Fréttablaðið - 23.07.2005, Page 2
2 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Smáhveli strandaði í tvígang á Siglufirði en losnaði af sjálfsdáðum:
Virtist vanka› og synti í hringi
SMÁHVELI Um tveggja metra lang-
ur blettahnýðir, smáhveli af höfr-
ungaætt, strandaði í tvígang á
Siglufirði síðastliðinn miðviku-
dag. Í bæði skiptin losnaði hann af
sjálfsdáðum en virtist vankaður
eftir síðara strandið; synti í hringi
og hvarf loks sjónum Siglfirðinga.
Símon Helgason sá fyrstur
manna höfrunginn en þá var hann
í fjöruborðinu við steypustöðina
og vélaleiguna Bás. „Ég náði mér
í langa spýtu og ætlaði að hjálpa
honum að komast úr fjörunni en
áður en til þess kom náði hann að
synda út aftur. Höfrungurinn var
svo nærri landi að ég hefði getað
klappað honum ef ég hefði verið á
stígvélum,“ segir Símon.
Eftir að höfrungurinn losnaði
úr fjöruborðinu synti hann austur
yfir fjörðinn og strandaði á ný á
grynningum. Þar bægslaðist hann
um hríð svo sjórinn í kring varð
moldarlitaður á stóru svæði. Þeg-
ar hann losnaði virtist hann ekki
ná áttum strax og synti í hringi
áður en hann hvarf. - kk
Orkuveita Reykjavíkur kaupir Orkuveitu Stykkishólms:
Ver› á heitu vatni lækkar um 35 prósent
ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur
hefur samið við Stykkishólms-
bæ um kaup á vatns- og hita-
veitu bæjarins og hefur samn-
ingurinn í för með sér 35 pró-
senta verðlækkun á heitu vatni í
bænum. Samningurinn var und-
irritaður í gær en Orkuveita
Stykkishólms er metin á 615
milljónir króna.
„Við fáum lægra orkuverð,
verð á vatni til húshitunar lækk-
ar úr 101,5 krónum á rúmmetr-
ann í 65 krónur,“ segir Óli Jón
Gunnarsson, bæjarstjóri í
Stykkishólmi. „Síðan stóðum við
frammi fyrir miklum fram-
kvæmdum til að auka orkuöflun
og við töldum hagstæðara að
vera í samvinnu við aðila sem
eru vanir því.“.
Að meðtöldum skuldum
Orkuveitu Stykkishólms og
lækkun á gjaldskrá fær sveitar-
félagið 50 milljóna króna
greiðslu við söluna. Orkuveitan
tekur við rekstri hitaveitunnar
1. september 2005 en vatnsveitu
bæjarins 1. janúar 2006. - rsg
Bur›arás hagna›ist um
tæpan milljar› á viku
VIÐSKIPTI Hagnaður Burðaráss
fyrstu sex mánuði ársins nam
24,5 milljörðum króna og þar af
var hagnaður félagsins á öðrum
ársfjórðungi tæpir 20 milljarðar
króna. Aldrei
áður hefur fyr-
irtæki skilað
svo miklum
hagnaði á ein-
um ársfjórð-
ungi.
Helmingur
hagnaðarins er
t i l k o m i n n
vegna sölu
Eimskips en
hagnaður af
annari fjárfest-
ingastarfsemi nemur rúmum 12
milljörðum króna. Innlendur
hlutabréfamarkaður hefur
hækkað á árinu en einnig hafa
erlendar fjárfestingar skilað fé-
laginu góðum hagnaði.
Þrátt fyrir að hagnaður
Burðaráss hafi verið yfir vænt-
ingum lækkaði gengi félagins
um rúmt eitt prósent í gær. Talið
er að lækkunin stafi af því að
margir séu að innleysa hagnað
sinn af bréfum í félaginu.
Heildareignir Burðaráss eru
117 milljarðar króna. Verðmæt-
ustu eignir félagsins eru í fjár-
málafyrirtækjum og er verð-
mætasta eign félagsins í Íslands-
banka fyrir 15 milljarða. Þar á
eftir kemur hlutur í Skandia fyr-
ir um 13 milljarða og hlutur í
Carnegie upp á 10,5 milljarða.
Burðarás á skráðar eignir
fyrir 85 milljarða króna og
óskráðar eignir fyrir rúma 19
milljarða króna. Stærsta
óskráða eignin er hlutur í Avion
Group sem félagið fékk að hluta
til í skiptum fyrir Eimskip.
Á tímabilinu fjárfesti
Burðarás í Novator, sem er fjár-
festingarfélag í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar, fyrir um
fjóra milljarða króna. Novator
leggur höfuðáherslu á fjárfest-
ingar í fjarskiptafyrirtækjum.
Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Burðaráss, sagði Novator góðan
kost fyrir Burðarás og að til
greina kæmi að fjárfesta með
félaginu í einstökum verkefn-
um.
Eigið fé Burðaráss er um 65
milljarðar króna og eiginfjár-
hlutfallið 56 prósent. Svo hátt
eiginfjárhlutfall leiðir til þess
að félagið hefur mikið bolmagn
til að ráðast í fjárfestingar á
næstunni. Eins og áður hefur
komið fram hyggst Burðarás
taka þátt í útboði á Símanum nú
í næstu viku.
dogg@frettabladid.is
Próflaus á ofsahraða:
Haf›i aldrei
teki› bílpróf
LÖGREGLUMÁL Tvítugur ökurétt-
indalaus piltur, ók bifreið á 176
kílómetra hraða á Reykjanes-
braut við Smáralind í nótt. Lög-
reglan í Reykjavík var látin vita
og mældi hraða bifreiðarinnar
skömmu síðar á Sæbraut.
Eftirför var þó ekki hafin
þegar ökumaðurinn missti
stjórn á bifreiðinni og ók utan í
kyrrstæðan bíl við Héðinsgötu.
Pilturinn meiddist ekki við
áreksturinn en í ljós kom að
hann var ofurölvi og ekki við-
ræðuhæfur. Má hann búast við
hárri sekt fyrir athæfið. - grs
Smyglaði fólki:
Fjögurra mán-
a›a fangelsi
DÓMSMÁL Bandarískur karlmaður
var í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær dæmdur í fjögurra mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir að
flytja fólk ólöglega til Íslands.
Maðurinn var handtekinn í
Leifsstöð í byrjun mánaðarins
ásamt kínversku pari sem hafði
verið búsett í Þýskalandi síðustu
ár, en dómurinn tekur einnig til
Kínverja sem hann flutti gegnum
Ísland í maí. Maðurinn var sam-
vinnufús við lögreglu og var það
metið til refsilækkunar.
Kínverska parið fékk 45 daga
fangelsi fyrir að framvísa röng-
um vegabréfum. - grs
SPURNING DAGSINS
Björn, flola bæjarbúar illa vi›
á flurru landi?
Það leikur allt í höndum þeirra og líka
fótum.
Óvenju margir íbúar Djúpavogs hafa sótt köfun-
arnámskeið að undanförnu. Björn Hafþór Guð-
mundsson er sveitarstjóri á Djúpavogi.
FASTUR Í FJÖRUBORÐINU
Blettahnýðir kemur að Íslandsströndum á
vorin en syndir suður á bóginn þegar
hausta tekur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
K
Alda innbrota:
Sextán ára
handtekinn
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík handtók í gær sextán ára pilt
sem áður hefur komið við sögu
lögreglu. Hann er fjórði maðurinn
sem er handtekinn vegna rann-
sóknar lögreglu á innbrotum í
Reykjavík undanfarna daga.
Pilturinn var strax eftir hand-
tökuna úrskurðaður í gæsluvarð-
hald og verður í síbrotagæslu
fram til 2. september. Unglingar
virðast mikið hafa komið við sögu
í innbrotunum og hefur lögregla
átt í samstarfi við barnaverndar-
yfirvöld við rannsókn þeirra. -grs
Hagna›ur Bur›aráss var 24,5 milljar›ar á fyrstu sex mánu›um ársins en
félagi› hagna›ist um tæpa 20 milljar›a á ö›rum ársfjór›ungi. Aldrei fyrr
hefur félag í Kauphöllinni hagnast um jafn miki› á flremur mánu›um.
FRIÐRIK
JÓHANNSSON
forstjóri Burðaráss.
AFKOMA BURÐARÁSS Á
ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI
– í milljónum króna
Hagnaður 19.881
Spá Íslandsbanka 18.433
Spá KB banka 18.778
Spá Landsbankans 18.555
STYKKISHÓLMUR Verðlækkunin á heita vatninu er metin um 200 milljóna króna virði fyrir
íbúa Stykkishólms.
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON STJÓRNARFORMAÐUR BURÐARÁSS Burðarás á
skráðar eignir fyrir 85 milljarða króna og óskráðar eignir fyrir 19 milljarða.
ÓVÆNT TIL BEIRÚT Rice heilsar nýjum for-
sætisráðherra Líbanons, Fuad Saniora, í
Beirút í gær.
Rice í Líbanon:
Sty›ur n‡ja
ríkisstjórn
LÍBANON, AP Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Condoleeza Rice,
fór í óvænta heimsókn til Líbanons
í gær. Hún lýsti yfir stuðningi við
nýja ríkistjórn landsins sem er sú
fyrsta eftir að Sýrlendingar drógu
setulið sitt frá landinu í vor.
„Þetta er gott tækifæri til að
óska líbönsku þjóðinni til ham-
ingju með ótrúlega lýðræðisþrá,“
sagði Rice. Í nýju stjórninni á sæti
fulltrúi úr Hezbollah-samtökunum
sem Bandaríkjastjórn flokkar sem
hryðuverkasamtök. Rice hvatti til
afvopnunar Hezbollah. Hún gagn-
rýndi einnig Sýrlendinga fyrir að
loka landamærunum að Líbanon,
en undanfarnar vikur hefur eftirlit
við landamærin verið hert mjög. ■
BLAÐAMANNAFÉLAGIÐ
NÝR FORMAÐUR Arna Schram,
blaðamaður á Morgunblaðinu, tók
við formennsku í Blaðamannafé-
lagi Íslands á stjórnarfundi í gær.
Róbert Marshall sagði af sér for-
mennsku í félaginu vegna nýs
starfs sem hann hefur tekið við
hjá 365 miðlum. Arna Schram
hefur verið varaformaður félags-
ins síðastliðin rúm tvö ár.