
stýra á hálendinu en hefur
verið á frystiskipum á miðun-
um jafnt og lúxusfleytum í
Karabíska hafinu.
„Ég hef unnið víða frá því ég fór
að heiman sextán ára. Þetta
snýst um að viða að sér lífs-
reynslu og upplifa ævintýrin
meðan maður er enn ungur og
óbundinn. Mér hefur þótt allt
skemmtilegt sem ég hef fengist
við, en trúlega stendur þó vinn-
an á skemmtiferðaskipunum
upp úr, ekki síst vegna þess
hversu víða við fórum,“ segir
Harpa, sem vann við káetuþrif.
Skipið sem hún vann á telst
til lítilla skemmtiferðaskipa,
rúmar 200 farþega og 120
manna áhöfn. „Vinnan á þessum
skipum er mikið púl, sextán tím-
ar á sólarhring, en við höfðum
þó tækifæri til að skreppa í land
í nokkra tíma þegar skipið lá við
bryggju.
Farþegarnir voru mest ríkir
amerískir eldri borgarar, oft
sömu farþegarnir ár eftir ár og
margir skrýtnir og skemmtileg-
ir karakterar. Um borð er allt
sem hugurinn girnist, en þetta
eru ekki partífleytur eins og
stærri skipin. Gamla fólkið vill
sína rútínu og rólegheit og það
kom auðvitað stundum fyrir að
fólk kvaddi fyrir fullt og allt á
siglingunni.“
Hörpu finnst Rio de Janero
standa upp úr í minningunni svo
og litlar frumbyggjaeyjar í
Panama og heimsóknir í lítil
þorp í Amazon. „Það eru þó fjöl-
margir fleiri staðir sem voru
æðislegir að heimsækja eins og
Róm og Barcelona.“
Eftir þrjú ár á skemmtiferða-
skipinu lá leið Hörpu rakleitt á
frystitogarann Arnarey og það-
an fór hún í snyrtivöruverslun.
Nú er hún hótelstýra í hálendis-
miðstöðinni í Hrauneyjum, en
kærastinn hennar Göran
Sincranz, sem er frá Svíþjóð,
stýrir hótelinu með henni.
„Við Göran kynntumst þegar
við unnum á Hótel Rangá. Hann
er miðborgarstrákur frá Stokk-
hólmi, en hann nýtur þess í botn
að vera hér í víðáttunni.“
Harpa og Göran verða á há-
lendinu enn um sinn, en Harpa
útilokar ekki frekari ævintýr.
„Við erum enn ung og barnlaus
og til í allt,“ segir hún glað-
hlakkaleg.
Fjórtán klögumál vegna kynferðislegrar áreitni komu
til kasta HK á síðasta ári, en HK er stéttarfélag versl-
unar- og skrifstofufólks í Danmörku. Það er um 75%
auking frá árinu áður. Um fimm manns leita til HK að
meðaltali á ári vegna slíkra mála.
Í öllum tilfellunum fjórtán voru það konur sem urðu
fyrir kynferðislegri áreitni frá karlmönnum. Í 12 til-
fellum voru konurnar áreittar af yfirmanni sínum, í
tveimur tilfellum var um vinnufélaga að ræða, eða
mann sem áreitti konu á salerni fyrirtækisins. Hann
var rekinn fyrirvaralaust þegar yfirmaðurinn frétti af
málinu og kærður. Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi
og til að greiða konunni 15.000 danskar krónur í skaða-
bætur.
Konurnar 14 sem um ræðir voru allar meðvitaðar
um hvað þær áttu að gera. Þrátt fyrir áfallið sem slíkt
hefur í för með sér báðu þær manninn í öllum tilfellum
að hætta atferlinu og þegar það dugði ekki leituðu þær
til yfirmanns síns og trúnaðarmanns á vinnustaðnum
eða stéttarfélagsins beint ef um sjálfan yfirmanninn
var að ræða. ■
Kynferðisáreitni eykst
Klögumálum fjölgaði um 75% hjá danska verslun-
armannafélaginu.
