Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 54
Þeir eru ekki öfundsverðir tón-
listarmennirnir sem eru fyrstir
á dagskrá á Hróarskeldu frekar
en í Júróvisjón. Flestir gestirnir
skemmta sér fram undir morgun
og eru því ekki vel upplagðir
svona rétt eftir hádegi. Mugison
var spilaði klukkan eitt.
Pavilion-tjaldið var samt sem
áður troðfullt þegar tónleikarnir
hófust. Mugison var greinilega í
stuði þegar hann steig á svið og
fékk áhorfendur fljótt með sér
og því mikið fjör í tjaldinu. Ís-
lendingarnir á svæðinu tóku
undir í flestum lögum þar sem
það átti við. Mugison kenndi
fólkinu viðlagið við Poke a pal og
uppskar alþjóðlegan fjöldasöng
fyrir vikið. Stemningin var mikil
þegar Mugison fór af sviðinu
fyrir uppklapp. Eftir stutta pásu
kom hann askvaðandi fram á
sviðið að nýju með Pétri gítar-
leikara og tók lagið Murr-Murr
við mikinn fögnuð. Þeir félagar
kvöddu og þökkuðu fyrir sig.
Fólkið vildi þó meira og varð að
ósk sinni þegar Mugison kom
aftur fram, sagðist taka eitt lag í
viðbót en kunni ekki textann
jafn vel og gestir tjaldsins. Hann
spilaði svo Wild thing og þurfti
litlar áhyggjur að hafa af text-
anum enda sáu tónleikagestir
um sönginn án teljandi vand-
ræða. Stoltir Íslendingar í bland
við furðu lostna útlendinga stóðu
eftir að tónleikum loknum. Mug-
ison ætti kannski að halda fleiri
hádegistónleika.
-ks
30 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR
SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós er á
leið í tónleikaferð um heiminn sem hefst í
Bretlandi 8. júlí.
Handpressa›ir
bolir til sölu
Rúmlega hundrað stuttermabolir
hafa verið hannaðir fyrir tón-
leikaferð Sigur Rósar um
heiminn sem hefst 8. júlí í Bret-
landi. Hönnuðir bolanna, sem eru
handpressaðir, eru Lukka Sig-
urðardóttir, kærasta Orra Dýra-
sonar, trommara Sigur Rósar, og
Alex Somers, kærasti söngvar-
ans Jóns Þórs Birgissonar.
Bolirnir verða seldir ásamt
meiri varningi á tónleikaferðinni
sem verður farin í tilefni af nýj-
ustu plötu Sigur Rósar, sem er
væntanleg í haust. Svipuð
áletrun og er á bolunum verður á
umslagi plötunnar.
SCF
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
*****
svalasta
mynd
arsins
ÞÞ FBL
MUGISON Hann sló í gegn hjá Íslendingum og útlendingum þegar hann lék á Hróarskeldu.
STOLTIR ÍSLENDINGAR: HRÓARSKELDA KOMIN Á FULLT
Meik hjá Mugison
HIN HLIÐIN
HIN HLIÐIN Á ÁRNA SNÆVARRI UPPLÝSINGAFULLTRÚA HJÁ SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM
Hvernig ertu núna? Sveittur, stessaður og í mjög góðu skapi.
Augnlitur: Blár, minnir mig.
Starf: Ég er upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum.
Stjörnumerki: Fiskur.
Hjúskaparstaða: Einhleypur.
Hvaðan ertu? Reykjavík.
Helsta afrek: Börnin mín.
Helstu veikleikar: Hvað má þetta vera langt?
Helstu kostir: Ég er einstaklega skapgóður.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fréttir, en ég horfi eiginlega ekkert á sjónvarp.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Fréttir og hér gildir það sama og um sjónvarpið.
Uppáhaldsmatur: Ostrur.
Uppáhaldsveitingastaður: Allir helstu fiskréttastaðirnir á St.Catharine
torginu í Brussel.
Uppáhaldsborg: París og Istanbúl.
Mestu vonbrigði lífsins: Öll þessi ár sem KR hefur ekki orðið Íslandsmeistari.
Áhugamál: Menn og menning.
Viltu vinna milljón? Endilega.
Jeppi eða sportbíll: Sportbíll.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða svo
auðugur að ég gæti ráðið bryta.
Hver er fyndnastur? Woody Allen.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Hér er ég kominn út á hálan ís og ætla
ekki að segja múkk. Ég gæti móðgað svo marga.
Trúir þú á drauga? Nei.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Múrmeldýr.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Bavíani, því þeir eru með svo
ljótan rass.
Áttu gæludýr? Nei. Læðan Bóris lést sviplega í umferðar-
slysi á síðasta ári og ég er enn að syrgja.
Besta kvikmynd í heimi? Apocalypse Now.
Besta bók í heimi? Ég ætla að gamni að nefna Miðnætur-
börnin eftir Salman Rushdie.
Hvað hefurðu verið að bralla undanfarið? Átta Líf tónleikarnir í
Hljómskálagarðinum á föstudag standa upp úr á síðustu dögum.
04.03.1962
Vildi helst vera múrmeld‡r
. . . fær sjónvarpsstöðin Sirkus
fyrir að sýna frá Live 8 tónleik-
unum sem eru með þeim stærstu
sem um getur í sögunni. Málefnið
er líka gott.
HRÓSIÐ
Ef einhver hefði verið svo séður að taka með sér
nokkra lítra af sólarvörn hingað á Hróarskeldu þá
væri sá hinn sami ríkur maður í dag. Sólin hefur
skinið beint á bert fólkið í allan dag og margir sól-
brenndir. Enginn sjáanlegur með sólarvörn enda
þykir það kannski ekki fínt á svona hátíð. Gestir há-
tíðarinnar eru misjafnlega á sig komnir. Sumir soldið
þreyttir eftir partí næturinnar en svo eru aðrir sem
byrja í morgunpartíi og þurfa því að leggja sig þegar
líður á daginn. Fólk liggur því víða um tún og sefur
úr sér áhrifin. En
fyrir þá sem
standa í lapp-
irnar er nóg í
boði. Stanslausir
tónleikar á sex
sviðum frá há-
degi og fram á
nótt og eru þeir
langflestir mjög
vel sóttir. Þeir
sem vilja taka
sér pásu frá tón-
leikunum geta
skellt sér í bíó,
farið á diskótek, tekið þátt í kappræðum eða haldið
sína eigin tónleika á karókísviðinu. Hér er því nóg
við að vera fyrir þessa 100 þúsund gesti hátíðarinnar.
KAROKÍ Mikil stemning skapast á karókísviðinu þar sem gestir
hátíðarinnar geta látið ljós sitt skína.
KRISTJÁN SIGURJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HRÓARSKELDU
Engin sólarvörn fyrir rokkara
ÞREYTA Fólk er í misjöfnu ástandi á há-
tíðinni.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI