Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 23. júlí 2005 25
-alltaf gó›ur
TAKT
U STE
FNUN
A
Á GÓ
‹AN
MAT
Grillkjöti› frá Go›a er
heitast á grilli› í sumar!
GO
URM
ET
LAM
B Á
GR
ILLI
‹
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
16
4
5
5
GOURMET
GRÍS Á GRILLI‹
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Að jafn-
aði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt
við að undanförnu eru: Eru til menningarheimar þar sem fólk er nafnlaust, hvernig
er hugtakið stjórnsýsla skilgreint, hvað þýðir ISBN-talan fremst í bókum, geta stór-
kettir malað eins og venjulegir litlir kettir, hvaða tilgangi gegnir harði diskurinn og
hvað getið þið sagt mér um Andrómeda-vetrarbrautina? Hægt er að lesa svör við
þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Erlend heiti um það sem við nefn-
um ritstuld eru dregin af latnesk-
um stofni sem kemur fram í sögn-
inni plagiare sem merkir bókstaf-
lega að stela annarra manna þræl
eða hneppa frjálsan mann í þræl-
dóm. Á ensku er talað um ‘plagi-
arism’ og á frönsku ‘plagiat’ en
þessi orð eru ekki eingöngu höfð
um „stuld“ eða misnotkun á rit-
verkum annarra heldur einnig um
önnur hugverk. Nákvæmari þýð-
ing væri því hugverkastuldur sem
merkir í stuttu máli það að eigna
sér hugverk annarra eins og þau
væru eftir mann sjálfan.
Í bókinni Hugtök og heiti í bók-
menntafræði stendur meðal ann-
ars þetta um ritstuld: „Bein og
vísvitandi not á ritverki annars
manns án þess að geta heimildar,
þannig að höfundur birtir orð eða
fræðilegar niðurstöður annarra
sem sitt eigið verk.“ Í sömu heim-
ild segir enn fremur: „Aftur á
móti verður ekki talinn r. þótt höf-
undar noti sér eldri ritverk með
því að setja efni þeirra í nýtt sam-
hengi, skapa úr því nýja heildar-
mynd; það hafa margir höfundar
gert allt fram á þennan dag.“
Dæmi um slíka notkun væri
Gerpla Halldórs Laxness þar sem
efnið er unnið úr Fóstbræðra sögu
og mörgum öðrum Íslendingasög-
um, eða bókin Ulysses eftir James
Joyce þar sem stuðst er á frjáls-
legan hátt við Ódysseifskviðu
gríska skáldsins Hómers. Í bók-
menntafræðinni er slíkt kallað
textatengsl og þykir ekki tiltöku-
mál.
Er ritstuldur þjófnaður?
Fyrir enskumælandi lesanda fel-
ur orðið plagiarism ekkert endi-
lega í sér vísun til þjófnaðar eins
og íslenska orðið gerir gagnvart
íslenskum lesanda. Þessi vísun ís-
lenska orðsins er að sumu leyti
óheppileg því að ritstuldur þarf
ekki að þýða að stolið hafi verið
frá neinum tilteknum höfundi í
venjulegum skilningi. Til dæmis
getur maður nýtt sér hugverk
með rangindum þó að það sé eftir
óþekktan höfund eða jafnvel ekki
eftir neinn tiltekinn mann, saman-
ber til dæmis þjóðlög og þjóðsög-
ur.
Einnig getum við hugsað okkur
að maður afli leyfis hjá upphaf-
legum höfundi hugverks til að
nýta sér það sem sitt eigið verk án
þess að geta höfundarins. Þó að
undarlegt kunni að virðast er slíkt
einnig ritstuldur samkvæmt skil-
greiningunni sem tilgreind var
hér á undan.
Þetta byggist á því að sá sem
birtir verk annars manns sem sitt
eigið er ekki eingöngu að ganga á
hlut upphaflegs höfundar ef við á,
heldur einnig að blekkja lesendur
sína í einföldum staðreyndum um
tilkomu verksins. Þetta á bæði við
um almenna lesendur og þá sem
leggja sérstaklega mat á verkið
eins og nú er altítt, bæði í ritdóm-
um í fjölmiðlum, við úthlutun
ýmiss konar styrkja og viður-
kenninga og við mat á störfum
manna í heild eins og gert er til
dæmis í háskólum. Þannig getur
hugverkastuldur sem ekki kemst
upp hæglega orðið manni til efnis-
legra hagsbóta rétt eins og venju-
legur þjófnaður.
