Fréttablaðið - 03.07.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 03.07.2005, Síða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 www.icelandexpress.is Barnaver›: 5.995 kr.* *A›ra lei› me› sköttum.Börn flurfa a› vera í fylgdme› fullor›num. Eindhoven í Hollandi 1.751 kr. Fljúg›u me› Iceland Express til London, Köben e›a Frankfurt og taktu fla›an striki› hvert sem er út í heim. Notfær›u flér til dæmis lággjaldafélagi› Ryanair sem fl‡gur til yfir 70 áfangasta›a frá Stansted flugvellinum í London e›a Sterling sem fl‡gur um alla Evrópu frá Kaupmannahöfn. Sko›a›u ver›dæmin hér a› ofan og kynntu flér máli› á www.ryanair.com e›a www.sterling.dk. Ver›dæmi fengin af vefsí›u Ryanair og mi›ast vi› flug a›ra lei› me› sköttum og gengi sterlingspunds 1. júlí VER‹ SEM ÓHÆTT ER A‹ FLAGGA! Landkönnu›ir og lífskúnstnerar klippi› hér Vín í Austurríki 2.101 kr. Róm á Ítalíu 1.868 kr. Gdansk í Póllandi 2.101 kr. Ríga í Lettlandi 2.802 kr. Tampere í Finnlandi 2.101 kr. Stokkhólmur í Svífljó› 1.751 kr. Barcelona á Spáni 1.985 kr. Haugasund í Noregi 1.751 kr. Dublin á Írlandi 1.751 kr. Montpellier í Frakklandi 1.985 kr. Portó í Portúgal 2.335 kr. Karlsruhe í fi‡skalandi 1.751 kr. Fer›afljónusta Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 Ver› frá: 7.995 kr.* Hring eftir hring BAKÞANKAR STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Þeir sem muna þegar brýrnar áSkeiðarársandi voru opnaðar sumarið 1974 muna líka spennuna sem var í því fólgin að fara hring- inn. Þetta sumar og þau næstu á eftir fór þorri fjölskyldna í landinu hringinn á bílum sínum. Börnunum var staflað aftan í fólksvagninn og svo var ekið af stað. Þetta var fyrir tíma öryggisbelta og barnastóla. Úr varð nokkurs konar fjöldahreyfing þar sem þeir fengu inngöngu sem höfðu farið Hringinn. ENN fara fjölskyldurnar hringinn, þótt hann sé í sjálfu sér kannski ekki lengur markmið ferðarinnar. Og það að hafa farið hringinn ekki lengur aðgöngumiði í fjöldahreyf- ingu. Hins vegar hefur orðið til minni en talsvert áberandi hreyfing fólks sem fer hringinn. Það eru þeir sem fara hann til að afla fjár eða vekja athygli á málefni, og líka til að skora á sjálfa sig eða reyna til hins ítrasta. Meðlimir þessarar hreyf- ingar hrúga ekki krökkunum í aftur- sætið og aka af stað, þeir fara fyrir eigin afli. LÍKLEGA er hinn vaski göngumað- ur Reynir Pétur í Sólheimum í Grímsnesi frumkvöðull í þessari hreyfingu. Og árin liðu býsna mörg frá göngu Reynis Péturs til ágóða fyrir íþróttaleikhús í Sólheimum þangað til hreyfingunni fór verulega að vaxa fiskur um hrygg. En nú virðist heilmikil orka vera að leysast úr læðingi. Hreyfiafl samkenndar og mannúðar fær fólk til að ferðast réttsælis og rangsælis, þvers og kruss ýmist eitt saman eða í hópum. Í samfélagi þar sem manni þykir stundum nóg um hversu hver er sjálfum sér næstur, leiðir haltur blindan, karl hjólar, einn rær á ára- báti og annar ætlar að ganga með- fram allri strandlengjunni. Og þjóðin fylgist stolt og bljúg með, leggur málefnunum lið og leiðir hug- ann að systrum og bræðrum. Á SAMA tíma taka tónlistarmenn saman höndum, halda tónleika um allan heim og sjónvarpa þeim enn víðar. Markmiðið er að hvetja fólk til að sýna í verki að það hafnar því að tugir þúsunda systkina okkar deyja úr hungri dag hvern suður í Afríku. Þessu hungri verður að út- rýma. Skilaboðin þurfa að vera skýr til þeirra sem ráða ríkustu ríkjum heims. Jörðin á að geta fætt hvern einasta mann sem hana byggir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.