Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 29
5LAUGARDAGUR 23. júlí 2005
út í heim }
Svo ljúft í Nice
NICE ER PERLA FRÖNSKU RÍVÍER-
UNNAR OG VERÐUGUR VIÐKOMU-
STAÐUR ALLRA FERÐALANGA.
Borgin Nice eða Nizza á frönsku
rívíerunni er kjörinn áfangastaður
þeirra sem flakka um Suður-Evr-
ópu. Einnig er auðvelt að ná
tengiflugi til Nice frá París eða
London, svo einhverjir staðir séu
nefndir. Þessi fornfrægi leikvöllur
hinna ríku og frægu býður upp á
fallegar strendur, öflugt menningar-
líf og hressilegt næturgaman auk
þes sem gamli bærinn sjálfur er
fallegur og bæjarstæðið einstakt.
Akkúrat núna er auðvitað mjög
heitt við Miðjarðarhafið en það er
ekkert sem kalt hvítvínsglas, góður
sólhattur og stórkostlegur ís geta
ekki jafnað út.
Hér er ýmislegt sem hægt er að
gera í þessum sögufræga franska
strandbæ:
• Fáið ykkur morgunkaffi á Le Pain
Quotidien í morgunsárið og
fylgist með þegar blómamarkað-
urinn er opnaður.
• Skoðið allar búðirnar, bæði þær
sem selja frönsk hátískuföt og
líka vínbúðirnar og sælkerabúð-
irnar og búðirnar með litla
skemmtilega dótinu...
• Smakkið á furðulega góðgætinu
sem fæst á ítalska grænmet-
isveitingastaðnum La Zucca
Magica við höfnina í Nice. Það er
ódýrt, og eigandi staðarins syng-
ur fyrir ykkur.
• Farið á skemmtistaðinn Cherry’s
Café í gamla hverfinu, drekkið
gott hvítvín sem ræktað er ein-
hvers staðar í nágrenninu og
fylgist með ríka og fallega fólkinu
og hvernig það skemmtir sér á
rívíerunni
• Fáið ykkur Fenocchio-ís á Rosetti-
torginu. Hann er heimsfrægur af
gæðum og mjög óvenjulegur að
auki. Rjómaís með basilbragði er
til dæmis ekki til í mörgum ís-
búðum.
Ekki bara fyrir ferðamenn
SJÓSTANGVEIÐI ER VINSÆL MEÐAL FERÐAMANNA. DUUS TOURS ER EITT
ÞEIRRA FYRIRTÆKJA SEM BJÓÐA UPP Á SKEMMTILEGAR SJÓSTANGVEIÐI-
FERÐIR SEM HENTA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI.
Duus Tours gerir út einn bát frá
Ægisgarði í Reykjavík og þaðan er
farið í daglegar sjóstangveiðiferðir
með ferðamenn. Ferðirnar taka um
þrjá til fjóra tíma og um 20 manns
komast með í hverja ferð.
Páll Jónsson hjá Duus Tours segir
að ferðirnar gangi vel enda sé um
góða skemmtun og útivist að ræða.
„Þetta hefur til dæmis verið vinsælt
fyrir steggjapartí og vinnustaðaferð-
ir. Við getum tekið stóra hópa og
svo er líka alltaf pláss fyrir einstak-
linga. Við siglum út á Faxaflóann og
dólum þar. Það eru ágæt fiskimið
hérna og við finnum alltaf fisk. Það
er fjarri lagi að sjórinn sé að verða
tómur og þrátt fyrir kvótakerfið er
okkur heimilt að veiða í soðið,“
segir Páll kíminn. Hann segir að
þorskur, ýsa og ufsi séu meðal
þeirra tegunda sem bíti á.
Páll segir að útlendingar hafi verið
duglegri en Íslendingar að nýta sér
sjóstangveiðina. „Okkur þætti gam-
an að sjá fleiri Íslendinga um borð.
Þetta virðist hins vegar vera dægra-
stytting sem fólk veit lítið um.
Margir hafa aldrei dregið fisk úr sjó
og því getur þetta verið mikil upp-
lifun. Fiskurinn sem maður veiðir
sjálfur er líka bestur á bragðið,“
segir Páll.
Hægt er að panta ferðir með Duus
Tours með því að hafa samband í
síma 898 951. Páll Jónsson hjá Duus Tours vill sjá fleiri Íslendinga um borð.
Upplýsingabrunnur
um ferðamál
VEFURINN FERDALAG.IS ER STÚT-
FULLUR AF UPPLÝSINGUM SEM
ÆTTU AÐ NÝTAST FERÐAMÖNNUM
INNANLANDS.
Vefurinn ferdalag.is er frábær viðbót
við ferðaflóruna. Upplýsingabrunnur
um ferðamál
er sannkallað
réttnefni á
vefnum. Hvort
sem vantar al-
mennar upp-
lýsingar um
staðhætti eða
hvar næstu
sundlaug er að
finna, geymir vefurinn svör við flest-
um spurningum sem vakna hjá
ferðamanninum.
Meðal annars er hægt að fletta upp á
öllum gististöðum hvar sem er á
landinu á vefnum. Á honum er einnig
leitarvél sem leitar að afþreyingu,
samgöngum og gistingu eftir lands-
hlutum. Alls konar þarfar upplýsingar
er einnig að finna þar, meðal annars
mjög þarfar ábendingar fyrir fólk sem
ferðast með tjaldvagna og hjólhýsi
svo fátt eitt sé nefnt.
Umsjón vefsins er í höndum Ferða-
málaráðs Íslands.