Fréttablaðið - 05.07.2005, Síða 10

Fréttablaðið - 05.07.2005, Síða 10
HJÓLREIÐAMENN Í HNAPP Flestir bestu hjólreiðamenn heims taka nú þátt í Frakk- landshjólreiðunum. Þröng var á þingi á veginum milli La Chataigneraie og Tours í vesturhluta Frakklands á þriðja hluta keppninnar. 10 5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR Átök lögreglu og mótmælenda í Edinborg: Hitnar í kolunum fyrir G8-fundinn EDINBORG, AP Um 450 andstæðing- ar hnattvæðingar upphófu mót- mæli og óeirðir í Edinborg í gær. Kalla þurfti til óeirðalögreglu og kom til einhverra átaka en flestir mótmælenda beittu þó friðsam- legum aðferðum og sumir kysstu varnarskildi lögreglumanna og skildu eftir far eftir varalit. G8-fundurinn, fundur leiðtoga átta helstu iðnríkja heims hefst á morgun og er ljóst að spennan er að magnast fyrir fundinn. Margir mótmælendanna vildu undir- strika óánægju sína með alþjóðleg vopnaviðskipti og kjarnorku- vopnaeign stórveldanna og kröfð- ust breytinga. Þeir halda því fram að stórveldin valdi fátækt í heim- inum með því að einblína á vopna- framleiðslu og að eina leiðin til að binda enda á fátækt sé að tryggja frið. Mótmælendurnir voru flestir svartklæddir og með grímur fyrir andlitinu, sumir voru þó uppá- klæddir sem trúðar að sögn til að benda á hvílíkur skrípaleikur G8- fundurinn væri. Um tíu þúsund lögreglumenn verða í vinnu við að tryggja ör- yggi leiðtoganna meðan á fundin- um stendur. Umferð um Hvalfjarðargöng um helgina: Metfjöldi bíla á flessu ári „Síðastliðinn föstudag, þann fyrsta júlí, fór metfjöldi bifreiða í gegnum Hvalfjarðargöngin á þessu ári, 10.552 bifreiðar. Metið frá föstudeginum 11. júlí 2003 stendur þó óhaggað ennþá, en þá fóru 11.391 bílar í gegnum göng- in,“ segir Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar hjá Vegagerðinni. „Um síðustu helgi, frá föstu- degi til sunnudags, dagana 1.-3. júlí fóru samtals 27.179 bifreiðar í gegnum Hvalfjarðargöngin, 7.172 á laugardag og 9.455 á sunnudag. Daginn sem göngin voru opnuð var sett met sem enn stendur, en geta verður þess að þá voru að- stæðurnar óeðlilegar. En búast má við því að metið frá árinu 2003 eigi eftir að falla um næstu versl- unarmannahelgi ef að líkum læt- ur.“ Hæstu tölurnar mælast yfir- leitt á föstudögum, þannig að bú- ast má við metfjölda bifreiða um Hvalfjarðargöngin föstudaginn 29. júlí. ■ GASSPRENGING Maður og kona fengu annars og þriðja stigs bruna eftir gassprengingu á tjald- stæðinu í Bjarkarlundi í fyrra- kvöld. Maðurinn var inni í hjól- hýsi sínu ásamt konunni að skipta um gaskút þegar upp kom gasleki. Sprengingin varð þegar gasið komst í snertingu við loga sem var á gashellu inni í hjólhýsinu. Fólkið, eldri hjón, var flutt með þyrlu á bráðamóttöku í Reykjavík og er nú á lýtalækningadeild á Landspítalanum í Fossvogi. Jónas Sigurðsson, aðalvarð- stjóri lögreglunnar á Patreks- firði, segir lögreglumenn hafa verið nálægt slysstað þegar til- kynningin barst. Þegar þeir komu að var hjúkrunarfræðingur sem býr í sveitinni þegar kominn á staðinn og byrjaður að aðstoða starfsmenn hótelsins í Bjarkar- lundi við aðhlynningu á fólkinu. Starfsfólkið hlúði að fólkinu fyrsta hálftímann eftir spreng- inguna. Jónas segir óhætt að full- yrða að starfsmennirnir hafi stað- ið sig með eindæmum vel við erf- iðar aðstæður. „Tveir þjónar voru inni og fólk- ið sem ferðaðist með parinu var að fá sér kakó þegar þau komu inn öll brunnin og í rifnum buxum með hendurnar upp í loftið,“ segir Sveinn Ingi Árnason, starfsmaður á Hótel Bjarkarlundi. „Það var farið með þau inn í stofu sem er hérna og þau lögð á dýnu.