Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 41

Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 41
LAUGARDAGUR 23. júlí 2005 25 -alltaf gó›ur TAKT U STE FNUN A Á GÓ ‹AN MAT Grillkjöti› frá Go›a er heitast á grilli› í sumar! GO URM ET LAM B Á GR ILLI ‹ E N N E M M / S ÍA / N M 16 4 5 5 GOURMET GRÍS Á GRILLI‹ Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Að jafn- aði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við að undanförnu eru: Eru til menningarheimar þar sem fólk er nafnlaust, hvernig er hugtakið stjórnsýsla skilgreint, hvað þýðir ISBN-talan fremst í bókum, geta stór- kettir malað eins og venjulegir litlir kettir, hvaða tilgangi gegnir harði diskurinn og hvað getið þið sagt mér um Andrómeda-vetrarbrautina? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Erlend heiti um það sem við nefn- um ritstuld eru dregin af latnesk- um stofni sem kemur fram í sögn- inni plagiare sem merkir bókstaf- lega að stela annarra manna þræl eða hneppa frjálsan mann í þræl- dóm. Á ensku er talað um ‘plagi- arism’ og á frönsku ‘plagiat’ en þessi orð eru ekki eingöngu höfð um „stuld“ eða misnotkun á rit- verkum annarra heldur einnig um önnur hugverk. Nákvæmari þýð- ing væri því hugverkastuldur sem merkir í stuttu máli það að eigna sér hugverk annarra eins og þau væru eftir mann sjálfan. Í bókinni Hugtök og heiti í bók- menntafræði stendur meðal ann- ars þetta um ritstuld: „Bein og vísvitandi not á ritverki annars manns án þess að geta heimildar, þannig að höfundur birtir orð eða fræðilegar niðurstöður annarra sem sitt eigið verk.“ Í sömu heim- ild segir enn fremur: „Aftur á móti verður ekki talinn r. þótt höf- undar noti sér eldri ritverk með því að setja efni þeirra í nýtt sam- hengi, skapa úr því nýja heildar- mynd; það hafa margir höfundar gert allt fram á þennan dag.“ Dæmi um slíka notkun væri Gerpla Halldórs Laxness þar sem efnið er unnið úr Fóstbræðra sögu og mörgum öðrum Íslendingasög- um, eða bókin Ulysses eftir James Joyce þar sem stuðst er á frjáls- legan hátt við Ódysseifskviðu gríska skáldsins Hómers. Í bók- menntafræðinni er slíkt kallað textatengsl og þykir ekki tiltöku- mál. Er ritstuldur þjófnaður? Fyrir enskumælandi lesanda fel- ur orðið plagiarism ekkert endi- lega í sér vísun til þjófnaðar eins og íslenska orðið gerir gagnvart íslenskum lesanda. Þessi vísun ís- lenska orðsins er að sumu leyti óheppileg því að ritstuldur þarf ekki að þýða að stolið hafi verið frá neinum tilteknum höfundi í venjulegum skilningi. Til dæmis getur maður nýtt sér hugverk með rangindum þó að það sé eftir óþekktan höfund eða jafnvel ekki eftir neinn tiltekinn mann, saman- ber til dæmis þjóðlög og þjóðsög- ur. Einnig getum við hugsað okkur að maður afli leyfis hjá upphaf- legum höfundi hugverks til að nýta sér það sem sitt eigið verk án þess að geta höfundarins. Þó að undarlegt kunni að virðast er slíkt einnig ritstuldur samkvæmt skil- greiningunni sem tilgreind var hér á undan. Þetta byggist á því að sá sem birtir verk annars manns sem sitt eigið er ekki eingöngu að ganga á hlut upphaflegs höfundar ef við á, heldur einnig að blekkja lesendur sína í einföldum staðreyndum um tilkomu verksins. Þetta á bæði við um almenna lesendur og þá sem leggja sérstaklega mat á verkið eins og nú er altítt, bæði í ritdóm- um í fjölmiðlum, við úthlutun ýmiss