Stöðugt fleiri kæra kynferðislega áreitni til samtaka verslun-
armanna í Danmörku.
Tugir þúsunda kvenna eru neyddar til
að hætta í vinnu sinni á hverju ári í
Bretlandi vegna þess að þær eru
barnshafandi. Þetta kemur fram í nýrri
könnun jafnréttisráðs þar í landi.
Þessar konur tapa tólf milljónum
punda í lögbundnum fæðingarorlofs-
launum á meðan vinnuveitendur eyða
126 milljónum punda í að finna stað-
gengla fyrir þær.
Enn fremur kemur fram í könnuninni
að milljón barnshafandi konur verði
fyrir mismunun á vinnustað á næstu
fimm árum og að konur þurfi að vera
betur upplýstari um vinnustaðaréttindi
sín.
Um það bil þrjátíu þúsund konur
missa starf sitt vegna á hverju ári
vegna þess að þær verða barnshaf-
andi en aðeins þrjú prósent þeirra
setja fram kvörtun. Næstum helming-
ur þeirra kvenna sem vinna á með-
göngutímanum, hafa orðið fyrir mis-
munun í vinnunni.
IMG Ráðgjöf og Landhelgisgæslan
kynntu á fundi í flugskýlinu á Reykja-
víkurflugvelli síðastliðinn miðvikudag
afrakstur stefnumótunarvinnu fyrir
Landhelgisgæsluna. Kynntar voru
breytingar á stjórnskipulagi sem sett-
ar eru fram í nýju skipuriti, en einnig
var farið yfir niðurstöður fram-
kvæmdahópa og sagt frá því hvernig
framhaldið yrði á þeirra vinnu.
Stefnumótunin hófst með greiningu
sem IMG Ráðgjöf og IMG Gallup önn-
uðust, með þátttöku allra starfs-
manna Landhelgisgæslunnar. Í fram-
haldinu fór af stað umbótavinna sem
ráðgjafar frá IMG stjórnuðu og fjöl-
margir starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar tóku þátt í.
Af hálfu IMG Ráðgjafar unnu Hákon
Gunnarsson og Sigþór Hallfreðsson
verkefnið, en Tómas Bjarnason stýrði
vinnustaðagreiningunni.
Margar óléttar konur missa vinnuna á
hverju ári í Bretlandi og verða fyrir mis-
munun á vinnustað.
Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði undir
kjarasamning við ríkið síðdegis í fyrra-
dag. Samningurinn felur í sér veruleg-
ar kjarabætur fyrir sjúkraliða, auknar
tryggingar vegna slysa og örorku,
hækkun á framlagi ríkisins til fjöl-
skyldu- og styrktarsjóðs og aukin
framlög til endur- og símenntunar og
hækkun á orlofs- og persónuuppbót.
Þann 1. maí 2006 kemur til fram-
kvæmda nýtt launakerfi með nýrri
launatöflu hliðstæðri töflu BHM. Gert
er ráð fyrir að samningurinn verði
kynntur á almennum fundi fyrir
sjúkraliða í Reykjavík og nágrenni
næstkomandi mánudag á Grettisgötu
89, fjórðu hæð. Fundurinn hefst
klukkan 16.
Sjúkraliðum verður kynntur nýr samningur á morgun.
Ný stefnumótun er í framkvæmd hjá Landhelgisgæslunni.
Ný framtíðarsýn Landhelgisgæslunnar
AFRAKSTUR STEFNUMÓTUNARVINNU.
Nýr samningur sjúkraliða
FELUR Í SÉR VERULEGAR KJARABÆTUR.
Barnshafandi konur beittar misrétti
FJÖLDINN ALLUR AF ÓLÉTTUM KONUM Í BRETLANDI MISSIR VINNUNA Á ÁRI
HVERJU VEGNA ÁSTANDS SÍNS.