Fréttablaðið - 03.07.2005, Page 46
22 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > HEIÐAR HELGUSON
Heiðar, sem nú er tuttugu ogsjö ára gamall, bjó á Dal-vík, ásamt móður sinni
Helgu Matthíasdóttur, fyrstu ár
ævi sinnar en sautján ára að aldri
fluttist hann til Reykjavíkur. „Það
var fínt að alast upp á Dalvík, ég
þekkti alla og allir þekktu mig.
Það var þægilegt að alast upp við
þær aðstæður sem eru í smá-
bæjarsamfélögum eins og á Dal-
vík. Þar var ég úti að leik frá
morgni til kvölds og þurfti ekki að
hafa áhyggjur af neinu. Þetta um-
hverfi var öruggt og þægilegt. Ég
eignaðist marga góða vini þar,
sem ég held sambandi við enn í
dag. Óneitanlega væri skemmti-
legra að geta hitt vini sína og fjöl-
skyldu hér á Íslandi oftar, en ég
verð bara að sætta mig við það
hversu mikillar viðveru er krafist
í fótboltanum.“
Af mölinni í borgina
Heiðar byrjaði ungur að árum
að láta að sér kveða í fótboltanum
og hóf fimmtán ára gamall að
leika með meistaraflokki Dalvík-
ur. „Ég hafði mikinn áhuga á fót-
bolta og æfði vel. Ég var farinn að
spila með meistaraflokki fimmtán
ára gamall og spilaði í tvö ár að
mig minnir. Ég man sérstaklega
vel eftir Jóni Þóri Jónssyni, en
hann var leikmaður og þjálfari
meistaraflokks Dalvíkur um tíma.
En auðvitað voru þarna margir
fleiri eftirminnilegir félagar.“
Heiðar flutti til Reykjavíkur
sautján ára gamall og byrjaði að
æfa þar með liði Þróttar í Reykja-
vík. „Það var lærdómsríkt fyrir
mig að koma í borgina þetta
ungur. Ég þurfti að læra að standa
á eigin fótum, og svona eftir á að
hyggja finnst mér þessi tími í
borginni hafa verið bæði
skemmtilegur og þroskandi. Ég
eignaðist nýja vini sem reyndust
mér vel. Þannig bjó ég heima hjá
Fjalari Þorgeirssyni, góðvini
mínum og markmanni Þróttar,
fyrstu mánuðina sem ég var í
borginni. Fjölskylda hans reynd-
ist mér afar vel.“
Frá Reykjavík til Noregs
Heiðar spilaði vel fyrir Þrótt og
segist hafa bætt sig mikið sem
leikmaður undir handleiðslu
góðra þjálfara. „Willum Þór Þórs-
son, núverandi þjálfari Vals,
reyndist mér vel og ég átti gott
tímabil þegar Þróttur komst upp í
úrvalsdeild. Ég skoraði mikið og
sýndi, að mér finnst, miklar
framfarir á stuttum tíma. Ég
komst í unglingalandsliðin og
reyndi að standa mig með þeim.“
Heiðar spilaði með landsliði
skipað leikmönnum undir tuttugu
og eins ár aldri, og eftir fyrsta
landsleik sinn með því liði gegn
Norðmönnum í Keflavík var
honum boðið til æfinga hjá Lille-
ström í Noregi. „Það voru um-
boðsmenn norskra liða að horfa á
leikinn og einn þeirra hefur sam-
band við mig og býður mér að
koma til reynslu í tvær vikur. Ég
samþykkti það og fæ samningstil-
boð eftir reynslutímann og ákvað
að skella mér í norska boltann.“
Heiðar var nýbúinn að kynnast
konu sinni, Eik Gísladóttur, á
þessum tíma og fór hún með
honum til Noregs. „Við Eik höfum
verið gift í sex ár. Við vorum bæði
frekar ung þegar við giftum
okkur, enda engin ástæða til þess
að bíða lengi með að gifta sig þeg-
ar maður hefur fundið þá réttu.
Hún fór með mér til Noregs, og
reyndist mér náttúrlega afar vel
eins og hún hefur alltaf gert.“
Heiðar segist hafa átt í erfið-
leikum með að þola álagið sem
fylgdi atvinnumennskunni. „Ég
átti í miklum erfiðleikum með að
þola líkamlega álagið sem fylgdi
æfingunum. Við æfðum hrikalega
mikið, miklu meira en ég hef
kynnst á Englandi. Ég einfaldlega
þoldi þetta álag ekki vel. Ég
meiddist töluvert og átti í erfið-
leikum með að halda mér í nægi-
lega góðu formi.“
Heiðar lék með Rúnari Krist-
inssyni, sem nú leikur með
Lokeren í Belgíu, hjá Lilleström
og ber honum vel söguna. „Rúnar
reyndist mér vel og hefur alltaf
gert. Hann var, og er enn þá, frá-
bær knattspyrnumaður sem hefði
getað spilað með nánast hvaða liði
sem er á sínum bestu árum.“
Slær í gegn í Noregi
Heiðar lék í tvö ár í Noregi og
á seinna árinu sló hann í gegn sem
helsti markaskorari í norsku
knattspyrnunni. „Ég þoldi æfing-
arnar betur eftir fyrsta árið og
náði að einbeita mér vel að því að
bæta leik minn á hverri æfingu.