“ Hann segir að starfsfólk hafi strax hringt í Neyðarlínuna og sinnt að- hlynningu með leiðbeiningum sem fengust gegnum síma. „Það voru allir í uppnámi, bæði starfs- fólkið og svo líka fólkið sem var að ferðast með þeim.“ Starfsemin á Hótel Bjarkarlundi hélt áfram sinn vanagang í gær en Sveinn neitaði ekki að sumir starfsmenn væru enn í dálitlu uppnámi. Lögreglan á Patreksfirði segir að um slys hafi verið að ræða og rannsókn málsins sé lokið. annat@frettabladid.is Parkinsonssamtök Íslands: Fá tveggja ára styrk STYRKUR Parkinsonssamtök Ís- lands, PSÍ, hafa gert tveggja ára samstarfssamning við Lyf og heilsu um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili samtakanna. Fjárstyrk Lyf og heilsu verð- ur varið í fræðslumál en hann mun nýtast meðal annars í nor- ræna ráðstefnu um sjúkdóminn sem Parkinsonssamtökin standa að á næsta ári. Fyrirtæk- ið mun einnig fræða starfsfólk sitt um málefni Parkinsonssjúk- linga og verður afsláttur veittur félögum í Parkinsonssamtökum Íslands í verslununum Lyf og heilsu. ■ MÓTMÆLANDI OG LÖGREGLUMAÐUR TAKAST Á Andstæðingar hnattvæðingar efndu til óeirða í Edinborg í gær. M YN D /A P Á ellefta þúsund bifreiða fór um Hvalfjarðargöngin sl. föstudag. E N N E M M / S ÍA / N M 16 0 15 HAGKVÆMUR KOSTUR FYRIR GOLFARA GOLFKORT KB BANKA Golfkort KB banka er fullgilt kreditkort sem veitir kylfingum fjölmörg frí›indi sem tengjast golfi og getur flannig spara› fleim umtalsver›ar fjárhæ›ir. Allir geta sótt um Golfkort, hvort sem fleir eru í vi›skiptum vi› KB banka e›a ekki, á golfkort.is, í síma 444 7000 e›a næsta útibúi KB banka. Hjón brenndust illa í gassprengingu Eldri hjón brenndust í gassprengingu í hjólh‡si sínu í Bjarkarlundi. Starfs- menn hótelsins á sta›num komu fólkinu til a›sto›ar og fengu fljótlega a›sto› hjúkrunarfræ›ings sem b‡r í nágrenninu. HJÓLAÐ Á FLÓÐASVÆÐI Þessir fötluðu indversku námsmenn forðuðu sér á hjólum sínum eftir að heimili þeirra í Baroda varð flóði að bráð. Flóð hafa valdið miklum skemmdum í 7.200 þorpum og hafa 176 þúsund manns þurft að flýja heimili sín af þeim sökum í Gujarat-héraði einu, þar hefur í það minnsta 131 einstaklingur látið lífið. MEÐFERÐ GASKÚTA Öll meðferð gaskúta er varhugaverð og fólk verður að fara varlega að þegar skipta á um kúta. Hræðilegar afleiðingar geta hlotist af því ef gas byrjar að leka eins og slysið í Bjarkarlundi. Einfalt er að draga úr slysahættu með því að fylgja nokkrum grundvallarreglum. 1. Mikilvægasta reglan er að fylgja leið- beiningum gaskúta. Kútarnir eru með mismunandi stútum, sumir eru einnota á meðan aðra má nota aftur, með þeim öllum fylgja mismunandi leiðbeiningar. 2. Aldrei skipta um gaskút nálægt opn- um eldi. Þótt farið sé að öllu með gát og engin merki um gasleka er aldrei hægt að ganga út frá því að slys geti ekki gerst og því er mikilvægt að tryggja að ekki kvikni í gasinu. 3. Frágangur á gaskútum þarf að vera í lagi. Ekki nota tæki sem komin eru til ára sinna og til dæmis farin að ryðga. 4. Þegar skipt er um kút er einfalt að kanna hvort gas lekur frá stútnum. Til dæmis má láta sápuvatn leka á stútinn og sést þá strax hvort gas kemst þar út eða ekki. 5. Ef mikið er verið að nota gas er mjög æskilegt að vera með gasskynjara. Skynjarinn er þá staðsettur niður við gólf og gefur strax til kynna ef gashlut- fall í lofti fer yfir eðlileg mörk.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.