Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 18
„Við ætlum að fagna með pompi og prakt,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class-líkamsrækt- arstöðvanna, sem eiga tuttugu ára afmæli um þessar mundir. „Það verður opið hús í Laugum milli 14.00 og 16.00 og margvísleg skemmtun fyrir alla fjöl- skylduna, og auðvitað frítt í laugina.“ Björn opnaði fyrstu World Class-stöðina í Skeifunni í júlí árið 1985. „Þetta byrjaði þegar ég var að æfa í Borgartúni,“ rifjar hann upp. „Mér fannst aðbúnaði stöðv- anna hér á landi ábótavant og ákvað að reyna að gera þetta al- mennilega sjálfur.“ Björn er vél- stjóri að mennt en vann á þessum tíma á dekkjaverkstæði og hafði lítið komið nálægt viðskiptum. „Þetta var vissulega bjartsýni, en engin geggjun. Að minnsta kosti sló karl faðir minn til og fór í þetta með mér,“ segir hann. Þeir feðgar veðjuðu á réttan hest. Tveimur árum eftir að þeir opnuðu fyrstu World Class- stöðina var ljóst að þeir þyrftu að stækka við sig. Ári síðar fluttu þeir í stærra húsnæði í Skeifunni 19. „Þar vorum við í sjö ár þangað til við fluttum í Fellsmúlann árið 1994,“ segir Björn og minnist þess að hann var við það að gefast upp á þessum tíma. „Það var lítil hreyfing á markaðnum í sex ár og þetta var annað hvort spurning um að pakka saman eða taka áhættu og flytja í Fellsmúlann.“ Björn sér ekki eftir því að hafa tekið slaginn. Í dag rekur hann þrjár World Class-stöðvar, þar á meðal í Laugum, sem er lang- stærsta heilsuræktarstöð lands- ins. Þangað flutti Björn í fyrra, en Fellsmúlinn var löngu orðinn of lítill. Laugar eru rúmlega sjö þúsund fermetrar að stærð og að jafnaði mæta þangað um tvö þús- und manns á dag. Því hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan 1985 og má gera því skóna að fyrsta World Class-stöðin myndi rúmast í anddyrinu í Laugum. Þó að Björn hafi verið bjart- sýnn á sínum tíma sá hann þessa velgengni ekki fyrir. „Þetta var bara hobbí og ég var fyrst og fremst að búa til almennilega að- stöðu til að æfa sjálfur. Mig óraði aldrei fyrir að þetta ætti eftir að verða svona stórt. Og Laugar eiga bara eftir að stækka.“ ■ 18 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR ULYSSES S. GRANT (1822-1885) lést þennan dag. Tekið á því í tuttugu ár LÍKAMSRÆKTARSTÖÐIN WORLD CLASS Á AFMÆLI: „Sá tími kemur í hverjum bardaga að báðir aðilar telja sig sigraða. Þeir sem halda árásinni áfram vinna.“ Ulysses S. Grant var átjándi forseti Bandaríkjanna og áður hershöfð- ingi í bandarísku borgarastyrjöldinni. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Elsa Sigurðardóttir, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á Landspítalanum Foss- vogi mánudaginn 18. júlí. Jóna Sveinbjarnardóttir fyrrum húsfreyja á Hamrafelli, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunar- heimilinu Eir mánudaginn 18. júlí. Kristján Rafn Hjartarson fyrrum síma- verkstjóri, Vesturgötu 7, Reykjavík, lést mánudaginn 18. júlí Guðrún Sigurjónsdóttir, Efstahjalla 5, áður á Víghólastíg 12, Kópavogi, lést á Landspítalanum Hringbraut þriðju- daginn 19. júlí. Svan Magnússon málarameistari, Frid- hemsvagen 29D, Finspang, Svíþjóð, andaðist þriðjudaginn 19. júlí. JAR‹ARFARIR 13.30 Gestur Bjarnason frá Fremri- Hvestu í Arnarfirði, verður jarð- sunginn frá Bíldudalskirkju. 13.30 Halldór Jónsson frá Sunnutúni, Eyrarbakka, Baugstjörn 6, Selfossi, verður jarðsunginn frá Eyrar- bakkakirkju. 14.00 Jóhann Júlíusson útgerðarmaður, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísa- fjarðarkirkju. 