konar styrkja og viður- kenninga og við mat á störfum manna í heild eins og gert er til dæmis í háskólum. Þannig getur hugverkastuldur sem ekki kemst upp hæglega orðið manni til efnis- legra hagsbóta rétt eins og venju- legur þjófnaður. Vafasamur vinnusparnaður Sá sem stelur einhverju frá öðrum ætlar oft að nýta sér það, til dæmis í auknum afköstum og minni fyrirhöfn. Þetta á augljós- lega við þegar menn stela pen- ingum eða hlutum sem þeir hyggjast fénýta sér, en einnig þegar lausafé eins og bílum eða reiðhjólum er stolið til eigin nota. Á sama hátt kann það að horfa til vinnusparnaðar fyrir höfunda hugverka að nýta sér parta úr verkum annarra eins og um eigið verk væri að ræða. Ritstuldur eða annar hugverkastuldur er því að ýmsu leyti býsna hliðstæður venjulegum þjófnaði. Ritstuldur og fræðastörf Í seinni tíð hefur ritstuldur í fræðastörfum komið mjög til um- ræðu, meðal annars með tilkomu tölvutækni og veraldarvefs, en einnig vegna vaxandi kröfu um heiðarleika, vönduð vinnubrögð og gagnsæi í vísindum. Í grein bandaríska veftímarits- ins History News Network kemur fram að ásakanir um ritstuld meðal fræðimanna fari sjaldan fyrir dómstóla þar sem lagaleg skilgreining á ritstuldi sé mun þrengri en þær siðareglur sem gilda um vandaða fræðimennsku. Séu ásakanir um ritstuld háskóla- kennara á rökum reistar geta há- skólar beitt ýmsum viðurlögum svo sem að lækka laun, seinka stöðuhækkun, segja manni upp eða krefjast innköllunar og leið- réttingar á verki sem um ræðir. Þetta er þá gert vegna óvandaðra vinnubragða en ekki með vísun til þess að landslög hafi endilega verið brotin. Tilvitnanir Spurningin um ritstuld í vísindum kann að leyna svolítið á sér vegna þess að vísindamönnum þykir yfirleitt eftirsóknarvert að aðrir fræðimenn vitni í verk þeirra. Hins vegar er þá auðvitað átt við fullgilda tilvitnun sem gerir les- anda kleift að hafa upp á verkinu sem um ræðir. Hitt hefur þó einnig færst í vöxt að menn noti verk annarra vísindamanna án þess að vísa til þeirra. Sá sem gerir slíkt á í hættu að hljóta ámæli af hálfu starfssystkina og vísindasamfélagsins eða fulltrúa þess, svo sem háskólayfirvalda og rannsóknaráða í hinum ýmsu löndum, eða jafnvel að missa að- gang að sjóðum sem úthluta styrkjum til rannsókna. Eitt af því sem veldur nokkrum ruglingi í umræðunni um hugverkastuld í vísindum er það að kröfur um frágang fræði- legra verka að þessu leyti hafa verið að aukast að undanförnu og eru til dæmis allt aðrar núna en þær voru fyrir 100 árum eða svo. Dulbúin rit Sömuleiðis byrgir það mönnum sýn á köflum að vísindamenn taka stundum upp á því að skrifa rit fyrir almenning og þá þykir ekki endilega við hæfi að trufla lesand- ann með bókfræðilegum tilvísun- um. Ef höfundur kýs að sleppa þess konar kröfum eða slaka verulega á þeim ber honum að láta þess getið auk þess sem hann verður þá að sæta því að rit hans sé metið samkvæmt þessu – og kann það þó að vera býsna gott að öllu öðru leyti. Í þessu viðfangi skiptir líklega mestu að ritið sé eins og það sýnist vera þannig að lesandi geti strax séð hvorum flokknum það tilheyrir. Heimildaskrá verður birt með svarinu á vefnum. Þorsteinn Vilhjálmsson, pró- fessor í vísindasögu og eðlisfræði við HÍ og Jón Gunnar Þorsteins- son, bókmenntafræðingur. Hva› er ritstuldur?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.