Fréttablaðið - 23.07.2005, Page 40
SVIPMYND MUMBAI STÆRSTA BORG INDLANDS
Mumbai er betur þekkt undir sínu gamla nafni Bombay og er stærsta iðnaðarborg
Indlands. Borgin er að mestu leyti á sautján kílómetra langri og fjögurra kílómetra
breiðri eyju.
Íbúafjöldi um 15 milljónir. Þéttleiki byggðar er mjög mikill en yfir 43 þúsund manns
búa á hverjum ferkílómetra í borginni.
Fólkið sem býr í Mumbai er bæði mjög ríkt og mjög fátækt fólk. Flestir íbúanna eru
hindúar en þar má einnig finna fólk af flestum öðrum trúarbrögðum.
Aðdráttarafl Hengigarðarnir, Indlandshliðið á Apollo Bunder og Fílahellarnir sem eru
tileinkaðir hindúaguðinum Sjíva.
Kvikmyndaiðnaður er stór atvinnugrein í Mumbai. Þar eru framleidd ógrynnin öll af
kvikmyndum og hefur borgin því fengið gælunafnið Bollywood.
Saga Mumbai síðustu ár er mjög samofin bresku nýlendustjórninni á Indlandi. Um
miðja átjándu öld féll hún í hendur Breta, sem með Austur-Indíafélaginu gerðu hana
að mikilli iðnaðarborg.
Höfnin í Mumbai er sú stærsta á Indlandi og fara þar um yfir fjörutíu prósent alls út-
flutnings.
Gott að vita að Bombay Sapphire gin er ekki framleitt í Mumbai.
23. júlí 2005 LAUGARDAGUR 16
Vissir þú ...
… að fyrsta reiðhjólið, sem búið
var til árið 1817 af Baron von
Drais, hafði engin fótstig?
… að keiluspil með níu keilum
eins og við þekkjum úr keiluhöll-
unum kom fyrst fram á sjónarsvið-
ið í Þýskalandi á miðöldum?
… að á hverju ári koma um 50
milljón nýir bílar á götur heimsins?
… að Kínverjar notuðu silki til að
búa til pappír?
… að menn hafa þrifið tennurnar
frá örófi alda? Frummenn í Afríku
og Ástralíu hreinsuðu tennurnar
en það voru hins vegar Kínverjar
sem fundu upp tannburstann eins
og við þekkjum hann í dag.
… að súkkulaði getur drepið
hunda? Í súkkulaði er efni sem
hefur áhrif á hjartað og taugakerf-
ið í hundum. Lítið magn af
súkkulaði er nóg til að drepa lítinn
hund.
… að gíraffar eru einu dýrin sem
fæðast með horn?
… að krókódílar geta ekki hreyft
tunguna og geta heldur ekki
tuggið?
… að mesta umferðaröngþveiti
allra tíma var 16. febrúar 1980
þegar bílaröðin frá Lyon til Parísar
var 176 kílómetra löng?
… að bandarískir ríkisborgarar eru
mestu eyðsluklærnar á ferðalög-
um? Þeir eyða mest allra þjóða á
ferðum erlendis.
… að Kínverjar reykja allra þjóða
mest ef miðað er við sölumagn?
Þriðja hver sígaretta er reykt í Kína.
… að mesta áfengisneysla á hvern
íbúa er á Írlandi? Þar drekkur hver
maður 12,3 lítra af hreinum vín-
anda á ári hverju.
… að tíundi hver jarðarbúi býr á
eyju?
… að Óskarsverðlaunahátíðin var
haldin tvisvar árið 1930?
… að kýr eru ekki með framtennur
í efri gómi?
… að helmingur jarðarbúa hefur
séð að minnsta kosti eina James
Bond-kvikmynd?
… að það eru til um það bil einn
milljarður reiðhjóla í heiminum?
… að dósaopnarinn var fundinn
upp 48 árum eftir að niðursuðu-
dósir voru fyrst settar á markað?
… að umferðarljós voru til á
undan bílnum?
…. að tómatar eru vinsælustu
ávextir í heimi? Mun meira selst af
tómötum en banönum og appel-
sínum til dæmis.
… að það eru til meira en 20 þús-
und tegundir af bjór í heiminum?
… að þær risaeðlur sem voru
plöntuætur átu ekki gras?
… að fyrsti kafbáturinn var hann-
aður árið 1578?
… að skakki turninn í Písa hefur
aldrei staðið beinn? Hann var
farinn að halla meðan hann var
enn í byggingu.
… að fyrsta kreditkortið kom fram
á sjónarsviðið árið 1951?
… að í Indónesíu eru töluð 365
ólík tungumál?
… að bílaeign er mest í Lúxem-
borg en minnst í Sómalíu og
Tadsjikistan? Í Lúxemborg eru 1,7
bílar á hvern íbúa er einn bíll á
hverja 10 þúsund íbúa.
… að fyrsta hjartaígræðslan átti
sér stað í Suður-Afríku árið 1967?