Það er það eina sem dugir í fót-
boltanum, að stefna að því að
verða betri á hverri æfingu. Ég
náði svo að skora mark nánast í
hverjum leik, og ósjaldan komu
þau eftir samleik við Rúnar.“
Enska félagið Watford, sem þá
var í ensku úrvalsdeildinni,
keypti Heiðar fyrir tæplega tvö
hundruð milljónir íslenskra króna
frá Lilleström, sem gerði hann að
dýrasta leikmanni í sögu fé-
lagsins. „Fyrsti leikur minn var
gegn Liverpool á Vicarage Road,
heimavelli Watford. Það var mikil
stemning og mér leið eins og þetta
væri draumur. Mér tókst að skora
í leiknum fyrir framan hörðustu
aðdáendur Watford, sem fögnuðu
markinu ákaft. Að skora í mínum
fyrsta leik var draumi líkast.“
Fjölskyldan mikilvægust af öllu
Eftir góða byrjun í enska bolt-
anum hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Lið Watford féll niður í
næstefstu deild og hefur verið
þar í nokkur ár. Heiðar, sem
aðdáendur Watford kalla Ís-
manninn, hefur verið besti leik-
maður liðsins undanfarin ár og
hefur fundið sig vel í framlínu
liðsins. „Fjölskyldu minni hefur
liðið vel hér í London og ég hef
ekki séð neina ástæðu til þess að
skipta um lið fyrr en núna. Þó
það hefði verið gaman að komast
upp í úrvalsdeildina aftur og
spila með sterkara liði, þá snýst
lífið ekki allt um fótbolta. Eik
hefur verið í háskólanámi í graf-
ískri hönnun og er langt komin
með námið. Þá líður strákunum
okkar, þeim Aroni og Oliver, af-
skaplega vel og eiga þeir marga
vini í nágrenni við heimili okkar.
Okkar unga fjölskylda er nú á
leið inn í nýtt skeið sem vonandi
á eftir að reynast þroskandi og
skemmtilegt fyrir okkur öll.“
Við vorum bæði
frekar ung þegar við
giftum okkur, enda engin
ástæða til þess að bíða
lengi með að gifta sig þegar
maður hefur fundið þá
réttu.
,,
Í FÓTBOLTA FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
FEÐGARNIR SAMAN Heiðar ásamt sonum sínum Oliver og Aroni, sem eru fjögurra og sex ára. Feðgarnir fagna hér viðurkenningu sem
Heiðar fékk þegar hann var valinn leikmaður ársins hjá Watford á síðustu leiktíð.
Knattspyrnuma›urinn Hei›ar Helguson, sem n‡lega
gekk til li›s vi› enska úrvalsdeildarfélagi› Fulham,
hefur veri› atvinnuma›ur í íflróttinni frá árinu 1997.
Hei›ar, sem alinn er upp á Dalvík, flutti sig til Watford
á Englandi ári› 2000, flar sem hann hefur leiki› vi›
gó›an or›stír í fimm ár. Magnús Halldórsson ræddi vi›
Hei›ar um knattspyrnuferilinn og ‡mislegt fleira.
Chelsea bauð rúma þrjá milljarða í landsliðsmann Ghana í gær:
Lyon neitar a› sleppa Essien
FÓTBOLTI Michael Essien, tutt-
ugu og tveggja ára gamall miðju-
maður franska félagsins Lyon, er
eftirsóttur þessa dagana en öll
stærstu knattspyrnufélög Evrópu
hafa borið sig eftir því að fá leik-
manninn til sín.
Chelsea, með moldríka eigand-
ann Roman Abramovic í broddi
fylkingar, bauð í gær tuttugu og
sex milljónir punda, eða rúma
þrjá milljarða íslenskra króna, í
leikmanninn. Jean-Michael Aulas,
yfirmaður knattspyrnumála hjá
Lyon, sagði Essien miklu meira
virði. „Þó þetta séu miklir pening-
ar, þá ætla ég ekki að selja Essien
fyrir þessa upphæð. Ef eitthvað
félag ætlar sér að kaupa Essien
þá þarf það að borga mun meira
fyrir hann. Einhverjir myndu
kannski segja að ég væri að fara
fram á alltof mikla peninga, en ég
held að Essien sé einn af bestu
leimönnum heims. Hann á að vera
verðmetinn í samhengi við það.“
Essien var í vor valinn knatt-
spyrnumaður ársins í Frakklandi,
en hann var besti leikmaður Lyon
sem vann efstu deildina fjórða
árið í röð. Hann vakti sérstaklega
athygli fyrir frábæran leik í
meistaradeild Evrópu en Lyon
komst nokkuð óvænt í átta liða
úrslit.
Gerard Houllier, nýr knatt-
spyrnustjóri Lyon, vill ólmur
halda Essien hjá félaginu en ólík-
legt þykir að hann verði áfram
hjá þar.
Juventus og Manchester hafa
lengi verið orðuð vill leikmanninn
og fylgjast grannt með gangi
mála. -mh
MICHAEL ESSIEN.
Miðjumaðurinn ungi hef-
ur verið lykilmaður hjá
Lyon í Frakklandi og nú
vilja Chelsea-menn ólmir
fá hann til liðs við sig.