Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 16
23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 162. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005
Heiðar
Austmann
Úttekt áflottustustjörnumsumarsins
Bls. 26-27
Bls. 39
Bls. 32-33
ÞÓRA ÓLAFSDÓTTIRDATT AF HESTBAKIOG FÉLL Í DÁ
Missti
trúna
á ástinni eftir svik
Lærði að
lifa með
sorginni
Kraftaverkað vera
á lífi
Bls. 54
FÖÐURMISSIRINN,ÁSTIN OG „BÖRNIN”
Fyrir tveimur árum var Svavar Örn, sjón-varpsstjarna og hárgreiðslumaður, grár ogmyglaður eins og hann orðar það. Nú erhann hamingjusamur, kominn í sambúð ogbúinn að opna eigin hárgreiðslustofu.Hann rifjar upp æsku sína og föðurmissinnog deilir með okkur draumum sínum íeinkaviðtali við Helgarblað DV. Bls. 30-31
Arnbjörg Hlífer dóttir Vals Arnórssonar bankastjóra
Kynþokkafyllstu Íslendingarnir
Bls. 38
Lítill leynigestur
FÉKK VERK Í MAGA OG FÆDDI BARN
Bls. 6
NYLON hj
álpar
veikum bö
rnum
SVAVAR ÖRN
Gæti hugsað
sér að
ættleiða barn
Helgarbla›
Hefurflúsé›
DV í dag
ARNBJÖRG HLÍF
LÆRDI AD LIFA
MED SORGINNI
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 162. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005
Heiðar
Austmann
Ú ek áflottustustjörnumsumarsins
tt
Bls. 26-27
Bls. 39
Bls. 32-33
ÞÓRA ÓLAFSDÓTTIRDATT AF HESTBAKIOG FÉLL Í DÁ
Missti trúna á ástinni eftir svik
Lærði að
lifa með
sorginni
Kraftaverkað vera
á lífi
Bls. 54
FÖÐURMISSIRINN, ÁSTIN OG „BÖRNIN”
Fyrir tveimur árum var Svavar Örn, sjón-varpsstjarna og hárgreiðslumaður, grár ogmyglaður eins og hann orðar það. Nú erhann hamingjusamur, kominn í sambúð ogbúinn að opna eigin hárgreiðslustofu.Hann rifjar upp æsku sína og föðurmissinnog deilir með okkur draumum sínum íeinkaviðtali við Helgarblað DV. Bls. 30-31
Arnbjörg Hlífer d ttir Vals Arnórssonar bankastjóra
Kynþokkafyllstu Íslendingarnir
Bls. 38
Lítill leynigestur
FÉKK VERK Í MAGA OG FÆDDI BARN
Bls. 6
NYLON hjá
lpar
veikum bö
rnum
ti ugsað
sér að
ttl i
Þegar Páll Magnússon gekk út úr
höfuðstöðvum 365 miðla á mið-
vikudaginn vegna ágreinings við
forstjóra og stjórn fyrirtækisins
veltu margir því fyrir sér hve
langt yrði að bíða þess að hann
sneri aftur. Því það er með hann
eins og Gunnar á Hlíðarenda,
sem fósturjörðin togaði svo
sterkt í forðum daga, að
hann virðist ekki lengi
geta verið án Stöðvar
tvö. Páll er búinn að gera
margar tilraunir til að
hætta en hefur alltaf
komið aftur. Síðast hætti
hann fyrir tæpum fimm
árum til að verða blaða-
fulltrúi Kára Stefánsson-
ar í deCode (titillinn var
að vísu fínni: „fram-
kvæmdastjóri sam-
skiptasviðs“ eða eitt-
hvað í þá veru). Eftir
þriggja ára vist hjá
Kára var hann aftur
kominn á skjáinn á
sínum gamla
vinnustað.
Verði Páll ráð-
inn útvarpsstjóri,
eins og ýmsir trúa,
er þó ólíklegt að hann
sjáist aftur á Stöð 2. Þá
er hann æviráðinn í góðu
djobbi og getur farið að
spá í lífeyrisréttindi, sumar-
leyfisferðir, golf og laxveiðit-
úrana í Svartá með Kára og
uppáhaldsstjórnmálamanni
sínum, Davíð Oddssyni. Páll
sagði nefnilega í viðtali við
Fréttablaðið í fyrra að eng-
an stjórnmálamann hefði
hann í meiri hávegum en
Davíð; ekki vegna þess að
hann væri alltaf sammála hon-
um, heldur vegna þess að hann
væri svo skemmtilegur, skarpur
og snjall. Þessi ummæli þóttu
sýna vel einn kost sem Páli er
talinn til tekna: fyrirhyggju.
Páll Magnússon er rúmlega
fimmtugur. Hann á sama afmæl-
isdag og Jón forseti og stjörnu-
spekingar segja að það merki að
hann sé með forystugen í sér.
Þau á hann raunar ekki langt að
sækja því faðir hans, Magnús
Magnússon, var í eina tíð alþing-
ismaður og ráðherra fyrir Al-
þýðuflokkinn. Hann er fæddur í
Vestmannaeyjum, þar sem hann
þótti liðtækur knattspyrnumað-
ur á yngri árum. Páll lauk stúd-
entsprófi frá Kennaraskólanum
1975 og prófi í stjórnmálasögu
og hagsögu frá Háskólanum í
Lundi í Svíþjóð fjórum árum
seinna. Fyrst eftir heimkomuna
kenndi hann, en réði sig sem
blaðamann á Vísi árið 1980.
Hófst þá fjölmiðlaferill hans
sem staðið hefur með hléum síð-
an. Hann var fréttastjóri á Tím-
anum í eitt ár, síðan aðstoðarrit-
stjóri við Iceland Review, þá
fréttamaður á Sjónvarpinu
1982 til 1986, þar af aðstoðar-
fréttastjóri við hlið Ingva
Hrafns Jónssonar síðasta
árið. Hann var ráðinn
fréttastjóri Stöðvar 2 árið
1986, varð einn af fram-
kvæmdastjórunum 1990 til
1991 og síðan forstjóri frá
1991 til 1994. Frá 1995 til
1996 var hann sjónvarps-
stjóri Sýnar. Kom svo aft-
ur til að verða frétta-
stjóri Stöðvar 2 og
Bylgjunnar þar til
hann réðst til Ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar haustið 2000.
Samstarfsmenn
Páls í gegnum tíðina
hafa yfirleitt látið
vel af honum, sagt
hann þægilegan en
kröfuharðan yfirmann,
glöggan og vel tengdan.
Almenningur þekkir
hann fyrst og fremst sem
fréttaþul og á því sviði þyk-
ir hann hafa staðið sig vel;
verið traustvekjandi og fum-
laus. Sem útvarpsstjóri ríkis-
ins læsi hann tæplega fréttir
en líklega sæju menn hann þó
oftar á skjánum en á gamlárs-
kvöldum. Þó að Páll hafi svo að
segja alla tíð lifað og hrærst í
heimi fjölmiðlanna er hann að
eigin sögn gagnrýninn á þá. Í
fyrrnefndu Fréttablaðsviðtali
sagði hann að fólk sem hefði
árum saman starfað við fjöl-
miðla hefði tilhneigingu til að
líta á þá sem eins konar nafla
þjóðlífsins. Hann sagðist hafa
uppgötvað á árunum hjá deCode
að svo væri ekki. Þeir væru ekki
nema að litlu leyti hreyfiafl sam-
félagsins, heldur fyrst og fremst
speglar þess. Og speglar væru
auðvitað mikilvægir. ■
MAÐUR VIKUNNAR
Fréttama›ur
me› forystugen
PÁLL MAGNÚSSON
FYRRVERANDI SJÓNVARPSSTJÓRI STÖÐVAR 2
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Upp á síðkastið hefur hugtakið
sanngjörn viðskipti heyrst æ oft-
ar en það er íslensk þýðing á hug-
takinu „fair trade“. Sanngjörn
viðskipti sjá til þess að bændur og
verkafólk fái sanngjarnt verð fyr-
ir þær vörur sem það framleiðir.
Einnig er þess gætt að verðið fyr-
ir uppskeru til dæmis banana, tes
og kaffis fari aldrei niður fyrir
ákveðið lágmark. Þannig er hægt
að koma í veg fyrir að miklar
sveiflur á markaði hafi stórfelld
áhrif á lífsviðurværi framleið-
anda. Vörurnar eru oftast sér-
merktar, til dæmis með stimpli
frá Max Havelaar, Oxfam eða
FairTrade. Þessir stimplar
tryggja að varan sé ekki fram-
leidd með þrælkunarvinnu og að
framleiðslan stuðli að sjálfbærri
þróun.
Reglur í alþjóðaviðskiptum eru
settar af World Trade Organ-
isation (WTO), Alþjóðabankanum
(World Bank), og International
Monetary Fund (IMF). Þessi sam-
tök eiga að sjá til þess að þjóðir
heims keppi á jöfnum markaði, en
það gera þau ekki. Samtökunum
er stjórnað af ríkustu löndum
heims og þau setja reglur til að
verja sína hagsmuni og hagsmuni
alþjóðlegra fyrirtækja. Alþjóða-
viðskipti geta dregið úr fátækt og
stuðlað að efnahagsvexti fátækra
ríkja. Reglurnar eru þeim ríkari í
hag og stuðla að því að fátæku rík-
in verða fátækari og þau ríku rík-
ari. Það verður því að breyta regl-
unum. Ef Afríka, Suðaustur-Asía
og Suður-Ameríka gætu aukið út-
flutning sinn um 1% yrði það til
þess að 128 milljónir manna færu
upp fyrir fátæktarmörk. Útflutn-
ingur Afríku myndi aukast um 70
milljarða sem er fimm sinnum
meira en þeir fá nú í þróunarað-
stoð. Þrátt fyrir að þjóðarfram-
leiðsla fátækra ríkja sé mikil gera
reglur alþjóðaviðskipta það að
verkum að þjóðirnar njóta ekki
góðs af því, bændur fá nánast ekk-
ert greitt fyrir vörur sínar og
verkafólk vinnur myrkranna á
milli fyrir lítið sem ekkert kaup.
Ríkar þjóðir verja um einum
milljarði á ári til styrktar eigin
landbúnaði en hindra að fátækar
þjóðir styrki sína eigin innviði:
landbúnað og smáfyrirtæki. Þeg-
ar þróunarlöndin flytja inn vörur
til Vesturlanda eru settar á þær
gríðarlegir tollar sem kosta þró-
unarlöndin um 100 milljarða
króna á ári sem er tvisvar sinnum
hærra en þau fá í þróunaraðstoð.
Á meðan Vesturlönd loka sínum
mörkuðum fyrir þeirra vörum
þrýstir Alþjóðabankinn og IMF á
þróunarlöndin að opna sína mark-
aði fyrir vestrænum fyrirtækj-
um. Einnig er þrýst á þjóðirnar að
einkavæða opinber fyrirtæki eins
og rafmagns- og vatnsveitur þrátt
fyrir að það sé ekki almenningi í
hag. Þetta er gert í nafni frjálsra
viðskipta og þess að lögmál mark-
aðsins skuli ráða.
Alþjóðaviðskipti í dag stuðla að
fátækt í heiminum þegar hægt er
að útrýma fátækt með sanngjörn-
um viðskiptaháttum. Á Íslandi er
enn lítið úrval til af „sanngjörn-
um“ vörum en með aukinni eftir-
spurn eykst framboðið. Leitið því
eftir merkjum um FAIR TRADE
þegar þið verslið. ■
Efla flarf sanngjörn vi›skipti
ÞURÍÐUR HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR
UMRÆÐAN
ALÞJÓÐAVIÐSKIPTI