14.00 Sigurbjörg Helgadóttir, Horn- brekku, Ólafsfirði, verður jarð- sungin frá Ólafsfjarðarkirkju. AFMÆLI Guðlaugur Arason rithöfundur er 55 ára. Kristján Arason handboltahetja er 44 ára. Sindri Freysson rithöfundur er 35 ára. Andrés prins af Bretlandi gekk að eiga Söru Ferguson þennan dag árið 1986. Athöfnin fór fram í Westminster Abbey og flykktust þúsundir á götur Lundúna auk þess sem um 500 mill- jónir fylgdust með hjónavígslunni í gegnum sjónvarp. Sara mætti til kirkju í hestvagni úr gleri ásamt föður sínum Sir Ronald. Tvö þúsund gestir voru í kirkjunni og fylgdust með því þegar brúðurin gekk inn kirkjugólfið með fimm metra slóða. Þegar parið hafði farið með eiðinn heyrðust fagnaðaróp frá mann- mergðinni fyrir utan kirkjuna. Meðal gesta í kirkjunni voru sautján með- limir erlendra konungsfjölskyldna, Nancy Reagan eiginkona Bandaríkja- forseta og forsætisráðherra Breta, Margrét Thatcher. Játvarður prins var svaramaður en athöfninni stýrði erki- biskupinn af Kantaraborg. Andrés og Sara hlutu titlana hertogi og hertogaynja af York og eignuðust tvær dætur, Beatrice og Eugenie. Þau skildu árið 1996 en bjuggu saman ári síðar til að hlífa börnunum. Til að losna við langan skuldahala hefur Sara Ferugson gefið út barna- bók og komið fram í bandarískum og breskum sjónvarpsþáttum. Árið 2001 viðurkenndi hún í bandarísku tímariti að brestir hefðu komið í hjónabandið innan við viku frá giftingunni og hefðu skyldur Andrésar við sjóherinn haft mest að segja. 23. JÚLÍ 1986 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1183 Ættfaðir Sturlunga, hinn ágjarni og slægvitri Sturla Þórðarson, andast. 1951 Frímúrarareglan á Íslandi er stofnuð. Fimmtíu árum síðar eru þrjú þúsund reglubræður í þrettán stúkum. 1974 Herforingjastjórnin í Grikk- landi fellur og lýðræði er komið á á ný. 1984 Fyrsta svarta fegurðar- drottning Bandaríkjanna, Vanessa Williams, afsalar sér titlinum vegna gamalla nektarmynda. 1995 Bretar senda herlið til Sarajevo. 2001 Örn Arnarson lendir í öðru sæti í 100 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í Fukuoka í Japan. Þetta voru fyrstu verðlaun Ís- lendings á heimsmeistara- móti í sundi. Konunglegt brú›kaup Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og tengdadóttir, Kolbrún Kristinsdóttir Sunnuvegi 4, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 25. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynn- ingu Krabbameinsfélagsins. Engilbert Ó. H. Snorrason Jóhann Engilbertsson María Kristjánsdóttir Helgi Karl Engilbertsson Þóra Helgadóttir Snorri Engilbertsson Perla Kolbrún Jóhannsdóttir Baldur Kári Helgason Snorri Jónsson Olga Hafberg og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Sveinbjarnardóttir fyrrum húsfreyja á Hamrafelli, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 18. júlí. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju mánudaginn 25. júlí kl. 13.00. Sigríður Birna Ólafsdóttir Ingimar Hjálmarsson Guðný Margrét Ólafsdóttir Elías Ingvarsson Finnur Ingimarsson Kolbrún Guðjónsdóttir Ólafur Ingimarsson María Pálsdóttir Hjálmar Ingimarsson Elísa Hörn Ásgeirsdóttir Ólöf Jóna Elíasdóttir Sigríður Birna Elíasdóttir Daníel Helgi Reynisson Sigmar Jósep, Katrín Rós, Ingibjörg Sólveig Úlfur og Svanhildur Sól. www.steinsmidjan.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar, bróður, mágs og frænda, Sveins Ómars Elíassonar Miðtúni 48, Reykjavík. Alda Ármanna Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson Kristín Þóra Harðardóttir Margrét Elíasdóttir Ólafur Sigtryggsson Sigurður Þór Elíasson og frændsystkini. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Kristmundar Jóhannessonar bónda að Giljalandi, Haukadal, Dalasýslu, Sigríður Bjarnadóttir Sigurbjörg Kristmundsdóttir Pétur Guðsteinsson Bjarni Kristmundsson Áshildur Eygló Björnsdóttir Hallur Kristmundsson Aðalheiður Hanna Björnsdóttir Jóhanna Gísladóttir Fernand Lupion afabörn og langafabarn BJÖSSI OG DÍSA Hjónin hafa svitnað saman í ræktinni í mörg ár og sjá fram á að eyða ellinni með lóðin í lúkunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.