Vafasamur vinnusparnaður
Sá sem stelur einhverju frá
öðrum ætlar oft að nýta sér það,
til dæmis í auknum afköstum og
minni fyrirhöfn. Þetta á augljós-
lega við þegar menn stela pen-
ingum eða hlutum sem þeir
hyggjast fénýta sér, en einnig
þegar lausafé eins og bílum eða
reiðhjólum er stolið til eigin nota.
Á sama hátt kann það að horfa til
vinnusparnaðar fyrir höfunda
hugverka að nýta sér parta úr
verkum annarra eins og um eigið
verk væri að ræða. Ritstuldur eða
annar hugverkastuldur er því að
ýmsu leyti býsna hliðstæður
venjulegum þjófnaði.
Ritstuldur og fræðastörf
Í seinni tíð hefur ritstuldur í
fræðastörfum komið mjög til um-
ræðu, meðal annars með tilkomu
tölvutækni og veraldarvefs, en
einnig vegna vaxandi kröfu um
heiðarleika, vönduð vinnubrögð
og gagnsæi í vísindum.
Í grein bandaríska veftímarits-
ins History News Network kemur
fram að ásakanir um ritstuld
meðal fræðimanna fari sjaldan
fyrir dómstóla þar sem lagaleg
skilgreining á ritstuldi sé mun
þrengri en þær siðareglur sem
gilda um vandaða fræðimennsku.
Séu ásakanir um ritstuld háskóla-
kennara á rökum reistar geta há-
skólar beitt ýmsum viðurlögum
svo sem að lækka laun, seinka
stöðuhækkun, segja manni upp
eða krefjast innköllunar og leið-
réttingar á verki sem um ræðir.
Þetta er þá gert vegna óvandaðra
vinnubragða en ekki með vísun til
þess að landslög hafi endilega
verið brotin.
Tilvitnanir
Spurningin um ritstuld í vísindum
kann að leyna svolítið á sér vegna
þess að vísindamönnum þykir
yfirleitt eftirsóknarvert að aðrir
fræðimenn vitni í verk þeirra.
Hins vegar er þá auðvitað átt við
fullgilda tilvitnun sem gerir les-
anda kleift að hafa upp á verkinu
sem um ræðir. Hitt hefur þó
einnig færst í vöxt að menn noti
verk annarra vísindamanna án
þess að vísa til þeirra. Sá sem
gerir slíkt á í hættu að hljóta
ámæli af hálfu starfssystkina og
vísindasamfélagsins eða fulltrúa
þess, svo sem háskólayfirvalda og
rannsóknaráða í hinum ýmsu
löndum, eða jafnvel að missa að-
gang að sjóðum sem úthluta
styrkjum til rannsókna.
Eitt af því sem veldur
nokkrum ruglingi í umræðunni
um hugverkastuld í vísindum er
það að kröfur um frágang fræði-
legra verka að þessu leyti hafa
verið að aukast að undanförnu og
eru til dæmis allt aðrar núna en
þær voru fyrir 100 árum eða svo.
Dulbúin rit
Sömuleiðis byrgir það mönnum
sýn á köflum að vísindamenn taka
stundum upp á því að skrifa rit
fyrir almenning og þá þykir ekki
endilega við hæfi að trufla lesand-
ann með bókfræðilegum tilvísun-
um. Ef höfundur kýs að sleppa
þess konar kröfum eða slaka
verulega á þeim ber honum að
láta þess getið auk þess sem hann
verður þá að sæta því að rit hans
sé metið samkvæmt þessu – og
kann það þó að vera býsna gott að
öllu öðru leyti. Í þessu viðfangi
skiptir líklega mestu að ritið sé
eins og það sýnist vera þannig að
lesandi geti strax séð hvorum
flokknum það tilheyrir.
Heimildaskrá verður birt með
svarinu á vefnum.
Þorsteinn Vilhjálmsson, pró-
fessor í vísindasögu og eðlisfræði
við HÍ og Jón Gunnar Þorsteins-
son, bókmenntafræðingur.
Hva› er ritstuldur?